Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2016, Qupperneq 35

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2016, Qupperneq 35
Menning 31Helgarblað 11.–14. mars 2016 Þ að var heimildamyndin Hvað er svona merkilegt við það? eftir Höllu Kristínu Einarsdóttur sem hlaut Menningarverðlaun DV 2015 í flokki kvikmyndalistar. „Í þessari kraftmiklu heimilda­ mynd varpar Halla Kristín leik­ stjóri ljósi á skrautlega og grósku­ mikla kvennabaráttu níunda og tíunda áratugarins,“ segir í rökstuðn­ ingi dómnefndar. „Með húmor og hnyttni að vopni tryggja leikstýran Halla Kristín og framleiðandi Hrafn­ hildur Gunnarsdóttir, að saga ís­ lenskra kvenna sé ekki aðeins áhuga­ verð, heldur einnig stórskemmtileg. Byltingarandi tímabilsins er fangaður með einstökum hætti í þessu mikil­ væga innleggi í íslenska kvennasögu.“ Fannst þessar myndir vanta Halla Kristín hefur áður skoðað kvennabaráttuna í heimilda­ myndinni Konur á rauðum sokkum sem fjallaði um íslensku rauðsokka­ hreyfinguna. „Þessu saga tekur við þar sem sú mynd endar. Þetta var næsti sjáanlegi hluti íslensku kvenna­ baráttunnar sem hægt var að taka út. Mér fannst þessar myndir einfaldlega vanta, og þar sem það var enginn að gera sig líklegan þá ákvað ég bara að sjá hvað ég kæmist langt með þetta,“ segir Halla Kristín. Í myndinni tekur Halla Kristín við­ töl við margar af þeim konum sem voru áberandi í kvennahreyfingunni á þessum tíma, meðal annars Ingi­ björgu Sólrúnu Gísladóttur, Salome Þorkelsdóttur, Þórhildi Þorleifsdóttur, Kristínu Ástgeirsdóttur, Sigríði Dúnu Kristmundsdóttur, Guðrúnu Agnars­ dóttur, auk þekktra listakvenna á borð Ragnhildi Gísla­ dóttur og Eddu Björg­ vinsdóttur. „Ég held að það sé mjög mikilvægt fyrir samfélagið að gleyma ekki því sem ákveðnir einstak­ lingar þurftu að leggja á sig til þess að nútíminn yrði eins og hann er. Mann­ réttindi verða ekki til af sjálfum sér, held­ ur þarf einhver að krefjast þeirra,“ seg­ ir Halla Kristín. „En Kvennalistinn var líka mjög merkileg lýðræðistilraun sem á full­ komlega erindi við samtíma okkar og þær hræringar sem eru í pólitík í dag. Það er ákveðið bergmál í fortíðinni við þá hluti sem við erum að upplifa núna.“ Heimildamyndin ekki endanlegur sannleikur Gerð myndarinnar dróst nokkuð á langinn vegna hrunsins – en það hentaði þó ágæt­ lega að hún var loks frumsýnd á aldar­ afmæli kosninga­ réttar íslenskra kvenna. „Fyrsta við­ talið var tekið árið 2011 en aðalupptökurnar fóru fram í kringum 2013 en það var erfitt að fjármagna myndina, svona rétt í kjöl­ far hrunsins þegar allt var í járnum. Þetta er líka svolítið staðbundið efni svo fjármögnunin tók sinn tíma,“ segir hún. Auk viðtala notaði Halla Kristín hreyfimyndir til að koma sögunni til skila. „Þegar maður er að búa til heim­ ildamyndir um fortíðina getur mað­ ur auðvitað ekki verið á staðnum til að taka upp atburði. Þá verður mað­ ur að finna leiðir til að koma sögunni í mynd. Ég hafði verið að vinna með Unu Lorenzen hreyfimyndagerðar­ konu sem býr í Bandaríkjunum. Við ákváðum að skella í hreyfimyndir, en þær eru byggðar á myndheimi tímans sem um ræðir. Við notuðum þær bæði til að endurvekja ákveðna stemningu og til að sýna svolítið flippaðri hlið á baráttunni.“ En af hverju heimildamyndir? „Þetta er mjög spennandi og frjálslegt form í mikilli þróun. Af einhverjum ástæðum er heimildamyndaformið miklu frjálsara en leiknu myndirn­ ar, og hægt að komast upp með alls konar hluti sem maður getur ekki í leiknum myndum. Þegar maður er að fjalla um hluti sem hafa gerst í raun og veru hefur þetta náttúrlega tengingu sem leiknar myndir hafa ekki – jafnvel þótt það geti verið mjög loðið. Ég lít ekkert á heimildamyndir sem endanlegan sannleik – skapandi heimildamyndir eru samtal við sam­ félagið og umheiminn.