Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2016, Page 16
Helgarblað 11.–14. mars 201616 Umræða
HamraHlíð 17, 105 reykjavík / Hús Blindrafélagsins / sími 552-2002
Vönduð
lesgleraugu
frá 3.900 kr.
Einar Kárason rithöfundur skrifar
Þér að segja
Guðfeður og Cosa Nostra
E
kki fyrir löngu sá ég enn
einu sinni allar „God-
father“-myndirnar og alltaf
sér maður betur og betur
hversu mikið snilldarverk
þessi flokkur er, og þó sérstaklega
tvær þær fyrstu. Og merkilegast
er kannski að frá sjónarhóli kvik-
myndafræðanna eru þessar myndir
í rauninni mjög hefðbundnar; þær
byggja ekki fyrst og fremst á frum-
legum og glæsilegum myndlistar-
verkum heldur eru það element eins
og mannlýsingar og samtöl sem eru
snilldin; að því leyti eru þessar kvik-
myndir bornar uppi af nokkurs-
konar bókmenntalegum, epískum
styrk. Sum af frásagnar elementum
þessara kvikmynda jaðra jafnvel
við að vera billeg: þannig er sagt í
öllum kennslubókum um handrits-
gerð fyrir kvikmyndir að menn skuli
forðast að kynna persónur með því
að láta aðra tala um þær, en í hinu
glæsilega upphafsatriði fyrstu Guð-
föðurmyndarinnar situr Michael
Corleone, leikinn af Al Pacino, og
segir nýrri kærustu sinni, Kay, sem
er túlkuð af Diane Keaton, deili á
mörgum af persónum myndarinnar;
á þann hátt eru þær kynntar til sögu.
En þetta gengur upp vegna þess að
samtalið er svo frábærlega samið.
Mario Puzo
Kvikmyndirnar eru eins og flestir vita
byggðar á bókmenntaverki, sam-
nefndri bók eftir rithöfundinn Mario
Puzo. Það þarf auðvitað ekki að taka
það fram að hann var mikill snill-
ingur, og það er alveg þess virði fyrir
unnendur kvikmyndanna að lesa
jafnframt bókina. Hún er reyndar
ekki gallalaus; í bókinni eru persónur
og frásagnarþættir sem virka sem
óþarfi og þannig hefur löngum köfl-
um verið sleppt úr kvikmyndahand-
ritunum. Það er líka merkilegt að í
rauninni ætlaði Puzo sér að umrædd
skáldsaga yrði hálfgert aukaatriði í
hans ferli; hann hafði áður fengist
við að skrifa „listrænar“ skáldsögur
sem fengið höfðu góða dóma en
seldust lítið; hann var í miklum fjár-
hagskröggum og ákvað að fara smá
útúrdúr og skrifa sögu sem væri
líkleg til að seljast; hræra í einn
Benito Mussolini
„Og svo fór að hann
hóf mikið stríð gegn
mafíunni, sem varð
til þess að margir úr
því liði fluttust til
Ameríku.“
Guðfaðirinn
„Sjálfur gamli Vito
Corleone, upphaflegi
Guðfaðirinn sem
Marlon Brando leikur
svo listilega, mun
í talsmáta og sem
persónuleiki vera
byggður á móður
höfundarins Mario
Puzo.“