Fréttablaðið - 06.04.2017, Blaðsíða 50
Þetta er alveg frábært, við fáum fullt af frábærum hópum frá öllum heimshornum og dagskrá-
in er þéttskipuð,“ segir Dóra Jóhanns-
dóttir, leikkona og listrænn stjórnandi
hátíðarinnar og Improv Íslands.
Dóra lærði spunatækni í Upright
Citizens Brigade í New York í þrjú ár
en frá því hún stofnaði Improv Ísland
er óhætt að segja að áhugi fyrir spuna
hafi aukist töluvert á Íslandi.
„Ég byrjaði með Improv Ísland
hópinn fyrir tveimur árum síðan, við
höfum reglulega fengið gestakennara
til landsins sem hefur vakið mikla
lukku. Það var komin hálfgerð pressa
á að fara að halda almennilegt festi-
val svo við létum bara verða af því og
hingað eru komnir átta frábærir spuna-
hópar,“ segir Dóra.
Hóparnir koma frá Bandaríkjunum,
Bretlandi, Frakklandi og Svíþjóð og
óhætt er að segja að fram undan sé
spunaveisla, þar sem meðal annars
færustu spunaleikarar Bandaríkjanna
koma fram.
„Þetta eru mjög skemmtilegir hópar
og þetta verður frábær skemmtun. Við
ljúkum svo hátíðinni á Græna herberg-
inu með svokölluðu Indie Show, þar
sem öllum sjálfstæðum spunahópum
er velkomið að sýna,“ segir Dóra.
Spunasýningarnar verða margs
konar, hiphop-söngleikur, kabarett-
sóló, spunnin verður hasarbíómynd
og ein spunasýningin gerist í dómsal
þar sem áhorfendur lenda í hlutverki
kviðdómenda svo að einhver dæmi
séu tekin. Hátíðin er opin öllum og
fara sýningarnar meðal annars fram í
Þjóðleikhúskjallaranum, Kassanum og
í Græna herberginu.
„Passinn á hátíðina kostar 5.900
krónur en hægt verður að koma og
kaupa sig inn á stakt kvöld við inngang-
inn,“ segir Dóra og hvetur sem flesta til
að mæta og láta ekki þessa frábæru
skemmtun fram hjá sér fara.
Fyrr í vikunni bárust þær fréttir að
Improv Island spunahópnum væri
boðið á Del Close spuna-maraþonið,
stærsta spunafestival í heimi. Hópur-
inn hefur áður farið og sýndi þá rétt á
undan grínistanum og stórleikkonunni
Amy Poehler, en hún er einmitt einn af
stofnendum maraþonsins.
„Þetta eru alveg frábærar fréttir fyrir
okkur. Það eru mörg þúsund hópar sem
sækja um, en aðeins um 700 hópar sem
taka þátt í festivalinu, þetta er algjör-
lega frábært, sýndar eru sýningar í níu
leikhúsum í New York, í 72 klukkutíma
samfleytt,“ segir Dóra og bætir við að
meðal þeirra sem sýnt hafa á hátíðinni
séu Amy Poehler, Ellie Kemper, höf-
undar Inside Amy Schumer, Broad City,
30 Rock og fleiri af helstu grínistum
Bandaríkjanna.
gudrunjona@frettabladid.is
Spunafestival haldið
í fyrsta sinn á Íslandi
Dóra Jóhannsdóttir hefur stýrt spunahópnum Improv Ísland síðastliðin tvö ár.
Hópurinn stendur fyrir sínu fyrsta spunafestivali, The Reykjavík International
Improv Festival, sem hófst með sýningu hópsins í Þjóðleikhúskjallaranum í gærkvöldi.
648 f. Kr. Fyrsti sólmyrkvinn sem skriflegar heimildir eru til
um. Skráður af Forn-Grikkjum.
1652 Hollenski skipstjórinn Jan van Riebeeck stofnar
birgðastöð á Góðrarvonarhöfða. Út frá henni reis Höfða-
borg síðar.
1917 Bandaríkin lýsa stríði á hendur Þjóðverjum.
1961 Gamli spítalinn á Akureyri (byggður 1836)
stórskemmist af eldi.
1979 Vikublaðið Helgarpósturinn kemur út í Reykjavík.
1979 Úthlutað úr Kvikmyndasjóði í fyrsta sinn.
