Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2016, Page 38

Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2016, Page 38
34 Menning Helgarblað 11.–14. mars 2016 Þ órunn Sigurðardóttir bók- menntafræðingur hlaut menningarverðlaun DV í flokki fræðirita fyrir bókina Heiður og huggun: erfiljóð, harmljóð og huggunarkvæði á 17. öld. Í rökstuðningi dómnefndar segir: „Heiður og huggun er merki- legt rit um bókmenntagreinar sem voru vinsælar fyrr á öldum. Þórunn hefur með rannsókn sinni á erfi- og harmljóðum á 17. öld unnið braut- ryðjandastarf í íslenskum bók- menntarannsóknum. Verkið er afar yfirgripsmikið og í því birtast í fyrsta sinn á prenti textar sem varðveittir eru í handritum. Rannsóknin er ýtarleg og Þórunn leggur áherslu á tengsl bókmennta og samfélags og gefur innsýn í hugsunarhátt og menningarheim 17. aldar og ber saman við hugmyndir okkar tíma. Afar vandað fræðirit og þarft inn- legg í íslenskar bókmenntarann- sóknir.“ Mörg ljóð prentuð í fyrsta skipti Dr. Þórunn Sigurðardóttir er bók- menntafræðingur sem hefur um árabil stundað rannsóknir á bók- menntum síðari alda auk þess að starfa við handritaskráningu og útgáfu texta úr handritum. Lengst hefur hún starfað á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, bæði sem starfsmaður stofnunar- innar í ýmsum verkefnum og sem gestafræðimaður. Þórunn segir að bókmenntir 17. og 18. aldarinnar hafi verið furðu- lega lítið rannsakaðar – enda hafi almennt verið álitið að þar fyrir- fyndist aðallega fábreyttur trúar- legur kveðskapur undir miklum áhrifum erlendis frá. Hún segir að tímabilið hafi þó að mörgu leyti verið frjótt og áhugavert. Við rannsóknina fór Þórunn í gegnum mikið magn handrita að leita uppi tækifæriskvæði tengd andláti einstaklinga. Mikið af slík- um ljóðum er því prentað í fyrsta skipti í bókinni. Gaman að fólk sýni 17. öldinni áhuga Í bókinni setur Þórunn ljóðin enn fremur í samhengi við samfélag þess tíma og tíðarandann sem þau eru samin í. Í rannsókninni voru kvæði ort eftir andlát samtímamanna skáld- anna flokkuð í þrjár bókmennta- greinar, og skiptir máli fyrir lestur og túlkun einstakra kvæða við hvaða kvæðagrein miðað er. „Erfiljóð voru ort til heiðurs hinum látna og fjöl- skyldu hans, en í þeim er sagt frá lífi hins látna í þriðju persónu frá- sögn. Minna þessi kvæði um margt á minningargreinar í dagblöðum í dag,“ segir Þórunn. „Harmljóð eru aftur á móti í fyrstu persónu. Í þeim talar ljóð- mælandi um sinn eigin ástvina- missi, harm sinn og söknuð, en kvæðin enda jafnan í sátt. Líkja mætti þessari kvæðagrein við sál- fræðimeðferð í nútímanum. Syrgj- endur fá tæki (texta í bundnu máli) til að nota í sorgarferli sínu. Í þriðja lagi eru það svo huggunar- kvæði þar sem ljóðmælandi ávarp- ar ákveðna syrgjendur og mælir til þeirra huggunarorðum.“ Þórunn segist vonast til að þessum bókmenntagreinum og tímabilinu verði gefinn meiri gaumur þegar íslensk bókmennta- saga er skoðuð í framtíðinni. Bókin var tilnefnd til viðurkenn- ingar Hagþenkis og hlaut Fjöru- verðlaunin í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis. Hún segist upp með sér að hljóta verðlaunin, og þakklát fyrir að fólk sýni bók um 17. aldar kveðskap slíkan áhuga. Brautryðjandastarf í íslenskum bókmenntarannsóknum Þórunn Sigurðardóttir fyrir fræðiritið Heiður og huggun: erfiljóð, harmljóð og huggunarkvæði á 17. öld Fræði Efla ungar stelpur í gegnum tónlistarsköpun Stelpur rokka! L esendaverðlaun dv.is hlutu grasrótarsamtökin Stelpur rokka! en flestir lesendur gáfu þeim atkvæði sitt í netkosn- ingu sem stóð yfir í aðdraganda verðlaunanna. Stelpur rokka! var tilnefnt í flokki tónlistar og sagði í rökstuðningi dómnefndar: „Grasrótarsamtökin Stelpur rokka! eru nú á sínu fimmta starfsári. Þessi sjálfboðaliðareknu samtök starfa af feminískri hugsjón við að efla ungar stelpur í gegnum tónlistarsköpun. Kjarninn í starf- inu eru rokksumarbúðirnar, en þar læra stelpur á hljóðfæri, hvern- ig það er að spila saman í hljóm- sveit, kynnast farsælum tónlistar- konum og fræðast um hinar ýmsu hliðar tónlistar og jafnréttisstarfs. Yfir 60 hljómsveitir hafa verið stofn- aðar í sumarbúðunum. Búðirnar fara sífellt stækkandi og verða settar á stofn búðir á Grænlandi og í Færeyjum sumarið 2016.“ Árið 2015 var viðburðaríkt hjá Stelpur rokka! en auk hinna hefð- bundnu rokksumarbúða hef- ur hópurinn meðal annars staðið fyrir vetrarrokkbúðum, farið af stað með haustdagskrá fyrir 13 til 16 ára stelpur, átt í samstarfi við pólskar kvennarokkbúðir og haldið tónleika á Iceland Airwaves. Nú hafa hátt í 300 stelpur tekið þátt í rokkbúðum Stelpur rokka! og myndað meira en 60 nýjar hljómsveitir. n Lesendaverðlaun

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.