Fréttablaðið - 06.04.2017, Side 56
Maður kemst ekki hjá því að finna eldmóðinn. Ólg-andi kraftinn og einlæga ástríð-una sem brenn-
ur innra með Þorleifi Erni Arnarssyni
leikstjóra sem þessa dagana er að
leggja lokahönd á Álfahöllina, leik-
sýningu á stóra sviði Þjóðleikhússins.
Húsinu sem var hér áður fyrr kennt
við álfahöllina í Nýársnóttinni, eftir
Indriða Einarsson, opnunarsýningu
Þjóðleikhússins árið 1950.
Þorleifur er eilítið óðamála fyrst
eftir að næst í skottið á honum enda
í mörg horn að líta en hann gefur
sér þó tíma til þess að tala um það
sem hann er að fást við þessa dag-
ana. „Við erum að umskrifa lokin á
sýningunni,“ segir Þorleifur en frum-
sýning er næstkomandi laugardags-
kvöld svo það er víst óhætt að segja
að hann sé óhræddur við að gera
breytingar á lokasprettinum. „Já, ég
hef hent sýningu viku fyrir frumsýn-
ingu og byrjað upp á nýtt. En núna
er málið að fyrir fimm vikum vorum
við bara með hugmyndir og langanir
og kannski ákveðna samfélagslega
og listræna nauðsyn. Nú fyrst erum
við komin með efniviðinn og það
verður unnið í honum þangað til
tjaldið verður dregið frá, rétt eins og
síðasta smiðshöggið skall andrá áður
en tjaldið fór frá á frumsýningunni
1950.“
Listin á að rannsaka
Þorleifur segir að það sé í raun ótrú-
lega gaman að Þjóðleikhúsið skuli
hafa haft hugrekki til þess að veita
þessari sýningu farveg. „Ari Matthí-
asson sýnir ákveðið hugrekki að láta
stóra sviðið undir sýningu á þeirri
forsendu að listamennirnir finni að
það er einhver undiralda sem þarf
að kljást við, án þess að þeir geti enn
útskýrt það nánar. Samt búum við á
tímum þar sem alltaf allt á að útskýr-
ast – allt er skilgreint og áþreifan-
legt. En listin, við erum soldið búin
að gleyma því, hún á að rannsaka.
Og ef við þorum ekki að leyfa lista-
mönnum að rannsaka þá verða þeir
að þessum latte-lepjandi aumingjum
sem popúlista hægrið heldur fram.
Og það má alveg velta því fyrir sér
hvort við höfum sofnað á verðinum
og þurfum því að endurnýja umboð-
ið okkar. Við erum að minnsta kosti
að gera eins heiðarlega tilraun til
þess og okkur er framast unnt á stóra
sviði Þjóðleikhússins.“
En hvers vegna er titill sýningar-
innar þá þessi vísun í opnunarsýn-
ingu Þjóðleikhússins á sínum tíma?
„Álfahöllin vísar til upphafsins en
þó helst til þeirrar eilífu nauðsynjar
Íslendinga til þess að búa sér til álfa-
hallir til þess að umbera hinn óbæri-
lega raunveruleika.“
Endurnýjað umboð
Þorleifur segist stilla þessu þannig
upp að Þjóðleikhúsið sé að endur-
nýja umboð sitt frá þjóðinni. „Við
sem listamenn erum að horfast í
augu við það að í þessu nýtilkomna
góðæri erum við samt að skilja eftir
svöðusár eftir hrunið. Hið eilífa
svöðusár fátæktarinnar sem stóð
galopið eftir síðasta góðæri og hrun
og við erum að skilja eftir. Sár sem
er ekki að gróa og við erum ekki að
græða. En við listamennirnir erum
orðnir svo passasamir með að tala
um hluti sem skipta máli, verja þá
sem veikastir standa og standa upp
fyrir grundvallar mannréttindum
og vera pólitískt rétttrúandi að við
erum í raun orðnir allt of uppteknir
af okkur sjálfum. Þess vegna þurfum
við að endurnýja umboð okkar til
þess að tala um, rannsaka og spegla
samfélagið.
Við þurfum að endurnýja umboð-
ið með því að skoða samfélagið sem
við búum í og leikararnir gerðu það
með því að leggjast í miklar sam-
félagsrannsóknir. Ólafía Hrönn
hefur til að mynda verið að rannsaka
fátækt og í þeirri vinnu var hún alltaf
að rekast á Mikael Torfason því þau
voru að tala við sama fólkið. Rann-
sóknin sem Ólafía Hrönn var að
vinna að var ein af mörgum en hún
varð hvað mest aðkallandi. Hvernig
stendur á að svo sár fátækt og alvar-
leg mannréttindabrot eiga sér stað á
Íslandi? Hvernig stendur á því að við
erum búin að týna samfélagshugsun-
inni um að við séum ekki sterkari en
okkar veikasti hlekkur?
En til þess að endurnýja umboð
okkar þurfum við líka að skoða
hvaðan við komum. Okkar sögu.
Við skoðum hvernig leikhúsið hefur í
gegnum árin fjallað um samfélag sitt.
