Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.02.1985, Síða 31
Af afmælisgolfmóti F.L.E
F.L.E. varð 50 ára 16. júlí s.l. eins og
margoft hefur komið fram. Golfáhugamenn
innan félagsins minntust dagsins og tóku sér
frí frá störfum vegna afmælisgolfmóts.
Mótið var hið þriðja í röðinni hjá félaginu
en bar af hinum fyrri hvað viðhöfn og
framkvæmd snerti. Þátttakendur voru margir
og mættu til leiks á velli Golfklúbbs Reykja-
víkur stundvíslega. Einstaka menn höfðu
samviskubit vegna þátttöku sinnar þ.e. allra
síðustu uppgjörin voru á vinnuborðinu, en
ekki er þó enn vitað um veruleg viðskiptasam-
bönd sem töpuðust vegna þessa. Samviskubit-
ið var heldur ekki meira en það að þegar út í
leikinn var komið gleymdust viðskipta-
mennirnir alveg.
Fráfarandi golfnefnd setti mótið við hátfð-
lega athöfn. Flún sýndi einnig miklar einræð-
istilhneigingar og raðaði mönnum saman í
hópa eftir eigin geðþótta. Að skipan hennar
gengu menn síðan á teig og fyrstu glæsihögg
dagsins flugu af stað (misjafnlega bein og
löng að vísu).
Kvisast hafði út að keppt væri um vegleg
verðlaun að þessu sinni og því var keppnis-
skjálfti í mönnum. Mátti víða um völlinn sjá
virðulega þátttakendur liggjandi á maganum
við skoðun og endurskoðun á púttlínum og
beiðnir um að fá að endurtaka einstaka högg
heyrðust fram bornar. Hvert aukahögg gat
nefnilega orðið dýrkeypt við samlagningu í
lokin.
í golfi skiptast iðulega á skin og skúrir og
voru engar undantekningar á því í þessu
móti. Árni einpúttaði t.d. á 6. flöt og hlaut
fyrir það mikið lof þeirra er til sáu. Jónatan
heimsótti flestar sandforfærur vallarins og
hafði á orði að hann væri betur settur með
fötu og skóflu en kylfur og kúlu. Ómar sýndi
tilþrif og sló ekki í vatnið á 17, en talið er að
þar hafi lágt vatnsborð vegna þurrka hjálpað
til. Stefán var undir gífurlegri pressu nálægt
18. flöt vegna fjölda áhorfenda. Til þess að
þeir fengju eitthvað fyrir sinn snúð sýndi
hann fjölbreytileg (og mörg) högg á því stutta
svæði sem hann átti eftir ólokið. Fleiri dæmi
mætti nefna en þetta verður að duga að sinni.
Allir léku af „snilld" og komu heilir af velli.
Veruleg spenna ríkti manna á meðal um
úrslit mótsins, en þau voru kunngerð í
veglegu hófi, sem þátttakendur héldu sér og
mökum sínum um kvöldið. Þar voru afhent
verðlaun og sigurvegarinn hlaut veglegan
farandbikar til varðveislu í eitt ár. Hófið var
allt haldið í „léttum Laugarvatnsstíl" undir
öruggri stjórn Sigurðar Tómassonar og þótti
takast mjög vel.
Eins og með persónulegar upplýsingar og
tölur, sem við meðhöndlum í starfi okkar,
verður farið með úrslit mótsins sem trúnað-
armál og eiðstafur ekki brotinn.
Golfmót F.L.E. er því væntanlega orðið
árviss atburður, a.m.k. eru æfingar þegar
hafnar fyrir næsta mót. Æfingamót svo sem
„Björn og Ari closed“, „Manscher open“ og
„stórmót HH“ (Heimis og Helga) hafa verið
haldin og Guðjón og Guðmundur Friðrik eru
búnir að mála hvítu kúlurnar sínar rauðar
fyrir helgarmót sín í vetur. Aukin sala
golfsetta og bókanir í golfkennslutíma á
Reykjavíkursvæðinu benda einnig til þcss að
mikið er lagt upp úr góðri frammistöðu í
þessu móti.
Næsta mót verður því vonandi í svipuðum
gæðaflokki og afmælismótið. Undirbúningur
er þegar hafinn af miklum krafti og boðið
verður til þess með hækkandi sól.
Golfnefndin
29