Fréttablaðið - 06.04.2017, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 06.04.2017, Blaðsíða 30
Leit að efnum Engir kjólar eru lengur til sem Elly átti. Stefanía segist hafa búist við í upphafi að hún þyrfti að gera sér ferð til London til að kaupa efni í kjólana. „Síðan fann ég í safninu okkar tvo gamla efnisstranga sem hentuðu mjög vel. Efnið var frá sjötta áratugnum og það var sérstaklega gaman að sauma úr því. Það gerði kjólinn svo eðli- lega gamlan. Ég átti síðan leið til Berlínar í einkaerindum og rakst á efni þar sem ég tók með mér heim. Það er ekki mikið úrval hér á landi af svona efnum en ég fann samt í tvo kjóla. Ég litaði það og meðhöndlaði þannig að það leit út fyrir að vera gamalt,“ segir Stefanía en samtals eru átján búningar sem Elly ber á sviðinu. Tjull og brjóstasaumar Á sjötta áratugnum voru kjólar stangaðir sérstaklega yfir brjóst og mikið tjull var undir þeim. Stefanía segir að þær hafi farið algjörlega eftir gömlum sniðum og leiðbein- ingum þessa tíma. „Við lögðum mikla vinnu í að stúdera kjólana og sniðin. Það er ótrúlega hæfileika- ríkt fólk hér á búningadeildinni sem á langt nám að baki í sníða- gerð, búningasögu og kjólasaum og getur framkallað kraftaverk fyrir hverja sýningu. Tjullpilsin pönt- uðum við reyndar að utan. Okkur fannst ákaflega krefjandi að ná búningum þannig að áhorfendur gætu ferðast um tímann. Ég kveið mest fyrir að gera fötin frá níunda áratugnum. Það lukkaðist vel enda var Elly alltaf ákaflega elegant. Sjálf hafði hún áhuga á tísku og fylgdist vel með allt frá fyrstu tíð.“ Ör fataskipti Stefanía segir að það hafi verið mikil gleði í vinnunni þegar þær fóru aftur á bak í tíma í kjólasaumi. „Okkur langaði til að gera meira en minna, þetta var svo gaman. Við urðum einnig að hafa í huga að Katrín Halldóra er alltaf á sviðinu og þarf að geta skipt um föt á mjög stuttum tíma. Það þarf starfsmaður að vera baksviðs í sýningunni til að hjálpa henni í skiptingum,“ segir Stefanía sem er þessa dagana að yfirfara búninga í Mamma Mia! sem er að fara aftur í sýningu. „Það er mikill fjöldi sýninga að baki og því nauðsynlegt að endurnýja og laga. Síðan förum við á búninga- deildinni að vinna að sýningum næsta vetrar. Það er alltaf nóg að gera hér og aldrei verkefnaskortur. Starfið er skemmtilegt, ekkert verk- efni eins.“ Stefanía segir það hafa verið ein- staklega skemmtilegt að vinna við þetta verkefni sem hafi verið í senn krefjandi og áhugavert. „Það var nokkuð langur undirbúningur fyrir þessa sýningu. Við byrjuðum að huga að búningum síðasta vor og hugmyndavinnan var alltaf með manni. Ég byrjaði á því að fara yfir allar myndir sem ég gat komist yfir af Elly og samferða- fólki hennar. Ég skoðaði gömul blöð og Ljósmyndasafn Reykja- víkur lánaði mér myndir. Síðan var það ég og búningadeildin sem saumuðum kjólana,“ segir Stefanía en hún er forstöðumaður deildarinnar. Með henni starfa þrír sprenglærðir klæðskerar og kjólameistarar. Tískusýning á sviði „Það er ekki oft sem við fáum tækifæri til að sauma glæsikjóla en það var ótrúlega gaman. Við notuðum falleg efni í kjólana sem leikkonan Katrín Halldóra Sigurð- ardóttir ber einstaklega vel. Mér fannst líka svo gaman að sauma fatnað sem spannar svona breytt tímabil, frá 1955-1995. Tískan breytist ótrúlega mikið á þessum tíma auk þess sem við fylgjum þroska hennar og ferli í gegnum verkið. Leikmyndin breytist ekki og búningar skipta því miklu máli í leikgerðinni. Þannig eru búningar hljómsveitarmannanna hluti af því að sýna hvað tíminn líður,“ útskýrir Stefanía. Hún segir að það sé vissulega hægt að kaupa gamla kjóla á ebay en hún vildi búa til sína eigin kjóla fyrir þessa sýningu. „Við vildum hafa kjólana eins raun- verulega og mögulegt var. Tveir kjólar í sýningunni eru mjög líkir þeim sem Elly átti þegar hún var að koma fyrst fram. Við lögðum áherslu á okkar eigið handbragð í sýningunni sem síðan býr til ákveðna heildarmynd. Flestir kjólarnir voru saumaðir hér, tvo fundum við í búningasafni leik- hússins. Allir flottustu kjólarnir urðu til á saumastofunni okkar,“ segir Stefanía. Þrír snillingar starfa í búningadeild Borgarleikhússins auk Stefaníu, þær Maggý Dögg Emilsdóttir, Elma Bjarney Guðmundsdóttir og Ingunn Lára Brynjólfsdóttir. MYND/GVA Katrín Halldóra Sigurðardóttir í hlutverki Ellyjar á sviði. Passað er upp á hvert smáatriði, kjól, förðun, hárgreiðslu og hanska. Elín Albertsdóttir elin@365.is Elly hafði sjálf mikinn áhuga á tísku og lagði mikið upp úr að vera vel til fara á sviðinu. Fa rv i.i s // 0 31 7 KRINGLUNNI | 588 2300 MIÐNÆTUR OPNUN 20% afsl. af öllum vörum Átján búningar voru gerðir fyrir Elly og Katrín Halldóra þarf að vera fljót að skipta um kjól í sýningunni. Einn starfsmaður er henni til hjálpar. 2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 6 . a p r í l 2 0 1 7 F I M MT U DAG U R 0 6 -0 4 -2 0 1 7 0 4 :2 5 F B 0 7 2 s _ P 0 4 6 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 C 9 E -5 A 6 8 1 C 9 E -5 9 2 C 1 C 9 E -5 7 F 0 1 C 9 E -5 6 B 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 7 2 s _ 5 _ 4 _ 2 0 1 7 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.