Fréttablaðið - 06.04.2017, Blaðsíða 48

Fréttablaðið - 06.04.2017, Blaðsíða 48
Golf Aprílmánuður er runninn upp og um leið gósentíð fyrir golf- áhugamenn úti um allan heim. Fyrsta risamót ársins er einn af hápunktum golfársins þar sem augu flestra íþróttaáhugamanna eru á Augusta-vellinum í Georgíu- fylki. Íslendingar fá þetta sögulega golfmót beint í æð á Golfstöðinni og er búist við spennandi keppni þar sem margir eru kallaðir. Golfáhugamenn eru fyrir löngu hættir að pæla í Tiger Woods sem missir af enn einu risamótinu vegna meiðsla en í hans stað eru komnir upp ungir frábærir kylf- ingar sem hafa fyrir löngu tekið við keflinu. Erfitt að standast pressuna Það er hins vegar ekki auðvelt að vera með pressuna á sér fyrir Mast- ersmótið sem sést vel á því að sá sigurstranglegasti hefur ekki unnið mótið síðan Tiger Woods vann árið 2005. Sá sem margir horfa til að þessu sinni er Dustin Johnson, efsti maður á heimslistanum. Dustin Johnson hefur spilað frábærlega undanfarna níu mánuði. Hann getur ekki hætt að vinna golfmót og er á toppi ferilsins bæði líkamlega og andlega. Dustin hefur líka verið meðal efstu mann á Mastersmótinu undanfarin tvö ár, varð í sjötta sæti 2015 og í fjórða sæti í fyrra. Dustin fylgdi eftir Mastersmótinu í fyrra með því að vinna sitt fyrsta risa- mót á opna bandaríska í júní. Hann hefur unnið sjö af 17 mótum sem hann hefur keppt á síðan. Golf er fyndin íþrótt „Golf er fyndin íþrótt. Það skiptir engu máli hversu vel þú ert að spila þú getur samt sem áður ekki unnið. Ef ég á að vinna hér þá verður allt að ganga upp hjá mér. Ég kem samt inn á mótið með mikið sjálfstraust eftir góða spila- mennsku síðustu vikurnar,“ sagði Johnson. Dustin Johnson hefur ekki enn fengið að klæðast græna jakkanum og annar frábær kylfingur í þeim Ríkja þeir ungu áfram á Augusta? Fyrsta risamót ársins í golfi, Mastersmótið á Augusta-vellinum, hefst í dag og heimurinn fylgist vel með. Marga kylfinga dreymir um að fá að klæðast græna jakkanum. Tveir efstu menn heimslistans eru í þeim hópi. Síðustu ár hafa ungir kylfingar slegið í gegn á mótinu. Jordan Spieth kastaði frá sér sigrinum á Mastersmótinu í fyrra og þurfti síðan að klæða sigurvegarann, Danny Willett, í græna jakkann enda hlutverk sigurvegara ársins á undan. NorDicPhotoS/GEtty Sex sigurstranglegir á Mastersmótinu í golfi árið 2017 Phil Mickelson 46 ára Bandaríkjamaður Besti árangur: Vann mótið 2004, 2006 og 2010 18. sæti á heimslist- anum Justin rose 36 ára Englendingur Besti árangur: 2. sæti 2015 14. sæti á heimslist- anum Jason Day 29 ára Ástrali Besti árangur: 2. sæti 2011 3. sæti á heimslist- anum rory Mcilroy 27 ára Norður-Íri Besti árangur: 4. sæti 2015 2. sæti á heimslist- anum Dustin Johnson 32 ára Bandaríkjamaður Besti árangur: 4. sæti 2016 1. sæti á heimslist- anum hópi er Norður-Írinn Rory McIlroy. Rory McIlroy hefur ekki aðeins tækifæri til að vinna Mastersmótið í fyrsta sinn því hann getur með sigri lokað risamótahringnum. Lokar hann hringnum? McIlroy hefur unnið öll hin risa- mótin eða opna bandaríska (2011), opna breska (2014) og PGA-meist- aramótið (2012 og 2014). Það hefur aðeins fimm öðrum kylfingum tek- ist að vinna öll risamótin og þeir eru Jack Nicklaus, Tiger Woods, Gene Sarazen, Gary Player og Ben Hogan. McIlroy hefur verið á topp tíu á síðustu þremur Mastersmót- um en besti árangur hans er fimmta sætið 2015. Rory McIlroy er aðeins 27 ára gamall og gæti því haldið við hefð síðustu tveggja ára þar sem sigur- vegararnir hafa