Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2001, Blaðsíða 18
lOSOQ
; £ ét £dK Fflvaíei looh £Je*P
v-1 Back * “» ' 4) Jj j^Se*ch _^jFavf»<ei ^jHotory _V J ■ • _J
A<}cleu |^j http //hm fagi«i o 3 í^o
Lmkl yJBest o( the Web £] Chamel Gude 4?1 Cuitonme LnFi ^JFtee HotmaK £] Irleinot Exptorei Nevo £] Intemet Slait ^JWndowi Meda
l«*
FÉLAG ISLENSKRA HJÚKRUNARFR/tÐINGA
FAGOEILD UM UPPLÝSINGATÆKNI í HJÚKRUN
Fonlia
Kðnnun
Starfsrcqlur
Félaqamcnn
Fundarcfni
Fréttir
Umræðan
Lcscfni
Aðrir vcfir
Fjoldi Heimsókna fii
19 mais. ?001
Könnun um viðhorf hjúkrunarfræðinga til tölvunotkunar'
og til staðlaörar, rafrænnar hjúkrunarskráningar
Framundan eru tímar breytinga I skráningu hjúkrunar. A
næstu árum má ætla að ðll hjúkrunarskráning færist á
rafrænt form. Landlæknisembættiö hefur gefiö út tilmæli
um láamarksskráningu vistunarupplysinqa og heilbrigöis-
og tryggingamálaráöuneytiö hefur gefiö út krðfulýsinau
fyrir rafræna siúkraskrá.
Mikilvæg könnun
Tölvunotkun hjúkrunarffæöinga hér á landi og viöhorf til
staðlaðrar, rafrænnar hjúkrunarskráningar eru ekki þekkt
Undirritaöir hjúkrunarfræöingar óska því eftir samstarfi viö
hjúkrunarffæöinga um kðnnun þessa efnis. Kðnnunin er
styrkt af íslenskri erföagreiningu. Aðrir aöilar sem styöja
þessa könnun eru Landlæknisembættið og Heilbrigöis- og
tryggingamálaráöuneytiö.
Persónuvernd og Félag (slenskra
á
hjúkrunarfræðinga
Smellið hértil aðfá
aðgang að
spurningalista
kðnnunarinnar
KÖNNUN
Munlð aö hafa
þáttökunúmerið og
lykllorðiö semykkur
barst f pósti til relöu. Þau
þarf aö nota á næstu
siöu
Nánari upplýsingar
veita óbyrgðarmenn
kónnunar Gyða Bjömsdóttir
og Ingibjörg Þórhallsdóttir,
1 j1
rrné^.
Kynningarsíða könnunar á vefsíðum fagdeildar um
upplýsingatækni á hjúkrun.
Aðgangssíða könnunarinnar á vefsíðum fagdeildar um
upplýsingatækni í hjúkrun.
la. Þátttakandi með svarstöðu 0 fékk aðgang að
spurningunum en sá sem hafði þegar svarað og
sent svörin í úrvinnslugrunn hafði svarstöðu 1 og
fékk ekki aftur aðgang að spurningunum þó
númeraparið væri slegið inn, og gat því ekki svarað
oftar en einu sinni á Internetinu.
lb. Unnt verður að hafa aftur samband við þá sem
ekki hafa svarað (svarstaða 0 í notendaskrá) og
bjóða þátttöku í síðari áfanga sömu könnunar sem
styðjast mun við aðra gagnasöfnunaraðferð til
samanburðar.
306
Spurningalistinn og gagnagrunnurinn
Spurningalistinn, sem notaður var í könnuninni, var saminn
með hliðsjón af rannsóknarspurningum. Hann var byggður
á erlendum spurningalistum um viðhorf hjúkrunarfræðinga
og heilbrigðisstarfsfólks til tölvunotkunar og rafrænna
sjúkraskrárkerfa (McDowell og félagar, 1998; Morris,
1988; Stronge og Brodt, 1985; Staggers, 1994; O’Brien
og Yasnoff, 1999) og lagaður að íslenskum aðstæðum.
Einungis var safnað lýðfræðilegum breytum sem sýnt
hefur verið fram á að tengjast notkun upplýsingatækni og
rafrænum sjúkraskrám og viðhorfum til hvors tveggja
meðal hjúkrunarfræðinga. Þessar breytur eru: aldur, kyn
starfsaldur, menntun, almenn tölvunotkun, fyrri reynsla af
notkun rafrænna sjúkraskráa og starfsumhverfi (McDowell
og félagar, 1998; Morris, 1988, Stronge og Brodt, 1985;
Staggers, 1994; O’Brien og Yasnoff). Ekki var beðið um
upplýsingar sem myndu gera höfundum eða þeim sem
lesa niðurstöður könnunarinnar kleift að rekja svör til ein-
stakra þátttakenda. Þannig má m.a. geta þess að í Ijósi
þess hve lágt hlutfall karlmanna var í úrtakinu var ekki
beðið um upplýsingar um kyn þátttakanda.
Fengið var álit hjúkrunarfræðinga og annarra sem
starfa að upplýsingatæknitengdum málefnum hjá heil-
brigðisráðuneyti og landlæknisembætti og sérfróðum aðil-
um innan fagdeildar um upplýsingatækni í hjúkrun.
Athugasemdir við efni spurningalistans voru teknar til
umfjöllunar og vörðuðu flestar aðlögun að íslenskum
aðstæðum. Endurbættur spurningalistinn var síðan próf-
aður með því að leggja hann fyrir 10 hjúkrunarfræðinga til
yfirlestrar og athugasemda varðandi innihald, orðalag,
framsetningu, tímalengd svörunar og samræmi við rann-
sóknarspurningar (content validity). Endanlegur spurninga-
listi var síðan færður í Internetskjal (svokallað HTML-skjal)
og þess gætt að útlit væri einfalt og aðgengilegt og svar-
möguleikar staðlaðir og kóðaðir þannig að senda mætti
svör rakleitt í Access-úrvinnslugagnagrunn. Eins og áður
er getið var þess gætt við hönnun gagnasendingaferilsins
og úrvinnslugrunnsins að engar persónutengdar upplýs-
ingar færu í hann (m.a. hvorki þátttökunúmer né aðgangs-
númer) en jafnframt var þess gætt að engum persónu-
tengdum upplýsingum væri safnað sjálfkrafa með gagna-
sendingum, t.d. var þess gætt að IÞ-númer tölvu, sem
svör voru send úr, kæmu hvergi fram.
Spurningalistinn var hýstur á aðgangsvörðu og öruggu
svæði á vefsíðu fagdeildar um upplýsingatækni í hjúkrun
(www.fagupp.is). Þátttakendum var gert Ijóst bæði í kynn-
ingarbréfi og á vefsíðunni að litið væri á svörun sem upp-
lýst samþykki fyrir þátttöku. Access-gagnagrunnurinn,
sem safnaði niðurstöðum könnunarinnar, var hýstur á
vefþjóni fagdeildarinnar og afrit af gögnunum voru tekin
daglega í fyrstu og síðan á 4 daga fresti eftir að hægðist á
innsendum svörum (sjá mynd 1). Afritin tryggðu öryggi
gagna þannig að þó að vefþjónn eyðilegðist þá yrði
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 5. tbl. 77. árg. 2001