Tímarit um endurskoðun og reikningshald - 01.02.1985, Side 38
svið. Ég tel, að þetta nám standist alveg
samanburð við nám i endurskoðun við
erlenda háskóla.
Kappkostað er að gera námið eins hagnýtt
og kostur er. En á hitt er lögð engu minni
áhersla að kynna fyrir nemendum það sem
gerist meðal annarra þjóða í þessu efnum og
þær hugmyndir, sem uppi eru meðal fræði-
manna hverju sinni, þótt ekki hafi þær allar
komist í framkvæmd. Með þessum hætti tel
ég mun líklegra en annars, að nemendur flytji
með sér út í atvinnulífið þá þekkingu sem þeir
hafa aflað sér úr þeim fræðibókum og öðru
efni, sem þeim var ætlað að kunna skil á.
Markmið deildarinnar hefur frá upphafi
verið, að nemendur hafi ekki einvörðungu
tileinkað sér færni í að leysa úr þeim vanda-
málum, sem vitað er að koma á borð þeirra,
heldur hafi þeim skilist að aukin fræðileg
þekking á faginu auðveldi þeim að leysa þau
vandamál, sem framtíðin hlýtur óhjákvæmi-
lega að bera í skauti sínu.
Pað hlýtur að vera skoðun allra þeirra, sem
hér eru að nauðsynlegt sé, að til sé í landinu
stétt manna, sem getur gefið hlutlaust álit á
reikningsskilum fyrirtækja og stofnana. Til
þess að standa við þessi fyrirmæli Alþingis,
en vitnað var til laga um löggilta endur-
skoðendur, verður stéttin að hafa tiltrú og
njóta trausts þeirra, sem til hennar leita og
raunar þjóðfélagsins yfirleitt. Meiri menntun
stuðlar að því, að svo megi vera.
í síbreytilegu þjóðfélagi verða seint fundn-
ar varanlegar lausnir mála, hvort heldur um
er að ræða reikningshaldsmál eða önnur, og
það er hlutverk stéttar endurskoðenda að
vera sífellt að leita leiða til að endurbæta þá
frásagnartækni, sem við notum hverju sinni.
Viðfangsefnið, afkomumælingar fyrirtækja og
stofnana, er afar flókið og nægir þar að benda
á þau áhrif, sem verðbólga hefur haft til að
brengla úrslit reikningsskila. Félagsmenn
þurfa því að vera vakandi gagnvart því,
hvernig sífellt megi betrumbæta menntun
endurskoðenda. Á þetta bæði við um mennt-
un þeirra, sem eru að búa sig undir að gegna
þessum starfa, en einnig, og ekki síður, á það
við um símenntun starfandi endurskoðenda,
því ekki síst á þessu sviði er vaxtarbrodd
stéttarinnar að finna.
Ég vil ljúka máli mínu með því að flytja
félagi löggiltra endurskoðenda bestu kveðjur
viðskiptadeildar háskólans og árna þvf heilla
á þessum tímamótum. Það er ósk mín,
félaginu til handa, að þegar við hittumst hér
að fimmtíu árum liðnum megi jafnvel enn
meiri framfarir hafa orðið í menntun og
störfum endurskoðenda, en á síðustu fimmtíu
árum.
36