verið á þrítugsaldri. Það hefur aldrei gerst þrjú ár í röð í 83 ára sögu Mastersmótsins sem er nú haldið í 81. sinn. Menn búast ekki við miklu af Englendingnum Danny Willett sem vann mjög óvænt í fyrra. Það er hins vegar ekki sömu sögu að segja af Jordan Spieth, sigurvegaranum frá 2015. Algjört klúður hjá Spieth Spieth var reyndar á góðri leið með að vinna annað árið í röð með fimm högga forskot á loka- deginum. Spieth brann yfir í lokin, tapaði sex höggum á aðeins þremur holum og missti titilinn til Willetts. Þessi 23 ára gamli kylfingur hafði ári fyrr jafnað met Tigers Woods með því að klára mótið á átján höggum undir pari. Spieth hefur samt aldrei endað neðar en í öðru sæti í þeim þremur Mastersmótum sem hann hefur tekið þátt í á ferlinum. Það fer ekkert á milli mála að Augusta-völlurinn var hans völlur eða alla vega fram á tíundu holu á fjórða hring fyrir einu ári. „Sama hvað gerist í ár, hvort sem ég vinn græna jakkann aftur eða næ ekki niðurskurðinum þá verður gott að komast í gegnum Mastersmótið í ár. Mastersmótið lifir í eitt ár og það dregur fólk að skjánum sem almennt horfir ekki á golf. Það verð- ur því gott að ljúka af mótinu í ár,“ segir Jordan Spieth og það fer ekkert á milli mála að martraðarendirinn í fyrra hefur plagað hann í tólf mán- uði. Á sama tíma hefur hann dottið niður í sjötta sæti heimslistans en fær nú frábært tækifæri til að eyða út slæmum minningum frá sunnu- deginum 10. apríl 2016. Annar sterkur kylfingur sem er hvorki orðinn þrítugur eða hefur fengið að klæðast græna jakkanum er Ástralinn Jason Day. Day er 29 ára gamall en hann brotnaði niður fyrir aðeins tveimur vikum þegar hann dró sig úr keppni til að verja tíma með móður sinni sem glímir við lungnakrabbamein. „Það hefur verið mikið í gangi hjá mér á þessu ári sem hefur tekið huga minn frá golfinu. Golf var það síðasta sem ég var að hugsa um þegar ég frétti af veikindum móður minnar en ég er á miklu betri stað núna,“ sagði Jason Day. Hann hefur verið í öðru sæti (2011) og þriðja sæti (2013) á Mastersmótinu en aldrei unnið. 18 af 94 kylfingum eiga jakka Margir fleiri koma til greina eins og reynsluboltarnir Phil Mickelson og Justin Rose. Bubba Watson hefur unnið Mastersmótið tvisvar (2012 og 2014) og Adam Scott vann í milli- tíðinni. Alls frá 94 kylfingar tækifæri í ár til að komast yfir græna jakk- ann eftirsótta en átján af þeim hafa unnið hann áður. Í íþróttum er einna erfiðast að spá fyrir um sigurvegara á risamóti og Mastersmótið er langt frá því að vera það auðveldasta af þeim fjórum. Sigurvegarinn í fyrra, Eng- lendingurinn Danny Willett, er gott dæmi um það. Ævintýrin á Augusta eru mörg og þótt þá stóru dreymi um græna jakkann þá endar hann oft á herð- um lítt þekktra kylfinga. Hvernig sem fer þá fylgjast allir golfáhuga- menn spenntir með. ooj@frettabladid.is Jordan Spieth 23 ára Bandaríkjamaður Besti árangur: Vann mótið 2015. (2. sæti 2014 og 2016) 6. sæti á heimslist- anum. Sama hvað gerist í ár, hvort sem ég vinn græna jakkann aftur eða næ ekki niðurskurð- inum, þá verður gott að komast í gegnum Masters- mótið í ár. Jordan Spieth 6 . a p r í l 2 0 1 7 f I M M T U D a G U r32 S p o r T ∙ f r É T T a B l a ð I ð 0 6 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 0 7 2 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 9 E -4 6 A 8 1 C 9 E -4 5 6 C 1 C 9 E -4 4 3 0 1 C 9 E -4 2 F 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 7 2 s _ 5 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.