1979 Zulfikar Ali Bhutto, forseti Pakistans, er tekinn af lífi.
1989 Verkfall 2.100 háskólamanna í þjónustu ríkisins hefst;
því lýkur 18. maí.
2000 Meirihluti Hæstaréttar dæmir útgerð Vatneyrar til að
greiða sektir fyrir veiðar án aflaheimildar.
Merkisatburðir
Festivalið er hugarfóstur Dóru Jóhannsdóttur sem er jafnframt listrænn stjórnandi hátíðarinnar. Fréttablaðið/Vilhelm
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir og amma,
Guðrún Ágústa Lárusdóttir
Vesturbergi 18,
Reykjavík,
lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
laugardaginn 1. apríl. Útförin fer fram frá
Fella- og Hólakirkju þriðjudaginn 11. apríl kl. 13.00. Þeim
sem vilja minnast hennar er bent á Oddssjóð, Reykjalundi.
Marinus Schmitz
Lárus S. Marinusson Guðlaug Helga Ásgeirsdóttir
Sigurður Marinusson Irma Schortinghuis
Viktoría Marinusdóttir Gísli Már Finnsson
Einar Daði, Guðný Helga og Elías Hlynur
Jurjen Sindri og Arnar Smári
Viktor Smári og Lovísa Kristín
Ástkær faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
Einar Karlsson
Lækjasmára 6, Kópavogi,
sem lést þann 20. mars, verður
jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Reykjavík
föstudaginn 7. apríl kl. 13.00.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim sem
vilja minnast hans er bent á Alzheimersamtökin.
Þorkell Einarsson Steinunn Árnadóttir
Lilja Einarsdóttir Kjartan J. Kjartansson
Ástríður I. Einarsdóttir
Karl Trausti Einarsson Ástríður S. Thorsteinsson
barnabörn og barnabarnabarn.
Kær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Þórdís Steinsdóttir
(Dídí)
Sólvangsvegi 1, Hafnarfirði,
lést fimmtudaginn 23. mars á Hrafnistu í
Hafnarfirði. Að hennar ósk fór útförin fram í
kyrrþey. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug.
Bestu þakkir einnig til starfsfólks Hrafnistu í Hafnarfirði
fyrir góða umönnun.
María Þ. Gunnlaugsdóttir
Guðmundur S. Gunnlaugsson Vilborg Sigurðardóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
Jóna Berta Jónsdóttir
heiðursborgari Akureyrar,
Lindasíðu 4,
lést sunnudaginn 2. apríl.
Útför hennar fer fram frá Akureyrarkirkju
föstudaginn 7. apríl kl. 13.30. Þeim sem vilja minnast
hennar er bent á Mæðrastyrksnefnd Akureyrar.
Þorgerður, Guðmundur, Sigurður
og fjölskyldur.
Okkar ástkæra móðir, tengdamóðir,
amma og langamma,
Fjóla Oddný Sigurðardóttir
Lækjasmára 2, Kópavogi,
lést á heimili sínu miðvikudaginn
29. mars. Útför hennar fer fram frá
Kópavogskirkju föstudaginn
7. apríl klukkan 15.00.
Gylfi Kristinn Sigurgeirsson Bryndís S. Eiríksdóttir
Bára Guðlaug Sigurgeirsdóttir
Ásdís Sigurgeirsdóttir Viðar Elliðason
Inga Hulda Sigurgeirsdóttir
Guðlaugur Sigurgeirsson Guðrún Björg Bragadóttir
Guðbjörg Sigurgeirsdóttir Kjartan Magnússon
barnabörn og barnabarnabarn.
Elskulegur bróðir minn,
mágur og frændi,
Björgvin Jakobsson
Dalbraut 27,
lést á Landspítalanum Fossvogi þann
29. mars. Útför hans fer fram frá
Grafarvogskirkju fimmtudaginn
6. apríl kl. 13.00.
Jóhann Jakobsson, Unnur Ólafsdóttir
Anna Einarsdóttir og systkinabörn hins látna.
6 . a p r í l 2 0 1 7 F I M M T U D a G U r34 T í M a M ó T ∙ F r É T T a B l a ð I ð
tímamót
0
6
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
9
E
-3
2
E
8
1
C
9
E
-3
1
A
C
1
C
9
E
-3
0
7
0
1
C
9
E
-2
F
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
7
2
s
_
5
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K