Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2016, Qupperneq 2
2 Fréttir Helgarblað 11.–14. mars 2016
Gerðu daginn
eftirminnilegan
Kökulist | Firði Hafnarfirði og Valgeirsbakarí | Hólagötu 17 í Reykjanesbæ
Bakarameistari & Konditormeistari
Skoðaðu tertuúrvalið á heimasíðunni www.kokulist.is
E
ftirfarandi athuga
semd barst DV frá
Útlendingastofnun
vegna forsíðu síð
asta tölublaðs.
„Á forsíðu DV 8. mars
2016 er vísað til úttektar
blaðsins um málefni um
sækjenda um vernd á Ís
landi með fyrirsögninni:
„JÁ 189. NEI 696. BIÐ 98“
Eins og réttilega kem
ur fram í úttektinni inni í
blaðinu var 296 umsókn
um um vernd synjað,
258 umsóknir voru afgreiddar á
grundvelli Dyflinnarreglugerðar
innar, þ.e. ekki var tekin ákvörðun
í málum umsækjendanna vegna
þess að önnur ríki báru ábyrgð á
umsóknum þeirra, og 142 málum
lauk án ákvörðunar vegna þess að
umsækjendur annaðhvort drógu
umsóknir sínar til baka eða hurfu.
Að slá þessum þremur tölum
saman á forsíðu undir fyrirsögn
inni „NEI 696“ gefur ekki aðeins
villandi upplýsingar um afgreiðslu
Útlendingastofnunar á umsókn
um um hæli á undanförnum árum
heldur er þetta beinlínis rangt.
„Nei“ við umsóknum um hæli
fengu 296 umsækjendur, eins og
áður kom fram.
Útlendingastofnun fer hér með
fram á leiðréttingu þessarar fyrir
sagnar á útsíðu næsta tölublaðs
blaðsins eða á áberandi stað á inn
síðu.“
Athugasemd ritstjóra
DV stendur við forsíðutúlkun sína.
DV sér ekki ástæðu til að flokka
niður sérstaklega með hvaða hætti
Útlendingastofnun segir nei við
hælisleitendur. n
Athugasemd
við forsíðu DV
Nei eða??? Útlendingastofnun gerir
athugasemd við forsíðu DV. MyNd Sigtryggur Ari
Íslandsmeistarinn situr
heima út af 10 sentimetrum
n Stórmeistarinn Héðinn Steingrímsson keppir ekki á Alþjóðlega Reykjavíkurskákmótinu
T
íu sentimetrar gerðu að
verkum að Íslandsmeist
arinn í skák, Héðinn
Steingrímsson, ákvað að
mæta ekki til leiks á Alþjóð
lega Reykjavíkurskákmótið, sem nú
stendur yfir. Í nokkurn tíma hafa
deilur staðið yfir milli hans og Skák
sambands Íslands vegna stærð
ar þeirra borða sem notuð eru í
mótinu. Að mati Héðins er ekki farið
eftir reglum Alþjóða skáksambands
ins um aðbúnað og munar þar 10
sentimetrum. „Öll þessi ár hefur
engin kvartað yfir stærð borðanna
nema Héðinn Steingrímsson,“ segir
Gunnar Björnsson, forseti Skáksam
bands Ísland.
Þriðja besta opna
skákmót heims
Alþjóðlega Reykjavíkurskákmótið,
hið 31. í röðinni, stendur nú yfir í
glæsilegum salarkynnum í Hörpu.
Orðstír mótsins er góður og sem
dæmi var mótið kosið þriðja besta
opna skákmót heimsins af ACP,
samtökum atvinnumanna í skák.
Með „opnu“ móti er átt við að allir
geti skráð sig til leiks í mótið að því
gefnu að viðkomandi kunni mann
ganginn. Þúsund slíkra móti eru
haldin um allan heim á hverju ári
og því er vegsemdin sem í útnefn
ingunni felst mikil. Um er að ræða
eina innlenda mót ársins þar sem
erlendir skákmeistarar flykkjast til
landsins og því stingur það óneitan
lega í augun að ríkjandi Íslands
meistari, stórmeistarinn Héðinn
Steingrímsson, sé ekki meðal þátt
takenda.
Slæmur í hálsinum
„Héðinn vill að það sé farið eftir
reglum FIDE. Hann lenti í bílslysi
fyrir nokkrum árum og meiddist á
hálsi. Það gerir að verkum að hann á
erfitt með að tefla í margar klukku
stundir við borð sem eru of breið,“
segir Fríða Ásbjörnsdóttir, móðir
Héðins, í samtali við DV. Hún benti
á að Héðinn hefði fengið sérstakt
borð árið áður en ekki hafi orðið við
því í ár. Ekki náðist í Héðinn sjálf
an í vinnslu fréttarinnar en hann er
staddur erlendis.
Í handbók frá FIDE, Alþjóða
skáksambandinu, þar sem farið er
yfir ákjósanlegan aðbúnað á skák
mótum þá er tekið fram að borðin
sem notuð séu eigi að vera 85 senti
metrar á breidd og 110 sentimetrar
á lengd. Á breiddina má skeika 5
sentimetrum og á lengdina má
skeika 20 sentimetrum. Borðin sem
Harpa býður upp á eru hins vegar
100 sentimetrar á breidd og 120
sentimetrar á lengd. Þarna skeikar
því um 10 sentimetrum á breiddina,
sentimetrum sem skipta Héðin máli.
Fá hrós fyrir gott pláss
„Það er mikilvægt að hafa í huga að
leiðbeiningarnar sem koma fram í
handbók FIDE eru tilmæli en ekki
reglur. Mótið hefur verið haldið í
Hörpu undanfarin fimm ár og því
hafa þúsundir skákmanna teflt
á þessum borðum, þar á meðal
margir af sterkustu og reyndustu at
vinnumönnum heims. Öll þessi ár
hefur engin kvartað yfir stærð borð
anna nema Héðinn Steingrímsson.
Við fáum þvert í móti margar
athugasemdir þar sem keppendur
eru að hrósa okkur fyrir gott pláss,“
segir Gunnar Björnsson, forseti
Skáksambands Ísland sem stendur
fyrir mótinu.
Hann segir að ekki hafi komið
til greina að Héðinn fengi sérstakt
borð. „Það er skýrt kveðið á um það í
lögum FIDE að aðstæður allra kepp
enda í mótinu eigi að vera þær sömu.
Í fyrra fengum við athugasemdir við
þá staðreynd að Héðinn fékk aðra
tegund af borði og því var ákveðið að
verða ekki við því í ár,“ segir Gunnar.
Hann harmar að Héðinn hafi ekki
tekið þátt í mótinu. „Hingað eru að
koma atvinnumenn sem eru í hópi
sterkustu skákmanna heims. Að
sjálfsögðu vilja íslenskir skákáhuga
menn, og ég þar á meðal, sjá okkar
sterkustu skákmenn etja kappi við
þessa menn. Það er leitt að Héðinn
hafi ekki getað sætt sig við þetta,“
segir Gunnar. n
Ekki sér borð Gunnar Björnsson, forseti
skáksambandsins segir að ekki komi til
greina að Héðinn fái sitt eigið borð
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
astasigrun@dv.is
deilur Stórmeistarinn öflugi, Héðinn Steingrímsson, varð Íslandsmeistari í fyrra. Hann hefur fengið sig fullsaddan af borðunum sem boðið
er upp á í Reykjavíkurmótinu sem fram fer í Hörpu en hann telur þau vera 10 sentimetrum of löng.„Það er leitt að
Héðinn hafi ekki
getað sætt sig við þetta
gunnar Björnsson