Fréttablaðið - 06.04.2017, Side 64
Áður en
þau urðu
fræg …
Gwen Stefani
Söngkonan vann eitt sinn í ísbúð
í Orange County í Kaliforníu.
Sandra Bullock
Leikkonan er sögð hafa unnið
fyrir sér sem barþjónn á sínum
yngri árum.
Lady Gaga
Söngkonan hæfileikaríka starf-
aði sem þjónn í New York.
Queen Latifah
Fjöllistakonan Latifah vann eitt
sinn á hamborgarastaðnum
Burger King við afgreiðslu og
þrif.
Jennifer Aniston
Aniston starfaði við ræstingar
sem unglingur.
Brad Pitt
Pitt starfaði eitt sinn á matsölu-
staðnum El Pollo Loco. Starfið
fól í sér að standa úti á götu og
dreifa auglýsingum.
Vinnan göfgar manninn og allt það. En það
verður nú samt að viður kennast að sum
störf eru einfaldlega verri en önnur. Lífið
fékk nokkra einstaklinga til að segja frá
versta starfi sem þeir hafa unnið.
Árelía eydís
Guðmundsdóttir
dósent við HÍ og rithöfundur
„Í öllum störfum eru „verstu“
augnablik og bestu. Í starfi mínu
sem háskólakennari getur versta
augnablikið verið þegar ég byrja að
fara yfir ritgerðir og próf en síðan
finnst mér það skemmtilegt
eftir smástund. Í starfi mínu
sem rithöfundur getur
versta augnablikið
verið þegar ég horfi
á skjáinn tómeyg
og óvissan er
yfirþyrm-
andi, en
síðan
eftir
smá
stund
er tónninn
sleginn. Þegar ég
vann í fiski fannst
mér versta augnablik-
ið vera þegar hringt var
úr pásu og maður þurfti að
drepa í rettunni og ganga til
verks en oftast var svo gaman
eftir smá. Í starfi mínu í Fríhöfninni
var versta augnablikið að vakna
klukkan fimm að morgni og fara
til vinnu en eftir að ég var mætt
var oft fjör. Í starfi mínu á Tomma
hamborgurum fannst mér verst að
þrífa grillið eftir törn en gott þegar
það varð spegilfínt. Í starfi mínu
í sjoppu fannst mér verst þegar
viðskiptavini vantaði en þá var það
útgáfa Ísfólksins sem bjargaði mér.
Öll störf hafa vond og góð augna-
blik og allt þar á milli.“
Kött GrÁ Pjé
listamaður
„Sumarið sem ég
varð tvítugur vann
ég í kúfiskverk-
smiðju á Þórshöfn
á Langanesi. Ég er
með einhvers konar
ofnæmi, svo ég þurfti
alltaf að vera með gasgrímu
sem var tengd í súrefnisleiðslur
í loftinu, dró helvítis slönguna
með mér um verksmiðjuna. Um mitt
sumar stakk ég af, ók bara til Akureyrar
og sagði fökk itt.“
FriðriK ómar
HjörleiFsson
söngvari
„Tvímælalaust var það
bæjarvinnan þegar
ég var unglingur
á Dalvík. Oj,
hvað ég
nennti því
aldrei. Finnst
fátt leiðinlegra en
að slá og reyta arfa.
Aldrei aftur!“
rúnar eFF
rúnarsson
tónlistarmaður
„Ég held að versta starf sem
ég hef prófað hljóti að vera
sjómennska, ég varð svo hrika-
lega sjóveikur að ég lét mér nægja
þennan eina túr og eftirlét
alvöru karlmönnum plássið.
Ég ætla bara að halda mig
við tónlistina.“
HraFn jónsson
kvikmyndagerðarmaður og
pistlahöfundur
„Ég hef átt margar frábærar
upplifanir á vinnumarkaði.
Ég vann til dæmis einu
sinni á vídeóleigu
þar sem var svona
klámmynda-
mappa undir
borði sem
gamlir
karlar í
ryk-
frökk-
um
komu
reglulega og
skoðuðu. Svo
vann ég einu sinni
á framköllunarstofu
þar sem gamlir karlar í
rykfrökkum komu reglu-
lega með filmur í framköllum
sem innihéldu myndir af þeim
í innilegum ástaratlotum – hvort
sem það var með öðrum eða bara
sjálfum sér. Svo var mér líka einu
sinni sagt upp af Ásgeiri Kolbeins.
Eina virkilega slæma upplifunin
sem ég man eftir af vinnumarkaði
var þegar ég vann eina viku í
þjónustuveri hjá fjarskiptafyrirtæki.
Í alvöru, það er algjör Normandý-
stemning hverja einustu lifandi
sekúndu hjá svona þjónustuverum;
„ROUTERINN MINN VIRKAR EKKI!“,
„AF HVERJU ER SÍMREIKNINGURINN
MINN SVONA HÁR?“, „ÉG HATA
YKKUR OG ALLT SEM ÞIÐ STANDIÐ
FYRIR!“ Ég eyddi einu sinni góðum
40 mínútum í að reyna að leiðbeina
einhverjum gömlum manni, líklega
í rykfrakka, um hvernig hann ætti
að tengja router-inn sinn. Lexían er
sú að það fást þúsund karmastig
fyrir að vera góður og blíður við
þjónustufólk.“
Boxarinn Floyd Mayweather fór
á klappstýrukeppni um helgina
þar sem hann horfði á dóttur sína
keppa. Hann varð eitthvað ósáttur
við dómnefndina, en dóttir hans og
lið hennar höfnuðu í öðru sæti, og
las yfir hausamótunum á nefndar-
mönnum.
Á slúðurvefnum TMZ er viðtal við
Jeff Krapf, kynni keppninnar sem fór
fram í borginni Irvine í Kaliforníu-
fylki, en hann stóð í miðjum „felli-
bylnum“ þegar boxarinn brjálaðist.
Samkvæmt honum blótaði Floyd
Mayweather dómurunum í sand og
ösku og sagði meðal annars: „Það er
ég sem borga fyrir þessa keppni!“
Jeff Krapf þessi hélt á einum tíma-
punkti að Floyd myndi hreinlega
ganga í skrokk á einhverjum og
sagði Krapf að hann hefði hugsað
sér gott til glóðarinnar, því það að
vera kýldur af jafn ríkum manni og
Floyd „Money“ Mayweather gæti, að
minnsta kosti í Bandaríkjunum, leitt
til ansi hárra skaðabóta. – sþh
Floyd mayweather sturlast yfir klappstýrukeppni
Floyd Mayweather sturlaðist.
Versta
starfið
Kött
GrÁ Pjé
GaFst uPP Á að
Vinna með
GasGrímu.
sjó
mennsKa
Hentaði eKKi
sjóVeiKum
rúnari.
Virði Floyds may
weatHer er 400 millj
ónir dollara oG er Hann
ósiGraður í 49 bardöGum.
6 . a p r í l 2 0 1 7 F I M M T U D a G U r48 l í F I ð ∙ F r É T T a B l a ð I ð
Lífið
0
6
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
9
E
-5
0
8
8
1
C
9
E
-4
F
4
C
1
C
9
E
-4
E
1
0
1
C
9
E
-4
C
D
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
9
A
F
B
0
7
2
s
_
5
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K