Fréttablaðið - 06.04.2017, Síða 64

Fréttablaðið - 06.04.2017, Síða 64
Áður en þau urðu fræg … Gwen Stefani Söngkonan vann eitt sinn í ísbúð í Orange County í Kaliforníu. Sandra Bullock Leikkonan er sögð hafa unnið fyrir sér sem barþjónn á sínum yngri árum. Lady Gaga Söngkonan hæfileikaríka starf- aði sem þjónn í New York. Queen Latifah Fjöllistakonan Latifah vann eitt sinn á hamborgarastaðnum Burger King við afgreiðslu og þrif. Jennifer Aniston Aniston starfaði við ræstingar sem unglingur. Brad Pitt Pitt starfaði eitt sinn á matsölu- staðnum El Pollo Loco. Starfið fól í sér að standa úti á götu og dreifa auglýsingum. Vinnan göfgar manninn og allt það. En það verður nú samt að viður kennast að sum störf eru einfaldlega verri en önnur. Lífið fékk nokkra einstaklinga til að segja frá versta starfi sem þeir hafa unnið. Árelía eydís Guðmundsdóttir dósent við HÍ og rithöfundur „Í öllum störfum eru „verstu“ augnablik og bestu. Í starfi mínu sem háskólakennari getur versta augnablikið verið þegar ég byrja að fara yfir ritgerðir og próf en síðan finnst mér það skemmtilegt eftir smástund. Í starfi mínu sem rithöfundur getur versta augnablikið verið þegar ég horfi á skjáinn tómeyg og óvissan er yfirþyrm- andi, en síðan eftir smá stund er tónninn sleginn. Þegar ég vann í fiski fannst mér versta augnablik- ið vera þegar hringt var úr pásu og maður þurfti að drepa í rettunni og ganga til verks en oftast var svo gaman eftir smá. Í starfi mínu í Fríhöfninni var versta augnablikið að vakna klukkan fimm að morgni og fara til vinnu en eftir að ég var mætt var oft fjör. Í starfi mínu á Tomma hamborgurum fannst mér verst að þrífa grillið eftir törn en gott þegar það varð spegilfínt. Í starfi mínu í sjoppu fannst mér verst þegar viðskiptavini vantaði en þá var það útgáfa Ísfólksins sem bjargaði mér. Öll störf hafa vond og góð augna- blik og allt þar á milli.“ Kött GrÁ Pjé listamaður „Sumarið sem ég varð tvítugur vann ég í kúfiskverk- smiðju á Þórshöfn á Langanesi. Ég er með einhvers konar ofnæmi, svo ég þurfti alltaf að vera með gasgrímu sem var tengd í súrefnisleiðslur í loftinu, dró helvítis slönguna með mér um verksmiðjuna. Um mitt sumar stakk ég af, ók bara til Akureyrar og sagði fökk itt.“ FriðriK ómar HjörleiFsson söngvari „Tvímælalaust var það bæjarvinnan þegar ég var unglingur á Dalvík. Oj, hvað ég nennti því aldrei. Finnst fátt leiðinlegra en að slá og reyta arfa. Aldrei aftur!“ rúnar eFF rúnarsson tónlistarmaður „Ég held að versta starf sem ég hef prófað hljóti að vera sjómennska, ég varð svo hrika- lega sjóveikur að ég lét mér nægja þennan eina túr og eftirlét alvöru karlmönnum plássið. Ég ætla bara að halda mig við tónlistina.“ HraFn jónsson kvikmyndagerðarmaður og pistlahöfundur „Ég hef átt margar frábærar upplifanir á vinnumarkaði. Ég vann til dæmis einu sinni á vídeóleigu þar sem var svona klámmynda- mappa undir borði sem gamlir karlar í ryk- frökk- um komu reglulega og skoðuðu. Svo vann ég einu sinni á framköllunarstofu þar sem gamlir karlar í rykfrökkum komu reglu- lega með filmur í framköllum sem innihéldu myndir af þeim í innilegum ástaratlotum – hvort sem það var með öðrum eða bara sjálfum sér. Svo var mér líka einu sinni sagt upp af Ásgeiri Kolbeins. Eina virkilega slæma upplifunin sem ég man eftir af vinnumarkaði var þegar ég vann eina viku í þjónustuveri hjá fjarskiptafyrirtæki. Í alvöru, það er algjör Normandý- stemning hverja einustu lifandi sekúndu hjá svona þjónustuverum; „ROUTERINN MINN VIRKAR EKKI!“, „AF HVERJU ER SÍMREIKNINGURINN MINN SVONA HÁR?“, „ÉG HATA YKKUR OG ALLT SEM ÞIÐ STANDIÐ FYRIR!“ Ég eyddi einu sinni góðum 40 mínútum í að reyna að leiðbeina einhverjum gömlum manni, líklega í rykfrakka, um hvernig hann ætti að tengja router-inn sinn. Lexían er sú að það fást þúsund karmastig fyrir að vera góður og blíður við þjónustufólk.“ Boxarinn Floyd Mayweather fór á klappstýrukeppni um helgina þar sem hann horfði á dóttur sína keppa. Hann varð eitthvað ósáttur við dómnefndina, en dóttir hans og lið hennar höfnuðu í öðru sæti, og las yfir hausamótunum á nefndar- mönnum. Á slúðurvefnum TMZ er viðtal við Jeff Krapf, kynni keppninnar sem fór fram í borginni Irvine í Kaliforníu- fylki, en hann stóð í miðjum „felli- bylnum“ þegar boxarinn brjálaðist. Samkvæmt honum blótaði Floyd Mayweather dómurunum í sand og ösku og sagði meðal annars: „Það er ég sem borga fyrir þessa keppni!“ Jeff Krapf þessi hélt á einum tíma- punkti að Floyd myndi hreinlega ganga í skrokk á einhverjum og sagði Krapf að hann hefði hugsað sér gott til glóðarinnar, því það að vera kýldur af jafn ríkum manni og Floyd „Money“ Mayweather gæti, að minnsta kosti í Bandaríkjunum, leitt til ansi hárra skaðabóta. – sþh Floyd mayweather sturlast yfir klappstýrukeppni Floyd Mayweather sturlaðist. Versta starfið Kött GrÁ Pjé GaFst uPP Á að Vinna með GasGrímu. sjó­ mennsKa Hentaði eKKi sjóVeiKum rúnari. Virði Floyds may­ weatHer er 400 millj­ ónir dollara oG er Hann ósiGraður í 49 bardöGum. 6 . a p r í l 2 0 1 7 F I M M T U D a G U r48 l í F I ð ∙ F r É T T a B l a ð I ð Lífið 0 6 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 0 7 2 s _ P 0 6 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 6 1 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 0 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 C 9 E -5 0 8 8 1 C 9 E -4 F 4 C 1 C 9 E -4 E 1 0 1 C 9 E -4 C D 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 9 A F B 0 7 2 s _ 5 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.