Tímarit hjúkrunarfræðinga - 01.12.2001, Blaðsíða 58
Tvé-t-tiv frÁ fAAÁdíAum
Frá Innsýn
Þaö er helst að frétta af Innsýn, félagi hjúkrunarfræöinga
starfandi við spelganir á meltingarvegi og lungum, aö
snemma sumars, þ.e. dagana 10.-13. júní, var haldin hér
á landi þrítugasta og þriöja norræna ráðstefnan í
meltingarfræðum. Þetta eru í raun tvær ráðstefnur, þ.e.
önnur fyrir lækna (sérfræðinga í meltingarsjúkdómum) og
hin fyrir hjúkrunarfræðinga starfandi við speglanir. Að
þessu sinni sóttu um það bil eitt hundrað hjúkrunar-
fræðingar frá öllum Norðurlöndunum ráðstefnuna.
Dagskráin var mjög fjölbreytt og voru bæði erlendir og
innlendir fyrirlesarar fengnir til að tala. Innsýn bauð af
þessu tilefni breskum hjúkrunarfræðingi, Christiane
Naumann, hingað og flutti hún þrjá mjög athyglisverða
fyrirlestra fyrir okkur þar sem hún fjallaði meðal annars um
siðfræði, skráningu í hjúkrun, sótthreinsun og fleira. Af
öðru efni mætti kannski minnast á mjög skemmtilegar
pallborðsumræður þar sem fjallað var um vitundarvakning-
una á vélindabakflæði sem hleypt var af stokkunum á
síðastliðnu ári og fór víst ekki fram hjá mörgum. Boðið var
upp á marga aðra fræðandi og skemmtilega fyrirlestra
sem hér yrði of langt mál að telja upp. Mikil ánægja var hjá
hinum norrænu gestum með ráðstefnuna og var gestrisni
og skipulagning íslendinganna mikið rómuð.
í haust, nánar tiltekið 6.-10. október, var níunda
Evrópuráðstefnan í meltingarfræðum haldin í Amsterdam í
Hollandi. Islenskir hjúkrunarfræðingar í Innsýn hafa til
þessa verið mjög duglegir að sækja Evrópuráðstefnur en
aldrei sem nú þar sem átta hjúkrunarfræðingar í félaginu
sóttu þessa ráðstefnu sér til fræðslu og ánægju. Hinir
hollensku kollegar tóku vel á móti íslendingunum og voru
þar margir áhugaverðir fyrirlestrar í boði. Mikið var þar
fjallað um að koma á einhvers konar sérnámi fyrir
speglanahjúkrunarfræðinga og sýndist sitt hverjum um
hvernig að því skuli staðið. Rætt var um allt frá stuttum
námskeiðum og upp í tveggja ára sérnám. Á vegum félags
evrópskra hjúkrunarfræðinga starfandi við speglanir (skst.
ESGENA) starfar nefnd sem fjallar um þetta sérnám og
mun hún skila áliti innan tíðar.
Fyrir hönd Innsýnar, bestu kveðjur
Ragnheiður Gunnarsdóttir
gjaldkeri í stjórn Innsýnar.
ragnhgun@landspitali.is
Frá fagdeíld tengdri þvag-
færahjúkrun
Þriðja starfsári fagdeildar hjúkrunarfræðinga tengdrar
þvagfærahjúkrun er nú nýlokið. Þegar litið er yfir starfsemi
fagdeildarinnar á liðnu starfsári er óhætt að segja að hún
hafi fengið ýmsu áorkað og má þar nefna fræðslu til fag-
deildarfélaga. Haldnir voru tveir fræðslufundir í húsnæði
Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga. Kristbjörg Jóhanns-
dóttir og Lilja Arnardóttir, hjúkrunarfræðingar, kynntu rann-
sóknarniðurstöður sínar varðandi reynslu karla af brott-
námi blöðruhálskirtils vegna krabbameins og á þann fund
komu einnig 3 karlar úr stuðningshópi karla með blöðru-
hálskirtilskrabbamein og sátu fyrir svörum. Má með sanni
segja að ýmislegt forvitnilegt hafi komið þar fram. Þá hélt
Guðmundur Geirsson, þvagfærasérfræðingur, erindi um
þvagleka og Þorgerður Sigurðardóttir, sjúkraþjálfari, var
með fyrirlestur um þjálfun grindarbotnsvöðva og gátu
fundargestir æft sig undir leiðsögn í þeim æfingum.
Nokkrir fagdeildarfélagar sóttu ráðstefnuferðir í tengsl-
um við þvagfærahjúkrun og styrkti fagsjóður fagdeildar-
innar þær ferðir að hluta til. Tveir fagdeildarfélagar fóru til
Torqay í Bretlandi, fjórir fóru á norrænu NUF (Nordisk
Urology Forening) ráðstefnuna í Finnlandi og tveir til
Bandaríkjanna á SUNA (Society of Urologic Nurses and
Associates) ráðstefnuna. Er óhætt að segja að þessar
ferðir leiði ýmislegt gott af sér, eins og meiri upplýsingar til
fagdeiidarfélaga um sérnám, ný tengsl eins og við EAUN
(European Association of Urology Nurses) og síðast en
ekki síst alla þá umræðu sem kemur í kjölfar þessara
kynna af þvagfærahjúkrun annars staðar í heiminum.
Hægt er að lesa meira um þessar ráðstefnuferðir í frétta-
bréfum fagdeildarinnar en þau voru þrjú á síðastliðnu
starfsári.
Fagdeildinni hafa borist ýmsir bæklingar og fræðsluefni
frá Norðurlöndunum og Bretlandi og er ætlunin að nota þá
við gerð fræðsluefnis hér á landi.
Eitt helsta umræðuefni fagdeildarinnar nú er fyrirkomu-
lag fræðslunnar. Þetta verður aðalverkefni vetrarins og
spennandi að sjá hvernig það kemur til með að þróast.
F.h. fagdeildar hjúkrunarfræðinga
tengdrar þvagfærahjúkrun
Anna Jónsdóttir formaður
annajon@landspitali.is
346
Tímarit hjúkrunarfræðinga • 5. tbl. 77. árg. 2001