Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.02.1985, Side 12
sérstakan lið í rekstarreikningi samstæðu
fyrir ofan línuna hagnað ársins, en eftir skatta
ársins.
Reikningsskilanefnd á vegum lögggiltra
endurskoðenda í Kanada lagði til eftirfarandi
varðandi hlutdeild minnihluta: „Hlutdeild
minnihluta í eigin fé skal sýna sérstaklega í
samstæðuársreikningi og ef um forréttindab-
réf er að ræða skal greina frá hlutdeild
minnihluta í þeim.
Hlutdeild minnihluta í hagnaði eða tapi
ársins skal sýna sem sérstakan lið í rekstrar-
reikningi".
Ef móðurfélag selur hluta af hlutafjáreign
sinni í dótturfélagi og söluverðið er ekki hið
sama og bókfært verð, er venjan sú að
meðhöndla mismuninn sem hagnað eða tap
samstæðunnar og þ.a.l. að taka tillit til hans
í rekstrarreikningi samstæðunnar.
Ef dótturfélag gefur út viðbótarhlutafé þá
breytist hlutdeild minnihluta nema móðurfé-
lagið kaup sama hluta í viðbótarhlutafénu og
það á fyrir í félaginu. Á sama hátt getur
dótturfélag eignast hluta af áður útgefnu
hlutafé og þannig haft áhrif á hlutdeild
minnihluta.
Þegar félag eignast meirihluta í öðru félagi
og greiðir meira eða minna fyrir þá fjárfest-
ingu en sem nemur bókfærðu verði, verður
það félag sem fjárfesti að fást við það
vandamál hvernig eigi að skipta þeim mis-
muni sem er á kostnaðarverði fjárfestingar-
innar og hlutdeild félagsins í bókfærðu eigin
fé dótturfélagsins. Félagið sem fjárfestir ætti
að gera sér grein fyrir þeim þáttum sem valda
þessum mismun á kostnaðarverði fjárfesting-
arinnar og bókfærðu eigin fé og dreifa
mismuninum á viðkomandi liði og færa
afgang síðan á viðskiptavild (goodwill). Hlut-
deild minnihluta í eigin fé dótturfélagsins er
áfram færð sem sama upphæð en sú fjárhæð
sem móðurfélagið greiðir fyrir sinn hluta
hefur ekki áhrif á hlutdeild minnihluta.
Hlutdeild minnihluta í tapi er færð til
lækkunar á hlutdeild hans í eigin fé í sam-
stæðureikningsskilum. Þegar hlutdeild minni-
hluta í uppsöfnuðum töpum er orðin jöfn
hlutdeild hans í eigin fé er venjan sú að hætta
að færa upp hlutdeild minnihluta í frekari
töpum. Venjulega er ekki hægt að krefjast
þess að minnihluti hluthafa leggi fram meira
fjármagn til rekstursins, þannig að færa ber
frekari töp að öllu leyti á hlutdeild meirihluta.
Samkvæmt bandarískum reikningsskila-
venjum hefur hlutdeild minnihluta ekki áhrif
á þá upphæð hagnaðar af milliviðskiptum
sem felld er niður í samstæðureikningsskilum
Það að fella niður allan hagnað af millivið-
skiptum í samstæðureikningsskilum er í sam-
ræmi við þá staðhæfingu að samstæðureikn-
ingsksil sýni fjárhagslega stöðu og rekstrar-
árangur einnar rekstrareiningar. Niðurfell-
ingu hagnaðar af milliviðskiptum má síðan
skipta hlutfallslega milli meirihluta og
minnihluta í félaginu.
1.5. Niðurfelling milliviðskipta (intercom-
pany eliminations):
Samstæðureikningsskil eru gerð á grund-
velli þeirra staðhæfingar að þau lýsi fárhags-
legri stöðu og rekstarárangri einnar efnahags-
legrar einingar og þess vegna beri að fella
niður fjárfestingar milli félaga í samstæðu,
viðskiptastöðu, sölu og öll önnur viðskipti.
Hagnaður eða tap af milliviðskiptum með
fastafjármuni sem ennþá eru í eigu samstæð-
unnar skal einnig fella niður. Ef skattar hafa
verið greiddir eða reiknaðir upp af hagnaði af
milliviðskiptum með fastafjármuni sem
ennþá eru í eigu samstæðunnar ber að fara
með þá sem fyrirframgreidda skatta eða
frestaða skattskuld.
í nokkrum iðngreinum, sem háðar eru
opinberu eftirliti í Bandaríkjunum og Kan-
ada, þar sem móður- eða dótturfélag fram-
leiðir eða byggir fyrir önnur félög í samstæð-
unni er þess ekki krafist að hagnaður af
milliviðskiptum sé felldur niður, enda sé
hann í samræmi við eðlilega ávöxtun fjár-
10