Fréttablaðið - 06.04.2017, Qupperneq 70
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Leikkonan Anna Haf-þórsdóttir hafði býsna mikla samúð með per-sónunni sem hún leikur í nýju myndinni Snjór og Salóme. „Salóme er
að fara í gegnum erfiða hluti í lífinu
á meðan á myndinni stendur, bæði
í persónulega lífinu og í vinnunni.
Hlutirnir eru ekki að spilast eins
og hún hafði vonað og það veldur
henni miklum vonbrigðum. En hún
reynir eins og hún getur að láta ekki
á því bera. Ég upplifi Salóme svolítið
eina með sjálfri sér alltaf, því það er
eins og enginn skilji hana almenni-
lega, hún er líka umkringd undar-
legum karakterum sem hún á erfitt
með að tengja við.“
Spurð út í hvort hún sé lík Salóme
á einhvern hátt segir Anna: „Við
eigum sjálfsagt eitthvað sameigin-
legt en erum að mestu frekar ólíkir
karakterar. Salóme er þrjóskari en
ég og lokaðri. Við erum samt báðar
frekar kaldhæðnar og okkur finnst
báðum gott að sofa út.
En ég myndi bregðast öðruvísi við
sumum aðstæðum sem koma upp í
lífi hennar. Fyrir það fyrsta myndi
ég ekki leigja með fyrrverandi
kærasta mínum og ég myndi ekki
heldur hafa þolinmæði í að bíða
og vona að sambandið virkaði eftir
mörg ár af misheppnuðum tilraun-
um. En svo veit maður aldrei þegar
ástin er annars vegar, hún getur
gert mann alveg ruglaðan,“ útskýrir
Anna. Þess má geta að myndin, sem
verður frumsýnd á morgun, fjallar
um óvenjulegan ástarþríhyrning
þar sem þau Salóme og Hrafn hafa
átt í on/off-sambandi í fimmtán ár
og leigt saman íbúð. Þegar Hrafn
barnar aðra konu, Ríkeyju, og hún
flytur inn breytist allt.
Harkan er sjarmerandi
Anna fer svo sannarlega með aðal-
hlutverkið í myndinni en hún er í
öllum senum myndarinnar nema
einni. „Það er krefjandi að halda
orkunni alltaf í 100% þegar maður
er í tökum marga daga í röð. Það
komu tímar þar sem ég var orðin
svolítið þreytt, en það er einhvern
veginn bara partur af þessu og í raun
hluti af sjarmanum við kvikmynda-
gerð, harkan,“ útskýrir hún.
Anna lék aðalhlutverkið í kvik-
myndinni Webcam árið 2015 en
það er sami hópurinn sem kom að
gerð þeirrar myndar og sér um Snjó
og Salóme. „Þetta er sami hópurinn
og Sigurður Anton skrifaði og leik-
stýrði báðum myndunum. Mér
finnst hann aftur ná að koma frá sér
öðruvísi og ferskri sögu af ungu fólki
sem býr á Íslandi. Og ég hugsa að
flestir geti tengt við einhver vanda-
málin sem persónurnar þurfa að
glíma við,“ segir Anna.
Til gamans má geta að Gunnar
Helgason leikur pabba persónunn-
ar sem Anna leikur, bæði í Webcam
og í Snjó og Salóme. „Við erum allt
öðruvísi feðgin í Webcam en í Snjó
og Salóme. Í Webcam var engin
mamma, hún var dáin, og Rósalind,
aðalpersóna Webcam, og pabbi
hennar áttu mjög fallegt og náið
samband. Ein uppáhaldssenan
mín í Webcam er þegar Rósalind
segir pabba sínum frá því að hún
sé að starfa sem „camgirl“. Í Snjó og
Salóme er annað upp á teningnum,
þar virðist hann gefinn fyrir áfengið
sem fer í taugarnar á Salóme, og
einu samskiptin sem þau eiga í
myndinni er þegar Salóme hreytir
einhverju í pabba sinn.
Þessi mynd er í raun fyrir alla
aldurshópa en Salóme er 28 ára og
flestir karakterarnir eitthvað í kring-
um það, ég hugsa að hún muni helst
höfða til fólks á aldrinum 16-30,“
segir Anna að lokum aðspurð fyrir
hverja Snjór og Salóme sé.
gudnyhronn@365.is
Finnur til með týpunni
sem hún leikur
Anna Hafþórsdóttir leikur aðalhlutverkið í myndinni Snjór og Sal-
óme. Hún hefur töluverða samúð með persónunni sem hún leikur og
myndi seint taka sumar af þeim ákvörðunum sem Salóme tekur.
Fyrir þAð FyrstA
myndi ég ekki leigjA
með FyrrverAndi kærAstA
mínum.
Anna Hafþórsdóttir fer með aðalhlutverkið í Snjó og Salóme. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
29.03.17 - 04.04.17
1 2
5 6
7 8
109
43
Örvænting
B.A. Paris
Löggan
Jo Nesbø
Svefn
Erla Björnsdóttir
Independent People
Halldór Laxness
Undur Mývatns
Unnur Jökulsdóttir
Iceland in a Bag
Ýmsir höfundar
Andartak eilífðar
Paul Kalanithi
Ethan Frome
Edith Wharton
Stúlkurnar á Enlandsferjunni
Lone Theils
Dalalíf 5 - Logn að kvöldi
Guðrún frá Lundi
6 . a p r í l 2 0 1 7 F I M M T U D a G U r54 l í F I ð ∙ F r É T T a B l a ð I ð
0
6
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
7
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
5
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
9
E
-1
5
4
8
1
C
9
E
-1
4
0
C
1
C
9
E
-1
2
D
0
1
C
9
E
-1
1
9
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
7
2
s
_
5
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K