Hvernig stendur á því að þá fátæk-
asta land Evrópu byggði sér þessa
miklu byggingu sem kastala utan um
hugsjónir okkar? Álfahöllin er staður
þar sem við stígum út úr raunveru-
leikanum og inn í fantasíuna en til
þess helst að skoða okkur sjálf.“
Þetta er ólíðandi
Þorleifur segir að í raun þurfi allir
sem koma að sýningu á borð við
þessa að stíga út fyrir þægindaramm-
ann og inn í óttann, bæði sem lista-
menn og einstaklingar. „Allir og ég
líka þurfa að sjá, þegar hækjurnar
okkar og afsakanirnar eru farnar,
hvað stendur eftir. Þetta hugrekki
þjóðleikhússtjóra sem ég nefndi
áðan er því líka til staðar í leikmuna-
deildinni, förðun, búningum, leikur-
unum og hjá öllu þessu fólki sem
hefur þurft að gjörbreyta ferlunum
sínum af því að það kannski bara
breytist frá degi til dags hvernig þetta
á að líta út. Það er magnað að leik-
húsið hafi gefið svigrúm og tíma og
sagt okkur að framkvæma. Út frá því
spratt þessi hugmynd að því að leita
til þjóðarinnar með að senda okkur
leikföng þegar við fórum að vinna
með barnafátæktina. Þessa fátækt
sem er óskiljanleg en krafði okkur
um sviðsetningu og þá þurftum við
að finna leið. Svara ákallinu í þessu
listræna frelsi.“
Varð ykkur hverft við þegar þið
fóruð að skoða samfélagið? „Já, mér
er miklu meira niðri fyrir en þegar
við vorum að byrja. Ég áttaði mig
ekki á því að þetta væri jafn ömur-
legt og það er. Ég vinn mikið erlendis
og fylgist vel með því sem er að ger-
ast í samfélagslegri umræðu í bæði
Bandaríkjunum og ekki síður á
meginlandi Evrópu þar sem er mikil
umræða um misskiptingu. En síðan
kemur maður heim og það eru allir
að tala um að hér ríki meira jafn-
ræði og að hér sé rosa góðæri en svo
þegar maður kíkir undir skrápinn þá
blasir við ótrúleg eymd. Maður upp-
lifir þetta sem svo hræsnisfullt að við
séum að berja okkur á brjóst fyrir að
hér sé allt svo frábært og við höfum
það svo gott á meðan stór hluti þjóð-
arinnar nær varla endum saman, er
alltaf einu áfalli frá því að falla niður
í fátækt. Og þeir sem eru fátækir eru í
algjörri gildru. Þaðan er engin leið út
og þetta er bara ólíðandi,“ segir Þor-
leifur og er mikið niðri fyrir.
Grið fyrir gagnrýni
„Ég er samt að reyna að passa mig
því ég er listamaður en ekki félags-
fræðingur. Ég tek persónulega þátt
í ákveðnu starfi en það er fyrir utan
leikhúsið og ég reyni að halda því
þar vegna þess að leikhúsið á ekki
að verða að einhvers konar sósíal-
stofnun. En það á að sýna fólki undir
skrápinn og við erum að leita að list-
rænni leið til þess.
Leikhúsið er kannski síðasti sam-
komustaðurinn okkar sem er ein-
vörðungu þarna til þess að við fáum
sameiginlega upplifun á því hvernig
aðrar manneskjur hafa það, er þarna
til þess að við eflum samlíðan og
samfélagslega hugsun. Ég held að
það sé kjarninn sem við erum búin
að glata með einstaklingshyggjunni.
Við verðum að hafa útópískar hug-
myndir. Við verðum að búa yfir
samfélagshugmyndum af því að hitt
dugar ekki.
Mín tilfinning er stundum að það
sé samfélagsleg og pólitísk sátt um
fátækt á Íslandi. Ég er Þjóðleikhúsinu
því þakklátur fyrir að halda í þessa
vegferð með það að markmiði að
stuðla að ákveðinni vitundarvakn-
ingu án þess að við ætlum að vera
að setja okkur á háan hest. En þetta
verður að vera hluti af leikhúsinu og
ef við höfum áhuga á einhverju öðru
en kapítalísku leikhúsi þá þurfum
við skapa ramma utan um það.
Við þurfum á því að halda að ein-
hvers staðar séu grið fyrir gagnrýni
í íslensku samfélagi.“
Maður kíkir undir skrápinn og við blasir ótrúleg eymd
Þorleifur Örn Arnarsson leikstjóri leggur um þessar mundir lokahönd á sýninguna Álfahöllina í Þjóðleik-
húsinu. Þorleifur hefur sterkar skoðanir á leikhúsinu, tilgangi þess og því samfélagi sem það fóstrar.
Þorleifur Örn Arnarson á stóra sviði Þjóðleikhússins, álfahöllinni þar sem við stígum inn í fantasíuna til þess að skoða okkur sjálf. FréttAbLAðið/Anton brink
Magnús
Guðmundsson
magnus@frettabladid.is
6 . a p r í l 2 0 1 7 F I M M T U D a G U r40 M e n n I n G ∙ F r É T T a B l a ð I ð
0
6
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
9
E
-1
A
3
8
1
C
9
E
-1
8
F
C
1
C
9
E
-1
7
C
0
1
C
9
E
-1
6
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
7
2
s
_
5
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K