Fréttablaðið - 06.04.2017, Blaðsíða 54

Fréttablaðið - 06.04.2017, Blaðsíða 54
Mér finnst þetta ætla að verða skemmtileg sýn-ing. Hér eru verk f rá árdögum íslenskrar mynd- listar og allt til samtímans, breitt úrval og mikil fjölbreytni,“ segir Rakel Pétursdóttir safnafræðingur um sýninguna Fjársjóður þjóðar sem verið er að setja upp í Listasafni Íslands við Fríkirkjuveg. Sýningin er sett upp í tímaröð og byrjar í austur- sal efri hæðar þar sem Sumarnótt – Lómar við Þjórsá eftir Jón Stefánsson tekur á móti gestum. Fyrstu áratugina byggðist safn- eignin upp á höfðinglegum gjöfum, að sögn Rakelar, fyrst málverkum eftir erlenda listamenn en upp úr aldamótunum 1900 urðu verk eftir Íslendinga æ meira áberandi. „Hér eru mörg þekkt verk innan um önnur sem ekki hafa verið sýnd oft áður, að minnsta kosti ekki síðan safnið flutti hingað á Fríkirkjuveg. Myndir eftir erlenda listamenn sem komu hingað í leiðangra, gagngert til að mála, stundum að tilhlutan konungsins. Eflaust hafa þær myndir haft mótandi áhrif á þá sem þær sáu.“ Rakel vekur athygli á gömlum skáp úr Safnahúsinu við Hverfis- götu, hann geymir nokkur þrívíð verk. „Hér er verið að vísa í söguna,“ segir hún og bendir líka á lágmynd af Klettafjallaskáldinu Stephan G., eftir Ríkarð Jónsson myndskera. Abstraktmynd eftir bróður hans, Finn Jónsson, frá 1925 stingur í stúf við önnur verk í þessum sal. „Finnur fór til Þýskalands og kynntist þar framúrstefnu í myndlist en fékk litlar undirtektir á sýningu sem hann hélt hér heima þetta ár, 1925,“ lýsir Rakel. Bassabáturinn, stórt lykilverk hjá Gunnlaugi Scheving, sýnir tvo menn um borð í bát að leggja línu og Rakel segir gamlan sjómann hafa sagt henni nákvæmlega allt um hlut- verk bassans í bátnum. „Í gegnum tíðina getur maður safnað ógrynni af sögum frá gestum sem koma á safnið sem bæta sífellt einhverju við verkin,“ segir hún og ætlar að gefa orðið laust af og til á sunnudaginn þegar hún verður með leiðsögn um þessa sýningu sem hefst klukkan 14. Þar ætlar hún að fara yfir sögu og þróun myndlistar á Íslandi með vísun í erlenda strauma og stefnur. „En ég ætla ekki að tala allan tím- ann. Mig langar líka að gefa gestum tækifæri til að spjalla um þessi verk,“ segir hún. Tvær myndir eftir Edvard Munch prýða veggi salarins og vatnslita- myndir eftir Sölva Helgason sem kallaði sig Sólon Íslandus eru í einu horninu, auk þess sem Muggur kemur við sögu. Kristín Jónsdóttir var ein af fyrstu íslensku konunum sem gaf sig list- inni á vald. Konur við þvotta og að breiða fisk á tún voru meðal yrkis- efna hennar. Júlíana Sveinsdóttir kom í kjölfar hennar. Rakel segir þátttöku kvenna í myndlist á Íslandi merkilega og nefnir Þóru Péturs- dóttur sem stofnaði teikniskóla sem Þórarinn B. Þorláksson sótti tíma í. Nýrri verk eru í næsta sal. Rakel vekur athygli á Skilningstré Kjarvals. „Mér finnst gaman að tengja þessa mynd við átökin í myndlistarlífinu, þegar formbyltingin var að ryðja sér til rúms. Hér er einkennilegt tré sem er hálf abstrakt og listamenn í kring á hestum eins og villuráfandi og vita ekki í hvaða átt þeir eiga að fara. En Kjarval blandaði sér aldrei persónu- lega í þessar deilur.“ Þarna eru verk eftir Guðmundu Andrésdóttur, Svavar Guðnason og Nínu Tryggvadóttur. Einnig Jón Eng- ilberts, Snorra Arinbjarnar og fleiri. Formrænt verk eftir Gerði Helga- dóttur og dansskúlptúr Ásmundar Sveinssonar spila skemmtilega saman á miðju gólfi og Nína Sæmundsdóttir á þar líka eitt. Nú færum við okkur yfir í vestur- salinn. Þar eru enn nýrri verk. Fánarnir eftir Birgi Andrésson sem var framlag Íslands á Feneyjatvíær- ingnum 1995, sem dæmi. Einnig ljósmyndaverk eftir Ólaf Elíasson og annað eftir Pétur Thomsen. SÚM- ararnir sem stóðu fyrir róttækri framúrstefnu í myndlist eiga þar sinn sess, Hreinn Friðfinnsson, Magnús Pálsson og Gylfi Gíslason sem mál- aði Fjallasúrmjólk 1971, með vísun í Fjallamjólk Kjarvals. Samsetningar Margrétar H. Blön- dal úr fundnu efni eru í þessum sal. Svo eiga Dieter Roth og bræðurnir Sigurður og Kristján Guðmundssynir verk þar líka. „Kristján sagði ein- hvern tíma eitthvað á þá leið að listin ætti ekki að vera skoðanamyndandi heldur vitundarmótandi. Kristján er ekki maður margra orða en þegar hann segir eitthvað er það mjög djúpt,“ segir Rakel með lotningu. Rakel segir mikilvægt að lyfta fram verkum genginna kynslóða en líka gaman að setja þau í nýtt samhengi til að læra eitthvað nýtt. „Mynd- listin skapar sjálfsmynd okkar sem þjóðar,“ bendir hún á. Hún segir það breiðan hóp sem sæki sýningar og þær gefi mörgum mikið. „Það er til dæmis gaman að fá hingað börn og ungmenni sem verða alveg hugfangin og skoða og rannsaka sjálf. Í mínum huga er safn- ið menntastofnun. Ég lít á það sem mannréttindi að allir hafi aðgang að þeim menningararfi okkar sem það geymir.“ Myndlistin skapar sjálfsmynd okkar sem þjóðar Á sýningunni Fjársjóður þjóðar sem opnuð verður á laugardaginn er úrval verka úr safneign Listasafns Íslands, sem gefur yfirlit yfir þróun myndlistar á Íslandi frá öndverðri nítjándu öld til okkar daga. „Í mínum huga er safnið menntastofn- un,“ segir Rakel um Listasafn Íslands. Hún verður með leiðsögn um sýninguna Fjár- sjóður þjóðar á sunnudaginn klukkan 14. FRéttabLaðið/ ViLHeLm Íslandslag – verk eftir Svavar Guðnason af umdeildri sýningu 1945. mynd/LiStaSaFn ÍSLandS Gunnþóra Gunnarsdóttir gun@frettabladid.is Hér eru mörg þekkt verk innan um önnur sem ekki HaFa verið sýnd oFt Áður, að minnsta kosti ekki sÍðan saFnið FLutti Hingað Á FrÍkirkju- veg. 6 . a p r í l 2 0 1 7 F I M M T U D a G U r38 M e n n I n G ∙ F r É T T a B l a ð I ð menning 0 6 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 0 7 2 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 9 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 9 E -0 B 6 8 1 C 9 E -0 A 2 C 1 C 9 E -0 8 F 0 1 C 9 E -0 7 B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 2 A F B 0 7 2 s _ 5 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.