Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2016, Page 36

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2016, Page 36
32 Menning Helgarblað 11.–14. mars 2016 M elkorka Sigríður Magnús- dóttir danslistakona hlaut Menningarverðlaun DV 2015 í flokki danslistar fyrir dans- og tónlistarverkefnið Milky- whale. „Milkywhale er söngsjálf Mel- korku þar sem hún stígur fram sem einmana hvalur sem á erfitt með að feta sig í gegnum lífið,“ segir í rökstuðningi dómnefndarinnar. „Í verkinu fær hún til liðs við sig Árna Rúnar Hlöðversson sem semur tón- listina við texta Auðar Övu Ólafs- dóttur en Magnús Leifsson og Jó- hann Ágústsson sjá um vídeó- og ljósahönnun. Milkywhale var upp- haflega sett upp sem dansverk fyrir Reykjavík Dance Festival, sem tón- leikaskotin kóreógrafía þar sem að- ferðir danssmíðanna voru nýttar til að binda saman þemabundinn laga- lista. Seinna meir var sviðs verkið flutt upp á tónleikasvið Airwaves og verkinu snúið yfir í kóreógrafer- aða tónleika sem studdir voru af kraftmikilli sviðsumgjörð ljósa og vídeós. Í báðum tilvikum nær Mel- korka að fanga athygli áhorfenda með óvæntum uppákomum og skotheldri sviðsframkomu.“ Hreyfiorðaforði hvalsins Melkorka lærði danssmíði við School for New Dance Develop- ment (SNDO) í Amsterdam og samtímadans í P.A.R.T.S. í Brussel og hefur á undanförnum árum unnið að verkefnum á mörkum dans- og tónlistar. „Ef það er hægt að segja að hver listamaður hafi sína fagur- fræði þá gengur mín fagurfræði svolítið út á að samtvinna dans og tónlist og finna sambandið þar á milli. Ég hef líka verið að skoða tón- leika sem sviðsform – sem eitthvað meira en bara tónlist. Mér hefur þótt mjög gaman að performera og kóreógrafera tónleika, og það er eiginlega það sem Milkywhale er, kóreógraferaðir tónleikar,“ segir Melkorka. Milkywhale kom fyrst fram á Reykjavík Dance Festival, en þá fékk hún Auði Övu Ólafsdóttur rit- höfund til að skrifa texta sem Mel- korka og Árni Rúnar Hlöðversson, úr hljómsveitinni FM Belfast, unnu svo tónlist við. „Ég held að Árni hafi upprunalega haldið að hann væri að fara í rosalega alvarlegt dansverk efni og svo komst hann að því að mig langaði bara að gera popplög – þá varð hann afskaplega ánægður,“ segir Melkorka. Í framhaldinu þróaði Melkorka hreyfiorðaforða sem hentaði hinum einmana hvíta hval Milky- whale og velti fyrir sér hvernig væri best að sviðsetja hvert lag fyrir sig. „Ég bjó til ákveðinn ramma og orðaforða sem hefur síðan þróast með hverri sýningu. Verkið á RDF var töluvert formfastara en það sem við spilum núna á tónleikum, en bæði formin fela í sér mjög mikla hreyfingu. Dansinn og tónlistin vega jafn mikið í verkinu.“ Dansverk á Hróarskeldu og Airwaves Milkywhale hefur nú komið fram á tónlistarhátíðum á borð við Airwaves og Sónar og mun stíga á svið á Hróarskelduhátíðinni í sumar. Melkorka segir verkið hafa þróast þegar vettvangurinn hefur færst úr danssenunni og upp á tón- leikasviðið – en tónleikana segir hún virkilega áhugavert listform. „Við Árni vorum bæði orðin svo þreytt á að fara á tónleika og vita nákvæmlega við hverju var að búast. En tónleikar eru hins vegar svo spennandi vettvangur þannig að okkur langaði að skapa heild- ræna sýn, með ljósum, hljóði og upplifun,“ segir hún. „Það er mjög áhugavert og gam- an að fara upp á svið á tónlistar- hátíðum og sjá að fólki finnst þetta vera eitthvað nýtt og spennandi og sjá það hrífast með – ef ég dansa þá dansar það! Maður er einn uppi á sviði, eins og æðstiprestur að stjórna söfnuði af fólki og það finnst mér ótrúlega spennandi form að rannsaka.