Fréttablaðið - 06.04.2017, Blaðsíða 12
Aukin þægindi allan daginn
Veitir stuðning og minnkar álag á fæturna
- 20 %
Verð áður 499 kr. pk.
399 kr.pk.
Pink Lady epli, 8 stk. í pakka, Frakkland
Krónan
mælir með!
Sýrland Varafulltrúi Rússlands í
öryggisráði Sameinuðu þjóðanna
kljáðist við fulltrúa annarra ríkja á
fundi ráðsins í gær. Umræðuefnið
var efnavopnaárás þriðjudagsins á
sýrlenska bæinn Khan Sheikhoun.
Samtökin Syrian Observatory for
Human Rights, sem fylgjast með
borgarastyrjöldinni í Sýrlandi á jörðu
niðri, greindu frá því á þriðjudag að
íbúar bæjarins hefðu séð sprengjur
falla úr lofti. Í kjölfarið hafi fórnar-
lömb árásarinnar meðal annars
froðufellt og kafnað.
Líklegt þykir að saríngasi hafi verið
varpað á bæinn. Fréttablaðið greindi
frá því í gær að saríngas væri ban-
vænt efnavopn, um tuttugu sinnum
banvænna en blásýra, og ylli einna
helst köfnun þar sem gasið réðist á
miðtaugakerfi líkamans og lamaði
öndunarfæri.
Tilgátu Igors Konoshenkov, varn-
armálaráðherra Rússlands, um að
sýrlenskar þotur hefðu hæft efna-
vopnaframleiðslu uppreisnarmanna
og þannig eitrað fyrir fórnarlömbum,
var hafnað á fundi öryggisráðsins.
Sjálfir hafa Sýrlendingar sagst aldrei
hafa beitt efnavopnum
Matthew Rycroft, fulltrúi Bret-
lands, sagði að með árásinni hefði
Bashar al-Assad, forseti Sýrlands,
niðurlægt Rússa og hæðst að friðar-
viðræðum við uppreisnarmenn. Þá
sagði Rycroft Rússa verja hið óverjan-
lega með stuðningi sínum við stjórn
al-Assads.
Vladimir Safronkov, varafulltrúi
Rússa, svaraði fyrir sig og sagði Breta
heltekna af markmiði sínu um að
steypa al-Assad af stóli í stað þess að
reyna að koma á friði. Þá sagði hann
ríki sitt ekki sjá þörf á því að öryggis-
ráðið samþykkti nýjar ályktanir eða
aðgerðir. Þess í stað ætti ráðið að fara
fram á hlutlausa, ítarlega og alþjóð-
lega rannsókn á árinu. Ekki væri hægt
að reiða sig á upptökur af vettvangi
þar sem megnið af þeim væri „svið-
sett“. Þess ber að geta að Rússar hafa
neitunarvald í öryggisráðinu.
Nikki Haley, fulltrúi Bandaríkj-
anna, sagði að efnavopnaárásir Sýr-
lendinga myndu halda áfram þar til
eitthvað yrði gert. „Rússar styðjast
endurtekið við sömu skálduðu frá-
sagnirnar til þess að beina athyglinni
frá bandamönnum þeirra í Dam-
askus,“ sagði Haley.
Tala látinna er enn á reiki. Syrian
Observatory heldur því fram að alls
hafi 72 látist í árásinni, þar af tuttugu
börn. Hins vegar héldu þeir François
Delattre, fulltrúi Frakklands í öryggis-
ráðinu, og Recep Tayyip Erdogan, for-
seti Tyrklands, því fram í gær að yfir
hundrað hefðu farist.
thorgnyr@frettabladid.is
Rifist um efnavopnaárásinaEkki fyrsta efnavopnaárásinÞann 21. ágúst árið 2013 vöknuðu
íbúar í úthverfum Damaskus við
mannskæðustu efnavopnaárás
síðustu fjögurra áratuga. Sprengjur
sem innihéldu saríngas skullu á
hverfunum sem voru undir stjórn
uppreisnarmanna. Rannsóknarlið
frá Sameinuðu þjóðunum fann í
kjölfarið sönnunargögn sem sýndu
fram á að saríngasi hefði verið
skotið á svæðið. Sýrlenski herinn
var sagður hafa staðið að árásinni.
Ekki er ljóst hversu margir
fórust í árásinni. Bretar telja 350
hafa farist, Syrian Observatory for
Human Rights telja þá vera 502,
Bandaríkin segja 1.429 hafa farist
og uppreisnarmenn sjálfir segja að
1.729 hafi farist.
Fórnarlömb árásarinnar voru mörg hver jörðuð í gær. Nordicphotos/AFp
Rússar kljáðust við aðra
meðlimi öryggisráðs
SÞ um efnavopnaárás í
Sýrlandi. Fulltrúi Rússa
sagði að mögulega hefðu
efnavopn uppreisnar-
manna á jörðu niðri
valdið dauða fórnar-
lambanna. Önnur ríki
hafna tilgátunni.
6 . a p r í l 2 0 1 7 F I M M T U d a G U r12 F r é T T I r ∙ F r é T T a B l a ð I ð
0
6
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
9
E
-5
0
8
8
1
C
9
E
-4
F
4
C
1
C
9
E
-4
E
1
0
1
C
9
E
-4
C
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
A
F
B
0
7
2
s
_
5
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K