Fréttablaðið - 06.04.2017, Blaðsíða 21

Fréttablaðið - 06.04.2017, Blaðsíða 21
Þótt halli nú mjög á Bandaríkin í augum umheimsins mega menn ekki missa sjónar á gamalgrónum styrk landsins sem helgast m.a. af stjórnarskránni frá 1787. Hún tryggir að Bandaríkin eru réttarríki þar sem allir mega heita jafnir fyrir lögum og rammgert jafnvægi ríkir milli framkvæmdar- valds, löggjafarvalds og dómsvalds. Í þessu ljósi þarf að skoða þá stað- reynd að 20 bandarískir stjórn- málamenn, þar af 13 þingmenn, hafa frá síðustu aldamótum verið dæmdir til fangavistar fyrir ýmis lögbrot. Frá 1981 hafa 60 banda- rískir stjórnmálamenn fengið slíka dóma, þar af 44 þingmenn. Enginn Bandaríkjamaður stendur ofar lögum eins og t.d. Nixon forseti fékk að reyna 1974. Misnotkun bankaleyndar Íslenzk stjórnmálamenning sem jafnvel Alþingi sjálft hefur ályktað gegn er annarrar gerðar. Hér þurfti hrun með grafalvarlegum afleið- ingum fyrir mikinn fjölda fólks til þess að meint brot bankamanna og annarra væru rannsökuð, en þó bara sum. Bankamenn hafa fengið dóma fyrir gáleysisleg útlán og meðfylgjandi umboðssvik o.fl. en engin rannsókn hefur enn farið fram á gáleysislegu útláni banka- stjóra Seðlabankans til Kaupþings í hruninu þótt Kastljós RÚV hafi sýnt mynd af mikilvægu gagni í málinu, útskrift af símtali seðla- bankastjóra og forsætisráðherra. Seðlabankinn neitaði jafnvel að upplýsa Alþingi um símtalið og bar við bankaleynd þótt hún komi málinu ekki við. Af lýsingu Kast- ljóss að dæma virðist útskriftin hafa lekið til sjónvarpsins frá embætti sérstaks saksóknara. Engin skýring hefur verið gefin á því hvers vegna sumir bankamenn hafa sætt rannsókn og fengið dóma fyrir gáleysisleg útlán og aðrir ekki. Lyftum lokinu Eins og til að skjóta sér undan kröfunni um allsherjarrannsókn á einkavæðingu bankanna 1998- 2003 lét Alþingi eftir dúk og disk og fyrir frumkvæði umboðsmanns Alþingis rannsaka einn smáþátt málsins, sýndaraðkomu þýzka bankans Hauck & Aufhäuser að einkavæðingu Búnaðarbankans. Allir sem vildu vita vissu hvernig í málinu lá enda hafði því verið þaul- lýst í fjölmiðlum. Rannsóknarefnið ætti að réttu lagi að vera einkavæðing bankanna í heild sinni svo sem Alþingi sam- þykkti 2012 að fara skyldi fram, þ.m.t. sala Landsbankans þar sem kaupin voru fjármögnuð af Búnaðarbankanum að stórum hluta og öfugt, en það mál er enn í þöggunarferli. Alþingi er samdauna þessu þráa andrúmslofti yfirhylm- ingar og þöggunar ef ekki beinlínis uppspretta þess eins og sést t.d. á því að næstum allir þingmenn sem hafa verið spurðir um niðurstöður rannsóknarinnar á sýndaraðkomu þýzka bankans þykjast koma af fjöllum. Alþingi er samsekt þótt bráðum áratugur sé liðinn frá hruni. Það er sök Alþingis ef meintar sakir eru fyrndar. Þetta sýnir að ekki duga mannaskipti á Alþingi, þar þarf flokkaskipti, alger umskipti. Við þurfum að lyfta lokinu áður en tunnan springur. Refsileysi Ábyrgðarleysi eða refsileysi (e. impunity) kann að vera hluti Sektarnýlendan Þorvaldur Gylfason Í dag skýringarinnar á ýmsu atferli sumra stjórnmálamanna svo sem hrunið vitnar um. Sumir stjórn- málamenn virðast umgangast lög og siði frjálslega í trausti þess að leyndin haldi og hámarksrefsing sé fylgistap í kosningum ef út af ber. Fv. dómsmálaráðherra lýsti þessu svo eftir hrun að kjörklefar, ekki fangaklefar, séu réttur betrunar- vettvangur fyrir stjórnmálamenn sem brjóta af sér – mitt orðalag, ekki hans. Í þessu ljósi þarf að skoða tal sumra stjórnmálamanna um að nema þurfi úr stjórnar- skránni ákvæði um Landsdóm. Þeir tala svona án þess að nefna að frumvarpið að nýrri stjórnar- skrá sem 2/3 hlutar kjósenda lýstu stuðningi við í