“ Melkorka segist ekki endi- lega hafa búist við svo góðum við- tökum. „Mér finnst mikilvægt að vera auðmjúk gagnvart listinni og virðing gagnvart henni er svo ótrú- lega mikil væg. Í sjálfu sér býst mað- ur aldrei við neinu svona. En það er mjög gaman að sjá að þetta verk- efni sem byrjaði sem dansverk fara inn á eina stærstu tónlistarhátíð í heimi – ég er ekki viss um að það hafi gerst nokkurn tímann áður.“ Melkorka Sigríður Magnúsdóttir fyrir dans- og tónlistarverkið Milkywhale Danslist Þ að var Þorleifur Örn Arnars- son sem hlaut menningar- verðlaun DV 2015 í flokki leiklistar fyrir leikstjórn Njálu í Borgarleikhúsinu, en verkið er byggt á handriti sem hann samdi ásamt Mikael Torfasyni. Í rökstuðningi dómnefndar segir: „Verkið er saman sett úr nokkrum sjálfstæðum en sam- hangandi þáttum sem blanda saman leik, dansi, söng og húskarlavígum á rappbardaga- formi sem allt myndar eina listi- lega kóreógraferaða heild, þar sem hvort tveggja skiptir jafn miklu máli: gáskafullur leikurinn að miðaldaritinu og virðingin fyrir því. Ekki síður eiga leik- ararnir allir sinn hlut í því hversu áhrifamikil Njála er, líka búninga- hönnuðurinn Sunneva Ása Weiss- happel, leikmyndahönnuðurinn Ilmur Stefánsdóttir og danshöf- undurinn Erna Ómarsdóttir. Krefj- andi verk hefur verið að halda öllu þessu stórvirki saman og þar á Þorleifur Örn mestan heiður.“ Smækkuð samfélagsleg tilraun Þorleifur Örn er staddur í lang- þráðu fríi á Balí í Indónesíu en sendi Kristínu Eysteinsdóttur, leik- hússtjóra Borgarleikhússins, til að taka við verðlaununum fyrir hans hönd og lesa upp ræðu. Í ræðunni lagði Þorleifur áherslu á mikilvægi listarinnar sem vettvangs til þess að vera og hugsa um hvað í því felst að vera manneskja. „Þegar við lögðum af stað í ferðalagið að setja þetta stórvirki íslenskra bókmennta á svið, þá var helsta hugsunin sú, að leita uppi hvað þetta verk þýðir fyrir nútíma Íslendinga, hvað leyndist í þessum gamla merka texta. Ekki að búa til „sýningu“ eða leita uppi „frumleg- ustu nálgunina“ til þess að koma henni á framfæri, heldur að leggja í raunverulega rannsókn á því hvað þetta verk er – og með því kannski komast aðeins nær kjarnanum í okkur sjálfum,“ skrifaði Þorleifur í ræðunni og bætti við hann hefði aldrei lagt út í uppsetningu vitandi minna um hvernig sýningin myndi líta út þegar upp væri staðið. „Því þó svo það væri betra fyrir taugarnar – þá er það svindl ef maður ákveður niðurstöðu rann- sóknarinnar áður en lagt er í hana. Ég reyndi að stilla ferlinu þannig upp að það endurspeglaði þá rannsókn sem lá til grundvallar vinnunni, að niðurstaðan viki fyrir rannsókninni (sem er líklega það skelfilegasta sem maður getur lagt á sig sem leikstjóri) og að sýningin yrði að lokum niðurstaða þessarar sameiginlegu rannsóknar þeirra sem að verkinu komu. Ekki niður- staða minnar rannsóknar, heldur yrði leikhúsið í þessu tilfelli eins og smækkuð samfélagsleg tilraun í kringum þetta höfuðverk okkar Ís- lendinga,“ sagði í ræðunni. Erfitt hlutskipti á tímum gegndarlausrar efnishyggju Að lokum þakkaði hann öllum þeim sem komu að sýningunni og tileinkaði þeim verðlaunin, en þakkaði umfram allt leikhússtjór- anum (og upplesaranum) Krist- ínu Eysteinsdóttur og bað alla við- stadda að klappa fyrir henni og Borgarleikhúsinu. Hann sagðist vonast til þess að viðurkenningin yrði hvatning til þeirra sem trúa á leikhúsið sem miðstöð rannsókna og framfara – fyrir manninn og samfélagið. „Leikhúsið er staður mannsandans og sálarinnar. Það er erfitt hlutskipti á tímum gegndarlausrar efnishyggju. Og ef leikhúsið gleymir því að það er fyrst og fremst staður rannsókna um manninn og tilurð hans, þá mun það hægt og rólega deyja út og verða tómlegur kassi utan um sprell og spaug,“ sagði í ræðunni. „Leikhúsið er staður mannsandans og sálarinnar“ Þorleifur Örn Arnarsson fyrir leikstjórin Njálu Leiklist TónLeikar seM dansverk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.