Fréttablaðið - 06.04.2017, Blaðsíða 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —8 2 . t ö l u b l a ð 1 7 . á r g a n g u r F i M M t u d a g u r 6 . a p r Í l 2 0 1 7
FrÍtt
Fréttablaðið í dag
skoðun Þorvaldur Gylfason
skrifar um sektarnýlenduna. 21
Menning Þorleifur Örn Arnars-
son hefur sterkar skoðanir á
leikhúsinu, samfélaginu og sam-
bandinu þar á milli. 40
lÍFið Kött Grá Pjé, Friðrik Ómar
og fleiri segja frá verstu störf-
unum sem þeir hafa unnið. 48
plús sérblað l Fólk
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
-20%
AF ÖLLUM
MATAR- & KAFFISTELLUM
FIMMTUDAG, FÖSTUDAG
OG LAUGARDAG
STELLADAGAR
LAUGAVEGI 178 – SÍMI 568 9955
M I Ð N Æ T U R
S P R E N G J A
OPIÐ TIL 24 Í KVÖLD
FjölMiðlar Nýir aðilar eru á leið
inn í eigendahóp Fréttatímans og
verður tilkynnt um breytt eignar-
hald á næstu dögum, samkvæmt
heimildum. Gunnar Smári Egilsson,
stærsti eigandi útgáfufélagsins, mun
samhliða hætta afskiptum af blað-
inu. Starfsmannafundur var haldinn
í gær þar sem framtíð útgáfunnar
var rædd. Rekstur Fréttatímans
hefur verið þungur undanfarna
mánuði og fengu sumir starfsmenn
ekki greidd laun á réttum tíma um
mánaðamótin. – aó
Fréttatíminn fær
nýja eigendur
„Mér líður eins og þetta sé skilnaður,“ segir Aðalheiður Gunnarsdóttir sem fær ekki að dvelja með eiginmanni sínum til 65 ára, Stefáni Þórarinssyni, á öldrunarheimili
á Akureyri. Hún er metin of heilsuhraust til að fá pláss með eiginmanni sínum. „Vonandi venst þetta og við finnum lausn,“ segir hún. Sjá síðu 8 Fréttablaðið/auðunn
Hægri höndin veit ekki
hvað sú vinstri gerir
Ríkisendurskoðun segir að ríkisstofnanir sem sjá um ferðamál séu í ólestri.
Skörun verði á stofnunum og hægri höndin viti ekki hvað sú vinstri sé að gera.
Þessu vísar Óskar Jósefsson, framkvæmdastjóri Stjórnstöðvar ferðamála, á bug.
lögregluMál Lögreglan á höfuðborg-
arsvæðinu rannsakar nú mál tveggja
karlmanna frá Rúmeníu en grunur
leikur á að þeir séu fórnarlömb vinnu-
mansals. Rúmenarnir höfðu samband
við Rauða kross Íslands um helgina og
óskuðu eftir aðstoð.
Samkvæmt upplýsingum blaðsins
óttuðust mennirnir mjög um öryggi
sitt. Vinnuveitandi þeirra mun hafa
tekið vegabréf þeirra, beitt þá harð-
ræði og haft í hótunum. Rannsókn er
á byrjunarstigi hjá lögreglu. – aó
Rannsaka grun
um mansal
Ferðaþjónusta Afmörkun verkefna
og ábyrgð stofnana sem sjá um ferða-
mál er óskýr að mati Ríkisendurskoð-
unar sem gagnrýnir stefnu- og skipu-
lagsleysi í nýrri úttekt.
Sem dæmi um þetta nefnir Ríkis-
endurskoðun að Stjórnstöð ferðamála,
sem sett var á laggirnar árið 2015, eigi
að sinna mörgum af sömu verkefnum
og Ferðamálastofa á að sinna.
Skörun er greinileg í verkefnum
sem varða þróunar-, gæða- og skipu-
lagsmál ferðaþjónustu og markaðs-
og kynningarmál. Þetta er í annað
sinn sem Ríkisendurskoðun bendir á
þessi atriði en ekki hefur verið brugðist
nægjanlega við og því talin ástæða til
að hefja forkönnun stjórnsýsluúttektar
á stjórnsýslu ferðamála vegna þróunar
innan málaflokksins.
Óskar Jósefsson, framkvæmdastjóri
Stjórnstöðvar ferðamála, segist ekki
skilja gagnrýni Ríkisendurskoðunar og
er ekki sáttur við niðurstöðu hennar.
„Ég skil ekki alveg hvert Ríkisendur-
skoðun er að fara með þessari skýrslu
því við komum ekki að markaðs- og
kynningarmálum. Íslandsstofa og
Ferðamálastofa sjá um þau.
Varðandi gæðamál komum við ekki
nálægt þeim heldur enda erum við
ekki stjórnsýsluleg stofnun sem hefur
ekki boðvald yfir neinum. Við erum
aðallega í því að leiða umræður þvert
á málefnasviðinu því ferðaþjónustan
hefur skörun um mörg ráðuneyti. Hún
hefur ekki skýran ramma eins og til
dæmis sjávarútvegur.“
Hann segist víða hafa rekist á veggi
frá því stofnunin var sett á laggirnar.
„Menn virðast eiga erfitt með, sérstak-
lega stofnanir ríkisins, að lifa í þeim
heimi að það sé til eitthvað sem leyfir
umræðu en hefur ekki boðvald.
Við erum ekki að taka hlutverk af
einum eða neinum en við getum feng-
ið stofnanir til að tala saman. Þær geta
líka sagt nei við því og þá er lítið sem
við getum gert. Ég keyri þvert á kerfið
og ráðherrar og atvinnugreinin verða
að taka á því ef einhverjir sem þurfa að
vinna saman vilja það ekki.
Ég bara verð að viðurkenna að ég hef
ekki hugmynd um hvert Ríkisendur-
skoðun er að fara með þetta.“
Ekki náðist í Ólöfu Ýri Atladóttur
ferðamálastjóra, Þórdísi Kolbrúnu R.
Gylfadóttur ferðamálaráðherra eða
Ólaf Teit Guðnason, aðstoðarmann
hennar, við vinnslu fréttarinnar.
benediktboas@365.is
Ég hef ekki hug-
mynd um hvert
Ríkisendurskoðun er að fara.
Óskar Jósefsson, framkvæmdastjóri
Stjórnstöðvar ferðamála
0
6
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
9
E
-0
1
8
8
1
C
9
E
-0
0
4
C
1
C
9
D
-F
F
1
0
1
C
9
D
-F
D
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
7
2
s
_
5
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K