Fréttablaðið - 06.04.2017, Blaðsíða 6
Viðskipti Nefndarmenn í efnahags-
og viðskiptanefnd Alþingis líta svo á
að ríkið hafi ekki heimild til að nýta
sér forkaupsrétt að hlutnum sem
Goldman Sachs og þrír vogunarsjóðir
keyptu í Arion banka, samkvæmt
heimildum Fréttablaðsins. Þetta sé
skoðun þeirra eftir að Steinar Þór
Guðgeirsson, sérstakur eftirlitsmaður
stjórnvalda inni í Kaupþingi við sölu-
ferlið á Arion banka, mætti á lokaðan
fund nefndarinnar í gær.
Samkvæmt stöðugleikaskilyrðum
sem kröfuhafar Kaupþings féllust á í
tengslum við nauðasamninga 2015
hafa stjórnvöld heimild til að ganga
inn í kaup ef hlutur í Arion banka er
seldur á undir 80 prósentum af eigin
fé bankans hverju sinni.
Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son, fyrrverandi forsætisráðherra,
ásamt tveimur öðrum þingmönnum
Framsóknarflokksins lagði fram
þingsályktunartillögu í síðustu viku
þar sem kallað er eftir því að Alþingi
feli fjármálaráðherra að nýta þann
forkaupsrétt. Í tillögunni er bent á
að hluturinn hafi verið seldur undir
genginu 0,8 miðað uppgjör Arion
banka í árslok 2016.
Á nefndarfundinum í gær kom hins
vegar fram að samkomulagið við vog-
unarsjóðina og Goldman Sachs hafi
miðast við þriðja ársfjórðung 2016
og gengið sé því yfir 80 prósentum af
eigin fé. Það sé einnig tilfellið ef farið
er algjörlega eftir enska textanum í
samningnum og miðað við árslok
2015, en þá væri gengið langt fyrir
ofan. Því sé ljóst að forkaupsrétturinn
sé úti.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins vilja nefndarmenn í efna-
hags- og viðskiptanefnd að Fjár-
málaeftirlitið framkvæmi hæfismat
á nýju hluthöfunum í Arion banka,
þrátt fyrir að enginn þeirra fari nú
með virkan eignarhlut. Forsvarsmenn
FME hafa áður gefið út að undirbún-
ingur að slíku hæfismati sé nú þegar
hafinn. Þrír hinna nýja hluthafa Arion
banka hafi enda þegar upplýst FME
um að þeir hafi hug á því að fara með
virkan eignarhlut síðar á árinu.
Fréttablaðið greindi frá því í gær að
Fjármálaeftirlitið telji sig geta upplýst
um hverjir endanlegir eigendur séu á
hlutnum aukist hlutur hvers þeirra í
yfir 10 prósent og að þeir fari þá með
virkan eignarhlut. Kallað hefur verið
eftir því að eignarhaldið verði skýrt
áður en slíkt gerist.
Jónas Fr. Jónsson, fyrrverandi for-
stjóri Fjármálaeftirlitsins, telur að það
þurfi að skoða hvort kominn sé virkur
eignarhlutur hjá vogunarsjóðunum
með þessum kaupum og núverandi
aðkomu þeirra að Kaupþingi og þeirri
fyrirætlun sem virðist koma fram í
kauprétti, að eignast meira í bank-
anum. saeunn@frettabladid.is
Forkaupsrétturinn úti
Samkvæmt heimildum er ljóst að kaup erlendra vogunarsjóða á hlut í Arion
banka hafi verið yfir genginu 0,8 og því geti ríkið ekki nýtt sér forkaupsrétt.
569 6900 8–16www.ils.is
Stofnframlög til
uppbyggingar
Leiguheimila
Íbúðalánasjóður boðar til hádegisverðarfundar í dag
Borgartúni 21, kl. 11–12.30, þar sem tilkynnt er um
síðari úthlutun stofnframlaga fyrir 2016.
Dagskrá
Úthlutun stofnframlaga
Laufey L. Sigurðardóttir,
verkefnisstjóri stofnframlaga
Húsnæðisáætlanir sveitarfélaga
Sigrún Ásta Magnúsdóttir
Leiguheimili Íbúðafélagsins Bjargs
Björn Traustason, framkvæmdastjóri
Hagkvæmt húsnæði
Ólöf Guðný Valdimarsdóttir og Björn Hallsson
Stofnframlög eru framlög sem Íbúðalánasjóður
veitir fyrir hönd ríkisins til uppbyggingar á
hagkvæmum leiguíbúðum, eða Leiguheimilum.
Nánari upplýsingar
ils.is/stofnframlog
leiguheimili.ils.is
333 krá dag*
365.is Sími 1817
*9.990.- á mánuði.
Ákvæði var sett í lög um
að ef hlut ur í Ari on banka
yrði seld ur á lægra verði en
sem næmi 80 prósentum af
eig in fé bank ans gæti ríkið
neytt for kaups rétt ar.
Eftir hamfarirnar
Þessi íbúi bæjarins Mocoa í Kólumbíu sótti nothæfar eigur sínar á heimili sitt í gær. Aurskriða féll á bæinn um
helgina með þeim afleiðingum að 273 létu lífið. Þá eyðilögðust vegir, sjúkrahús og aðrir innviðir bæjarins.
Íbúar dvelja nú í búðum skammt frá bænum og er endurbygging Mocoa komin af stað. Nordicphotos/AFp
Viðskipti Samkvæmt heimildum
Fréttablaðsins hafa þýskir blaða-
menn haft samband við þýska
bankann Hauck & Aufhäuser vegna
hlutdeildar hans í blekkingu um
raunverulegt eignarhald í Búnaðar-
bankanum en fá svör fengið.
Þýskir miðlar vinna um þessar
mundir að umfjöllun um söluna á
hlut ríkisins í Búnaðarbankanum
árið 2003 og það að aðkoma þýska
bankans Hauck & Aufhäuser hafi
verið til málamiðla. Blaðamenn
hafa haft samband við forsvars-
menn bankans en samkvæmt
heimildum fá þeir þau svör að
þeir þekki ekki innihald skýrslu
rannsóknarnefndar Alþingis um
málið og þar sem hún sé á íslensku
muni þeir ekki geta lesið hana sem
stendur né veitt viðbrögð við inni-
haldi hennar.
Einnig segja forsvarsmenn bank-
ans að þeir geti ekki brotið trúnað
um samninga við viðskiptavini
sína. Þá séu tæplega fimmtán ár
síðan samningar voru gerðir og að
starfsmenn sem áttu aðild að þeim
hafi ekki unnið hjá fyrirtækinu í
langan tíma. – sg
Fátt um svör frá þýska bankanum
6 . a p r í l 2 0 1 7 F i M M t U D a G U r6 F r é t t i r ∙ F r é t t a B l a ð i ð
0
6
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
9
E
-2
D
F
8
1
C
9
E
-2
C
B
C
1
C
9
E
-2
B
8
0
1
C
9
E
-2
A
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
7
2
s
_
5
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K