Fréttablaðið - 06.04.2017, Side 48
Golf Aprílmánuður er runninn
upp og um leið gósentíð fyrir golf-
áhugamenn úti um allan heim.
Fyrsta risamót ársins er einn af
hápunktum golfársins þar sem
augu flestra íþróttaáhugamanna
eru á Augusta-vellinum í Georgíu-
fylki. Íslendingar fá þetta sögulega
golfmót beint í æð á Golfstöðinni
og er búist við spennandi keppni
þar sem margir eru kallaðir.
Golfáhugamenn eru fyrir löngu
hættir að pæla í Tiger Woods sem
missir af enn einu risamótinu
vegna meiðsla en í hans stað eru
komnir upp ungir frábærir kylf-
ingar sem hafa fyrir löngu tekið
við keflinu.
Erfitt að standast pressuna
Það er hins vegar ekki auðvelt að
vera með pressuna á sér fyrir Mast-
ersmótið sem sést vel á því að sá
sigurstranglegasti hefur ekki unnið
mótið síðan Tiger Woods vann árið
2005.
Sá sem margir horfa til að þessu
sinni er Dustin Johnson, efsti
maður á heimslistanum. Dustin
Johnson hefur spilað frábærlega
undanfarna níu mánuði. Hann
getur ekki hætt að vinna golfmót og
er á toppi ferilsins bæði líkamlega
og andlega. Dustin hefur líka verið
meðal efstu mann á Mastersmótinu
undanfarin tvö ár, varð í sjötta sæti
2015 og í fjórða sæti í fyrra. Dustin
fylgdi eftir Mastersmótinu í fyrra
með því að vinna sitt fyrsta risa-
mót á opna bandaríska í júní. Hann
hefur unnið sjö af 17 mótum sem
hann hefur keppt á síðan.
Golf er fyndin íþrótt
„Golf er fyndin íþrótt. Það skiptir
engu máli hversu vel þú ert að
spila þú getur samt sem áður ekki
unnið. Ef ég á að vinna hér þá
verður allt að ganga upp hjá mér.
Ég kem samt inn á mótið með
mikið sjálfstraust eftir góða spila-
mennsku síðustu vikurnar,“ sagði
Johnson.
Dustin Johnson hefur ekki enn
fengið að klæðast græna jakkanum
og annar frábær kylfingur í þeim
Ríkja þeir ungu áfram á Augusta?
Fyrsta risamót ársins í golfi, Mastersmótið á Augusta-vellinum, hefst í dag og heimurinn fylgist vel með. Marga kylfinga dreymir um að
fá að klæðast græna jakkanum. Tveir efstu menn heimslistans eru í þeim hópi. Síðustu ár hafa ungir kylfingar slegið í gegn á mótinu.
Jordan Spieth kastaði frá sér sigrinum á Mastersmótinu í fyrra og þurfti síðan að klæða sigurvegarann, Danny Willett, í græna jakkann enda hlutverk sigurvegara ársins á undan. NorDicPhotoS/GEtty
Sex sigurstranglegir á Mastersmótinu í golfi árið 2017
Phil Mickelson
46 ára
Bandaríkjamaður
Besti árangur:
Vann mótið 2004, 2006
og 2010
18. sæti á heimslist-
anum
Justin rose
36 ára
Englendingur
Besti árangur:
2. sæti 2015
14. sæti á heimslist-
anum
Jason Day
29 ára
Ástrali
Besti árangur:
2. sæti 2011
3. sæti á heimslist-
anum
rory Mcilroy
27 ára
Norður-Íri
Besti árangur:
4. sæti 2015
2. sæti á heimslist-
anum
Dustin Johnson
32 ára
Bandaríkjamaður
Besti árangur:
4. sæti 2016
1. sæti á heimslist-
anum
hópi er Norður-Írinn Rory McIlroy.
Rory McIlroy hefur ekki aðeins
tækifæri til að vinna Mastersmótið
í fyrsta sinn því hann getur með
sigri lokað risamótahringnum.
Lokar hann hringnum?
McIlroy hefur unnið öll hin risa-
mótin eða opna bandaríska (2011),
opna breska (2014) og PGA-meist-
aramótið (2012 og 2014). Það hefur
aðeins fimm öðrum kylfingum tek-
ist að vinna öll risamótin og þeir
eru Jack Nicklaus, Tiger Woods,
Gene Sarazen, Gary Player og Ben
Hogan. McIlroy hefur verið á topp
tíu á síðustu þremur Mastersmót-
um en besti árangur hans er fimmta
sætið 2015.
Rory McIlroy er aðeins 27 ára
gamall og gæti því haldið við hefð
síðustu tveggja ára þar sem sigur-
vegararnir hafa verið á þrítugsaldri.
