Fréttablaðið - 06.04.2017, Side 30
Leit að efnum
Engir kjólar eru lengur til sem Elly
átti. Stefanía segist hafa búist við
í upphafi að hún þyrfti að gera sér
ferð til London til að kaupa efni í
kjólana. „Síðan fann ég í safninu
okkar tvo gamla efnisstranga
sem hentuðu mjög vel. Efnið var
frá sjötta áratugnum og það var
sérstaklega gaman að sauma úr
því. Það gerði kjólinn svo eðli-
lega gamlan. Ég átti síðan leið til
Berlínar í einkaerindum og rakst
á efni þar sem ég tók með mér
heim. Það er ekki mikið úrval hér
á landi af svona efnum en ég fann
samt í tvo kjóla. Ég litaði það og
meðhöndlaði þannig að það leit út
fyrir að vera gamalt,“ segir Stefanía
en samtals eru átján búningar sem
Elly ber á sviðinu.
Tjull og brjóstasaumar
Á sjötta áratugnum voru kjólar
stangaðir sérstaklega yfir brjóst og
mikið tjull var undir þeim. Stefanía
segir að þær hafi farið algjörlega
eftir gömlum sniðum og leiðbein-
ingum þessa tíma. „Við lögðum
mikla vinnu í að stúdera kjólana og
sniðin. Það er ótrúlega hæfileika-
ríkt fólk hér á búningadeildinni
sem á langt nám að baki í sníða-
gerð, búningasögu og kjólasaum
og getur framkallað kraftaverk fyrir
hverja sýningu. Tjullpilsin pönt-
uðum við reyndar að utan. Okkur
fannst ákaflega krefjandi að ná
búningum þannig að áhorfendur
gætu ferðast um tímann. Ég kveið
mest fyrir að gera fötin frá níunda
áratugnum. Það lukkaðist vel enda
var Elly alltaf ákaflega elegant. Sjálf
hafði hún áhuga á tísku og fylgdist
vel með allt frá fyrstu tíð.“
Ör fataskipti
Stefanía segir að það hafi verið
mikil gleði í vinnunni þegar þær
fóru aftur á bak í tíma í kjólasaumi.
„Okkur langaði til að gera meira en
minna, þetta var svo gaman. Við
urðum einnig að hafa í huga að
Katrín Halldóra er alltaf á sviðinu
og þarf að geta skipt um föt á mjög
stuttum tíma. Það þarf starfsmaður
að vera baksviðs í sýningunni til að
hjálpa henni í skiptingum,“ segir
Stefanía sem er þessa dagana að
yfirfara búninga í Mamma Mia!
sem er að fara aftur í sýningu. „Það
er mikill fjöldi sýninga að baki og
því nauðsynlegt að endurnýja og
laga. Síðan förum við á búninga-
deildinni að vinna að sýningum
næsta vetrar. Það er alltaf nóg að
gera hér og aldrei verkefnaskortur.
Starfið er skemmtilegt, ekkert verk-
efni eins.“
Stefanía segir það hafa verið ein-
staklega skemmtilegt að vinna við
þetta verkefni sem hafi verið í senn
krefjandi og áhugavert. „Það var
nokkuð langur undirbúningur
fyrir þessa sýningu. Við byrjuðum
að huga að búningum síðasta vor
og hugmyndavinnan var alltaf
með manni. Ég byrjaði á því að
fara yfir allar myndir sem ég gat
komist yfir af Elly og samferða-
fólki hennar. Ég skoðaði gömul
blöð og Ljósmyndasafn Reykja-
víkur lánaði mér myndir. Síðan
var það ég og búningadeildin
sem saumuðum kjólana,“ segir
Stefanía en hún er forstöðumaður
deildarinnar. Með henni starfa
þrír sprenglærðir klæðskerar og
kjólameistarar.
Tískusýning á sviði
„Það er ekki oft sem við fáum
tækifæri til að sauma glæsikjóla
en það var ótrúlega gaman. Við
notuðum falleg efni í kjólana sem
leikkonan Katrín Halldóra Sigurð-
ardóttir ber einstaklega vel. Mér
fannst líka svo gaman að sauma
fatnað sem spannar svona breytt
tímabil, frá 1955-1995. Tískan
breytist ótrúlega mikið á þessum
tíma auk þess sem við fylgjum
þroska hennar og ferli í gegnum
verkið. Leikmyndin breytist ekki
og búningar skipta því miklu
máli í leikgerðinni. Þannig eru
búningar hljómsveitarmannanna
hluti af því að sýna hvað tíminn
líður,“ útskýrir Stefanía.
Hún segir að það sé vissulega
hægt að kaupa gamla kjóla á ebay
en hún vildi búa til sína eigin
kjóla fyrir þessa sýningu. „Við
vildum hafa kjólana eins raun-
verulega og mögulegt var. Tveir
kjólar í sýningunni eru mjög líkir
þeim sem Elly átti þegar hún var
að koma fyrst fram. Við lögðum
áherslu á okkar eigið handbragð
í sýningunni sem síðan býr til
ákveðna heildarmynd. Flestir
kjólarnir voru saumaðir hér, tvo
fundum við í búningasafni leik-
hússins. Allir flottustu kjólarnir
urðu til á saumastofunni okkar,“
segir Stefanía.
Þrír snillingar starfa í búningadeild Borgarleikhússins auk Stefaníu, þær Maggý Dögg Emilsdóttir, Elma Bjarney Guðmundsdóttir og Ingunn Lára Brynjólfsdóttir.
MYND/GVA
Katrín Halldóra Sigurðardóttir í hlutverki Ellyjar á sviði. Passað er upp á hvert
smáatriði, kjól, förðun, hárgreiðslu og hanska.
Elín
Albertsdóttir
elin@365.is
Elly hafði sjálf
mikinn áhuga á
tísku og lagði mikið upp
úr að vera vel til fara á
sviðinu.
Fa
rv
i.i
s
//
0
31
7
KRINGLUNNI | 588 2300
MIÐNÆTUR
OPNUN
20% afsl.
af öllum vörum
Átján búningar voru
gerðir fyrir Elly og
Katrín Halldóra þarf að
vera fljót að skipta um
kjól í sýningunni. Einn
starfsmaður er henni til
hjálpar.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 6 . a p r í l 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R
0
6
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
9
E
-5
A
6
8
1
C
9
E
-5
9
2
C
1
C
9
E
-5
7
F
0
1
C
9
E
-5
6
B
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
7
2
s
_
5
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K