Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2016, Qupperneq 30

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2016, Qupperneq 30
26 Skrýtið Sakamál Helgarblað 11.–14. mars 2016 T amara Samsonova, 68 ára kona frá Sankti Pétursborg í Rússlandi, er grunuð um fjölda morða þar í landi. Samsonova var handtekin 28. júlí, 2015, í kjölfar þess að lög- reglan fann líkamsleifar í tjörn í Sankti Pétursborg. Um var að ræða efri hluta líksins af Valentinu Ula- nova, 79 ára konu sem Samsonova hafði deilt húsnæði með, og vant- aði á líkið höfuðið og annan fót- legginn og handlegg. Ekki er talið loku fyrir það skotið að fórnarlömb Samsonovu, sem hefur fengið viðurnefnið „Amma ristir“, séu fleiri, jafnvel vel á annan tuginn. Við rannsókn á dauða Ulanovu upplýsti Samsonova að hún hefði sett ólyfjan í mat hennar. Ástæð- an var sú að Ulanova vildi losna við Samsonovu úr íbúðinni sem sú fyrrnefnda hafði forráð yfir. „Ég kom heim og setti heila pakkningu – 50 töflur – af Phen- azepamum í Oliver-salatið hennar. Henni fannst það mjög gott,“ sagði Samsonova við lögregluna. Feit og þung Samsonova sagði, samkvæmt yf- irheyrslum sem lekið var til dag- blaðsins Komsomolskaya Pravda, að hún hefði síðan farið á stjá klukkan tvö eftir miðnætti, eða þar um bil. Þá hefði Ulanova legið líf- vana á gólfinu. „Svo ég hófst handa við að búta hana niður. […] Það reyndist mér ofviða að bera hana inn á baðherbergi, hún var feit og þung. Ég gerði allt í eldhúsinu þar sem hún lá.“ Síðar þegar glæpurinn var settur á svið sýndi Samsonova lög- reglunni hvernig hún hafði bor- ið sig að. Hún hafði notað sög sem hún hafði fengið lánaða hjá ná- grönnum þeirra fyrir löngu. Af með höfuðið Höfuðið fékk fyrst að fjúka og setti Samsonova það í stóran pott og sauð. Lögreglan taldi ekki útilokað að Samsonova hefði lagt sér haus- inn til munns en önnur kenning var að hún hefði soðið hann og einnig hendurnar til að draga úr líkum á að kennsl yrðu borin á aðra líkams- hluta síðar meir. Samsonova losaði sig við líkamsleifarnar í grennd við fjölbýlishúsið sem íbúðin var í. Samsonova lýsti hvernig hún vafði líkamshlutunum inn í gard- ínur og setti síðan í poka. Það tók hana tvo klukkutíma og sjö ferðir út í nóttina að losa sig við líkamsleif- ar Ulanovu og henni tókst ekki að bera fæturna og mjaðmahlutann nema rétt yfir í næsta bakgarð. Restinni tókst henni að fleygja í tjörn skammt frá Dimitrova-stræti (fyrir þá sem eru kunnugir stað- háttum). Í bláum regnstakk Upptökur úr eftirlitsmyndavélum sýndu manneskju í bláum regn- stakk. „Hún dró á eftir sér poka sem skildu eftir sig blóðslóð á gólfinu,“ sagði í skýrslum. Hundar í hverfinu þefuðu uppi líkamsleifarnar 26. júlí og í kjöl- farið hófst viðamikil leit af hálfu lögreglunnar. Starfsmaður félags- þjónustunnar tilkynnti um hvarf Ulanovu eftir að Samsonova hafði meinað honum inngöngu í íbúð- ina. Skömmu síðar bankaði lög- reglan upp á hjá Samsonovu sem án málalenginga játaði að hafa banað Ulanovu … og þremur öðr- um. Dagbækur á þremur tungumálum Samsonova átti eigin íbúð og eðli málsins samkvæmt var hún rann- sökuð ítarlega. Þar fundust dag- bækur hennar, skrifaðar á þýsku, ensku og rússnesku. Flestar færsl- urnar vörðuðu einhæft, daglegt líf Samsonovu en ein varpaði ljósi á væntumþykju hennar í garð Val- entinu Ulanova; að henni fyndist gott að búa með henni. „Ég elska Valya,“ var skrifað í eina dagbókina. Við yfirheyrslur upplýsti Sam- sonova að Ulanova hefði sagt við hana: „Ég er þreytt á þér,“ og beðið hana að flytja út. „Mig óaði við að búa heima, ég fór í kerfi,“ sagði Sam- sonova og bætti við að með því að fyrirkoma Ulanovu þá hefði hún getað „búið í íbúð hennar í friði í fimm mánuði, þangað til ættingjar hennar, eða einhverjir aðrir, birtust.“ Tveir leigjendur Samsonova mun að sögn hafa ját- að fyrir lögreglu að hafa myrt tvo af leigjendum sínum; byrlað þeim ólyfjan og síðan bútað líkin niður. „Ég drap Volodya, leigjanda minn, skar hann í bita í baðherberginu með hníf, setti líkamshlutana í plastpoka og henti þeim hér og þar í Frunzensky-hverfinu (enn og aft- ur; fyrir þá sem eru kunnugir stað- háttum).“ Lögregluna grunar að hún hafi að auki sent eiginmann sinn yfir í eilífðina. Hann hvarf fyrir 15 árum og sagði Samsonova nágrönnum að hann hefði yfirgefið hana fyrir aðra konu. Lögreglunni sagði hún aftur á móti að hann hefði einfald- lega horfið. Fingurkoss í kveðjuskyni Lögreglan óttast að Samsonova hafi hent höfði og höndum Ula- novu í ruslagám við fjölbýlishús- ið. Gámurinn var losaður laugar- daginn 25. júlí, daginn áður en hundarnir fundu aðrar líkamsleif- ar Valentinu, og því ólíklegt að höf- uðið og hendurnar komi nokkurn tímann í leitirnar. Samsonova var að sjálfsögðu úr- skurðuð í gæsluvarðhald og í dóm- sal í kjölfarið sagði hún við blaða- menn: „Ég vissi að þið mynduð koma. Þetta er svo mikil hneisa fyr- ir mig, þetta verður á allra vörum í borginni.“ Síðan sendi Samsonova blaða- mönnum fingurkoss í kveðjuskyni – segir sagan. Hver örlög Samsonovu verða mun tíminn leiða í ljós. n Myrkraverk TaMöru n Samsonova vildi ekki búa heima hjá sér n Ulanova vildi losna við hana Í bláum regnstakk Samsonova með poka við fætur sér. Í varðhaldi Samsonova bíður örlaga sinna. Fingurkoss Tamara kveður blaðamenn. Í skjóli myrkurs Með pottinn með höfð- inu í (að því talið er). Fórnarlamb Samsonovu þótti gott að búa með Valentinu Ulanovu. „Það reyndist mér ofviða að bera hana inn á baðherbergi, hún var feit og þung Kr in gl an Kr in gl um ýr ar br au t Miklabraut Miklabraut Við erum hér! Tilb oð 17 10 bitar fyrir 4-5 5 Stórir bitar og 5 minni. Stórt hrásalat og kokteilsósa. Stór af frönskum og 2l. Pepsi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.