þjóðaratkvæða- greiðslu 2012 geymir í stað gamla ákvæðisins um Landsdóm nýtt ákvæði um ráðherraábyrgð og rannsókn á meintum embættis- brotum ráðherra. Nú býst Alþingi, sektarnýlendan sjálf sem aðeins 22% kjósenda sögðust treysta 2016 skv. könnun Gallups, til að setja reglur um hvernig refsa beri ráðherrum fyrir brot gegn lögum og stjórnar- skrá. Þau virðist ekki varða um að hvort sem ákvæði um Landsdóm í stjórnarskránni frá 1944 eru úrelt eða ekki þá verða menn þar til nýja stjórnarskráin tekur gildi að virða stjórnarskrárvarinn rétt þeirra sem vilja draga brotlega ráðherra fyrir Landsdóm. Hneykslið eftir hrun var ekki að meiri hluti þingsins skyldi ákveða að neyta þessa réttar síns heldur hitt að sumir þing- menn létu lög og rétt sigla lönd og leið þegar til kastanna kom til að hlífa pólitískum samherjum. Það er svarti bletturinn á Alþingi í þessu máli. Nýja stjórnarskráin leysir málið sumpart að bandarískri fyrirmynd þar sem þingnefnd ákveður hvort „hefja skuli rann- sókn á meintum embættisbrotum ráðherra“. Virka daga 10:00 - 18:00 Laugardaga 11:00 - 16:00 OPNUNARTÍMAR Reykjavík • Hallarmúla 2 • 563 6900 | Akureyri • Undirhlíð 2 • 430 6900 6. apríl 2017 • Birt m eð fyrirvara um breytingar, innsláttarvillur og m yndabreng Glæsileg lúxustölva með allri nýjustu tækni Ný leikjalína frá Acer, baklýst leikjalyklaborð 129.990 159.990ACER E5 575Með silkiskornu álbaki, öflugu 2GB GeForce GTX950M leikjaskjákorti ACER VX5 i5 Ofur leikjafartölva með öflugu 4GB GeForce GTX1050 leikjaskjákorti www.tolvutek.is FARTÖLVUR HEITUSTU FARTÖLVURNAR ÚR 8BLS FERMINGARBÆKLINGNUM 15” FHD LED 1920x1080 ComfyView skjár Intel i5 7200U 3.1GHz Dual Core örgjörvi 8GB minni DDR4 2133MHz 512GB SSD M.2 diskur 4 LITIR 99.990ACER SWIFT 3Úr gegnheilu áli með 2.0 Dolby Audio hljóðkerfi og öflugt þráðlaust AC net Fislétt úr Ultra-Thin All-Metal línu Acer 14” FHD LED 1920x1080 ComfyView skjár Intel i3 7100U 2.4GHz Dual Core örgjörvi 8GB minni DDR4 2133MHz 256GB SSD NVMe diskur BAKLÝSING VERÐ ÁÐUR 119.990 FERMINGARTILBOÐ VERÐ ÁÐUR 149.990 FERMINGARTILBOÐ ASPIRE ES1-523 Glæsileg og fislétt fartölva frá Acer á ótrúlegu verði 69.990 15” HD LED 1366x768 AntiGlare skjár AMD E1-7010 Dual-Core 1.5GHz örgjörvi 8GB minni DDR3 1600MHz 256GB SSD diskur ASPIRE E5-553 Lúxus útgáfa með silki skorið álbak og nýjustu tækni 99.990 15” FHD LED 1920x1080 ComfyView skjár AMD A10-9600P 3.3GHz Turbo Quad Core örgjörvi 8GB minni DDR4 1866MHz 256GB SSD M.2 diskur ACER CHROMEBOOK Fislétt og örþunn með Google Chrome stýrikerfi 69.990 14” FHD IPS 1920x1080 ComfyView INTEL N3160 2.24GHz Quad Core örgjörvi 4GB minni DDR3 1600MHz 32GB SSD eMMC diskur CRUZ BAKPOKAR Vandaðir fartölvubakpokar frá Trust 6.990 SIDNEY SLIM TÖSKUR Vandaðar fartölvutöskur frá Trust 4.990 UNIVERSAL T DOKKA Universal USB 3.0 fartölvudokka 24.990 VERÐ ÁÐUR 169.990 FERMINGARTILBOÐ VERÐ ÁÐUR 79.990 FERMINGARTILBOÐ 15” FHD LED 1920x1080 ComfyView INTEL i5 7300HQ 3.5GHz Turbo Quad Core örgjörvi 8GB minni DDR4 2400MHz 256GB SSD M.2 diskur 4GB GDDR5 LEIKJALYKLA-BORÐ BAKLÝST IRON RED MLL42N/A 13” IPS i5 6360U 8GB minni 256GB SSD 13” RETINA MacBook Pro Retina Space Gray 229.990 HERSCHEL FARTÖLVUTÖSKUR Nýlentar glæsilegar Herschel töskur FRÁ 6.990 8 B LS BÆ KL ING UR S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 21F i M M T u d a g u R 6 . a p R Í L 2 0 1 7 0 6 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 0 7 2 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 9 E -1 F 2 8 1 C 9 E -1 D E C 1 C 9 E -1 C B 0 1 C 9 E -1 B 7 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 A F B 0 7 2 s _ 5 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.