Það hefur aldrei gerst þrjú ár í röð í
83 ára sögu Mastersmótsins sem er
nú haldið í 81. sinn.
Menn búast ekki við miklu af
Englendingnum Danny Willett
sem vann mjög óvænt í fyrra. Það er
hins vegar ekki sömu sögu að segja
af Jordan Spieth, sigurvegaranum
frá 2015.
Algjört klúður hjá Spieth
Spieth var reyndar á góðri leið
með að vinna annað árið í röð
með fimm högga forskot á loka-
deginum. Spieth brann yfir í lokin,
tapaði sex höggum á aðeins þremur
holum og missti titilinn til Willetts.
Þessi 23 ára gamli kylfingur hafði ári
fyrr jafnað met Tigers Woods með
því að klára mótið á átján höggum
undir pari. Spieth hefur samt aldrei
endað neðar en í öðru sæti í þeim
þremur Mastersmótum sem hann
hefur tekið þátt í á ferlinum.
Það fer ekkert á milli mála að
Augusta-völlurinn var hans völlur
eða alla vega fram á tíundu holu á
fjórða hring fyrir einu ári.
„Sama hvað gerist í ár, hvort sem
ég vinn græna jakkann aftur eða næ
ekki niðurskurðinum þá verður gott
að komast í gegnum Mastersmótið
í ár. Mastersmótið lifir í eitt ár og
það dregur fólk að skjánum sem
almennt horfir ekki á golf. Það verð-
ur því gott að ljúka af mótinu í ár,“
segir Jordan Spieth og það fer ekkert
á milli mála að martraðarendirinn í
fyrra hefur plagað hann í tólf mán-
uði. Á sama tíma hefur hann dottið
niður í sjötta sæti heimslistans en
fær nú frábært tækifæri til að eyða
út slæmum minningum frá sunnu-
deginum 10. apríl 2016.
Annar sterkur kylfingur sem er
hvorki orðinn þrítugur eða hefur
fengið að klæðast græna jakkanum
er Ástralinn Jason Day. Day er 29
ára gamall en hann brotnaði niður
fyrir aðeins tveimur vikum þegar
hann dró sig úr keppni til að verja
tíma með móður sinni sem glímir
við lungnakrabbamein.
„Það hefur verið mikið í gangi
hjá mér á þessu ári sem hefur tekið
huga minn frá golfinu. Golf var það
síðasta sem ég var að hugsa um
þegar ég frétti af veikindum móður
minnar en ég er á miklu betri stað
núna,“ sagði Jason Day. Hann hefur
verið í öðru sæti (2011) og þriðja
sæti (2013) á Mastersmótinu en
aldrei unnið.
18 af 94 kylfingum eiga jakka
Margir fleiri koma til greina eins og
reynsluboltarnir Phil Mickelson og
Justin Rose. Bubba Watson hefur
unnið Mastersmótið tvisvar (2012
og 2014) og Adam Scott vann í milli-
tíðinni. Alls frá 94 kylfingar tækifæri
í ár til að komast yfir græna jakk-
ann eftirsótta en átján af þeim hafa
unnið hann áður.
Í íþróttum er einna erfiðast að
spá fyrir um sigurvegara á risamóti
og Mastersmótið er langt frá því
að vera það auðveldasta af þeim
fjórum. Sigurvegarinn í fyrra, Eng-
lendingurinn Danny Willett, er gott
dæmi um það.
Ævintýrin á Augusta eru mörg
og þótt þá stóru dreymi um græna
jakkann þá endar hann oft á herð-
um lítt þekktra kylfinga. Hvernig
sem fer þá fylgjast allir golfáhuga-
menn spenntir með.
ooj@frettabladid.is
Jordan Spieth
23 ára
Bandaríkjamaður
Besti árangur:
Vann mótið 2015.
(2. sæti 2014 og 2016)
6. sæti á heimslist-
anum.
Sama hvað gerist í
ár, hvort sem ég
vinn græna jakkann aftur
eða næ ekki niðurskurð-
inum, þá verður gott að
komast í gegnum Masters-
mótið í ár.
Jordan Spieth
6 . a p r í l 2 0 1 7 f I M M T U D a G U r32 S p o r T ∙ f r É T T a B l a ð I ð
0
6
-0
4
-2
0
1
7
0
4
:2
5
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
7
2
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
C
9
E
-4
6
A
8
1
C
9
E
-4
5
6
C
1
C
9
E
-4
4
3
0
1
C
9
E
-4
2
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
7
2
s
_
5
_
4
_
2
0
1
7
C
M
Y
K