Fréttablaðið - 06.04.2017, Side 70

Fréttablaðið - 06.04.2017, Side 70
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is, Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is Leikkonan Anna Haf-þórsdóttir hafði býsna mikla samúð með per-sónunni sem hún leikur í nýju myndinni Snjór og Salóme. „Salóme er að fara í gegnum erfiða hluti í lífinu á meðan á myndinni stendur, bæði í persónulega lífinu og í vinnunni. Hlutirnir eru ekki að spilast eins og hún hafði vonað og það veldur henni miklum vonbrigðum. En hún reynir eins og hún getur að láta ekki á því bera. Ég upplifi Salóme svolítið eina með sjálfri sér alltaf, því það er eins og enginn skilji hana almenni- lega, hún er líka umkringd undar- legum karakterum sem hún á erfitt með að tengja við.“ Spurð út í hvort hún sé lík Salóme á einhvern hátt segir Anna: „Við eigum sjálfsagt eitthvað sameigin- legt en erum að mestu frekar ólíkir karakterar. Salóme er þrjóskari en ég og lokaðri. Við erum samt báðar frekar kaldhæðnar og okkur finnst báðum gott að sofa út. En ég myndi bregðast öðruvísi við sumum aðstæðum sem koma upp í lífi hennar. Fyrir það fyrsta myndi ég ekki leigja með fyrrverandi kærasta mínum og ég myndi ekki heldur hafa þolinmæði í að bíða og vona að sambandið virkaði eftir mörg ár af misheppnuðum tilraun- um. En svo veit maður aldrei þegar ástin er annars vegar, hún getur gert mann alveg ruglaðan,“ útskýrir Anna. Þess má geta að myndin, sem verður frumsýnd á morgun, fjallar um óvenjulegan ástarþríhyrning þar sem þau Salóme og Hrafn hafa átt í on/off-sambandi í fimmtán ár og leigt saman íbúð. Þegar Hrafn barnar aðra konu, Ríkeyju, og hún flytur inn breytist allt. Harkan er sjarmerandi Anna fer svo sannarlega með aðal- hlutverkið í myndinni en hún er í öllum senum myndarinnar nema einni. „Það er krefjandi að halda orkunni alltaf í 100% þegar maður er í tökum marga daga í röð. Það komu tímar þar sem ég var orðin svolítið þreytt, en það er einhvern veginn bara partur af þessu og í raun hluti af sjarmanum við kvikmynda- gerð, harkan,“ útskýrir hún. Anna lék aðalhlutverkið í kvik- myndinni Webcam árið 2015 en það er sami hópurinn sem kom að gerð þeirrar myndar og sér um Snjó og Salóme. „Þetta er sami hópurinn og Sigurður Anton skrifaði og leik- stýrði báðum myndunum. Mér finnst hann aftur ná að koma frá sér öðruvísi og ferskri sögu af ungu fólki sem býr á Íslandi. Og ég hugsa að flestir geti tengt við einhver vanda- málin sem persónurnar þurfa að glíma við,“ segir Anna. Til gamans má geta að Gunnar Helgason leikur pabba persónunn- ar sem Anna leikur, bæði í Webcam og í Snjó og Salóme. „Við erum allt öðruvísi feðgin í Webcam en í Snjó og Salóme. Í Webcam var engin mamma, hún var dáin, og Rósalind, aðalpersóna Webcam, og pabbi hennar áttu mjög fallegt og náið samband. Ein uppáhaldssenan mín í Webcam er þegar Rósalind segir pabba sínum frá því að hún sé að starfa sem „camgirl“. Í Snjó og Salóme er annað upp á teningnum, þar virðist hann gefinn fyrir áfengið sem fer í taugarnar á Salóme, og einu samskiptin sem þau eiga í myndinni er þegar Salóme hreytir einhverju í pabba sinn. Þessi mynd er í raun fyrir alla aldurshópa en Salóme er 28 ára og flestir karakterarnir eitthvað í kring- um það, ég hugsa að hún muni helst höfða til fólks á aldrinum 16-30,“ segir Anna að lokum aðspurð fyrir hverja Snjór og Salóme sé. gudnyhronn@365.is Finnur til með týpunni sem hún leikur Anna Hafþórsdóttir leikur aðalhlutverkið í myndinni Snjór og Sal- óme. Hún hefur töluverða samúð með persónunni sem hún leikur og myndi seint taka sumar af þeim ákvörðunum sem Salóme tekur. Fyrir þAð FyrstA myndi ég ekki leigjA með FyrrverAndi kærAstA mínum. Anna Hafþórsdóttir fer með aðalhlutverkið í Snjó og Salóme. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT METSÖLULISTI EYMUNDSSON 29.03.17 - 04.04.17 1 2 5 6 7 8 109 43 Örvænting B.A. Paris Löggan Jo Nesbø Svefn Erla Björnsdóttir Independent People Halldór Laxness Undur Mývatns Unnur Jökulsdóttir Iceland in a Bag Ýmsir höfundar Andartak eilífðar Paul Kalanithi Ethan Frome Edith Wharton Stúlkurnar á Enlandsferjunni Lone Theils Dalalíf 5 - Logn að kvöldi Guðrún frá Lundi 6 . a p r í l 2 0 1 7 F I M M T U D a G U r54 l í F I ð ∙ F r É T T a B l a ð I ð 0 6 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 0 7 2 s _ P 0 7 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 5 5 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 9 E -1 5 4 8 1 C 9 E -1 4 0 C 1 C 9 E -1 2 D 0 1 C 9 E -1 1 9 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 7 2 s _ 5 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.