“ Hvað er svona merkilegt við það? hefur hlotið Edduna í flokki heim­ ildamynda, áhorfendaverðlaunin á kvikmyndahátíðinni Skjaldborg, var tilnefnd til Nordisk Panorama og hlýtur nú Menningarverðlaun DV. „Þessi verðlaun skipta máli upp á það að maður fær staðfestingu á því að vinnan sé að skila sér til áhorf­ enda. Það er gott að fá staðfestingu á því að maður sé að segja sögur sem skipti máli – og kemur manni eflaust vel þegar maður sækir um styrki fyrir næstu mynd,“ segir Halla. „Ég lít ekkert á heimildamyndir sem endanlegan sannleik – skapandi heimildamyndir eru samtal við samfélagið og umheiminn. Í samtali við samfélagið og umheiminn Hvað er svona merkilegt við það? eftir Höllu Kristínu Einarsdóttur Kvikmyndir L inda Vilhjálmsdóttir hlaut Menningarverðlaun DV 2015 í flokki bókmennta fyrir ljóða­ bókina Frelsi. Í rökstuðningi dómnefndar segir: „Þrátt fyrir ein­ staka fágun sem einkennir ljóðin í Frelsi hefur Linda Vilhjálmsdóttir á engan hátt dregið tennurnar úr ádeilunni eða mýkt hina ískr­ andi reiði sem hún miðlar í þessari tíðar­ andalýsingu og heimsósóma­ predikun. Út­ koman er ein sterkasta ljóða­ bók síðari ára. Þörf áminning um trylling nánustu fortíð­ ar, illþolandi hlutskipti mannkyns í samtíman­ um og möguleika ljóðs­ ins til að segja sann­ leikann á meitlaðan og áhrifaríkan hátt.“ Heimsósómi og góðar viðtökur Fyrsta ljóðabók Lindu, Bláþráður, kom út árið 1990 en síð­ an þá hefur hún sent frá sér ljóðabækur, skrifað leik­ rit, og sjálfsævisögulegu skáld­ söguna Lygasaga. Nokkuð langt er frá síðustu ljóðabók Lindu og því biðu margir spenntir eftir út­ komu Frelsis. Í ræðu sinni sagðist Linda fyrst hafa gert sér grein fyrir því þegar bókin kom út að kannski hefði enginn áhuga á því að lesa slíkan heimsósóma – og því sé hún ánægð með viðtökurnar. Bókin hlaut mikið lof gagn­ rýnenda, var ein umtalaðasta ljóðabók jóla­ bókaflóðsins og fyrsta prentun seldist upp. Fyrir Frelsi hlaut Linda hlaut einnig bók­ salaverðlaunin fyrir bestu ljóða­ bókina. Þetta er í annað skipti sem Linda hlýtur Menningarverð­ laun DV en síð­ ast hlaut hún þau árið 1993 fyrir ljóðabókina Klakabörn. Íslenski draumurinn er fals „Frelsi sam­ anstendur af fjórum ljóð­ um sem öll hverfast um sama megin­ þemað sem titillinn vísar til. Sé bókin lesin í einni lotu virðast ljóðin bland­ ast saman í eitt en fókus ljóð­ mælanda sé það eina sem breyt­ ist. Þannig fæst ákveðin örmynd af heiminum frá fjórum ólíkum sjónar hornum,“ skrifaði Arngrímur Vídalín um bókina í DV. „Ljóðmælandi ræðst til atlögu við táknmyndir óbreytts ástands og sinnuleysis: það má ekki láta sig vanta á þjóðhátíð, í brennuna, á neyðarmóttökuna. Þetta er eins af­ hjúpandi og það er háðskt. Hér er það frelsið til að horfast ekki í augu við veruleikann sem er til grund­ vallar, sami úthverfatónninn og í upphafi bókar en síngjarnari fyrir það að veruleikinn hefur sýnt sig vera annan en hann sýndist í fyrstu, að íslenski draumurinn er fals,“ skrifar hann. Ein sterkasta ljóðabók síðari ára Bókmenntir Plast, miðar og tæki ehf. Krókhálsi 1 110 Reykjavík s. 567 8888 www.pmt.is gæði – þekking – þjónusta TANITA FITUMÆLINGAVOGIR Nauðsynleg hjálpartæki eftir jól Nánari upplýsingar á www.pmt.is eða í síma 567 8888 Tengist við iPhone með Bluetooth Linda Vilhjálmsdóttir fyrir ljóðabókina Frelsi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.