Dagblaðið Vísir - DV - 11.03.2016, Side 47
Helgarblað 11.–14. mars 2016
Áskrifendum DV býðst nú 2 fyrir 1
á tónleika Trúbrots í Eldborgarsal
Hörpu þann 26. mars næstkomandi.
Áskrifendur sýna DV kort sitt í
afgreiðslu Hörpu til að nýta sér
tilboðið. Áskrifendur, sem vantar
DV kortið, geta sent fyrirspurn á
askrift@dv.is eða hringt í afgreiðslu
og verður sent kortið um hæl.
Á tónleikunum
verður m.a.
LIFUN, eitt
helsta
meistaraverk
íslenskrar
tónlistarsögu,
flutt í heild sinni.
Meðlimir Trúbrots, þeir Gunnar
Þórðarson, Magnús Kjartansson og
Shady Owens, skipa hljómsveitina
ásamt fleiri tónlistarmönnum.
2 fyrir 1
Áskriftarklúbbur DV
askrift@dv.is / Sími 512 7000
Tryggðu þér miðaTakmarkaður fjöldi í boði
Fólk 43
leika. Ég ímynda mér bara að ég sé
karakterinn og þá er ég bara hann
og ekkert að spá í hvað öðrum finnst
um mig, Jörund.“
Allt búið til af börnum
Þegar leikararnir ungu eru spurðir
um hvað sýningin fjallar og hvaða
hlutverk þeir leiki segja þeir erfitt að
útskýra það því verkið er ekki eins
og annað hefðbundið leikverk með
handriti, fyrirfram ákveðnum hreyf-
ingum og búningum.
Jörundur segir sýninguna djúpa,
eins og listaverk, og að hún fjalli um
afskaplega margt en samt ekki neitt.
Samstarfskona hans tekur undir með
honum og bætir við: „Þetta eru börn
sem eru að upplifa eitthvað eins og
þau séu fullorðin. Ég tala til dæmis
eins og ég sé þunglynd, fullorðin
manneskja og segi þá hvernig mann-
eskjunni líður. En það kemur aldrei
fram hvað ég heiti eða hver ég er.
Þess vegna getum við ekki sagt hvaða
hlutverk við leikum í sýningunni.“
Matthildur og Jörundur segja
ótrúlega gaman að fá að vera svona
skapandi og að nú séu þau byrj-
uð að sjá hvernig litlu hlutirnir sem
þau hafa verið að búa til séu farnir
að mynda eina heild. „Við bjuggum
til dæmis til tónlistina í sýningunni.
Við fórum inn í skólastofu og áttum
bara að búa til tónlist saman. Það
var rosalega gaman og tónlistin var
tekin upp og núna erum við að nota
þá tónlist í verkinu,“ segir Jörundur
og hrifning hans á afrakstrinum
leynir sér ekki.
Búin að læra mikið
Bæði Matthildur og Jörundur hafa
hugleitt að verða leikarar þegar
þau verða stór en nú eru þau meira
meðvituð um hvað felst í því að vera
leikari og eru þakklát fyrir að fá að
kynnast leikhúsinu betur.
„Ég hélt að þetta yrði meira þreyt-
andi og að ég myndi ekki nenna
þessu, en núna erum við búin að
vera hér í nokkra mánuði og það
hefur aldrei gerst að mig hafi lang-
að til að fara eða hætta þessu. En ég
er ekki viss hvort mig langi lengur að
vera leikari þegar ég verð stór því ég
held að það sé alveg rosalega mikið
mál,“ segir Jörundur.
Matthildur tekur í sama streng.
Henni finnst ótrúlega gaman að
kynnast svona stóru leikhúsi og furð-
ar sig á því hvað allt er flott og mikið.
„Þetta er búið að vera rosalega
gaman og allir eru svo skemmtileg-
ir. Leikstjórarnir eru mjög góðir og
svo er flott að fylgjast með leikurum
af öðrum æfingum eins og til dæm-
is Mamma Mía.“ Jörundur bætir við
hlæjandi: „Já, það er stundum pínu
skrítið að ætla bara að fá sér vatns-
glas en svo hittir maður bara leikara
úr Billy Elliot eða Mamma Mía við
kaffivélina.“
Ekki stressuð
Þau Mattildur og Jörundur eru ekki
kvíðin fyrir frumsýningu og segjast
einfaldlega gleyma sér þegar þau
eru komin á sviðið. „Það hjálpar ekki
neitt að vera stressaður. Mér finnst
miklu betra að sleppa því. Ég verð
spenntur og svoleiðis en ekki stress-
aður,“ segir Jörundur að lokum og
tekur það fram að frumsýningin sé
ekki í plati þrátt fyrir dagsetninguna
sem hana ber upp á en sýningin
verður frumsýnd í Borgarleikhúsinu
þann 1. apríl næstkomandi. n
„Hjálpar ekki neitt
að vera stressaður“
n Matthildur og Jörundur leika fullorðna í Made in Children
Um Made
in Children
Saman á sviðinu standa tíu börn á
aldrinum átta til tólf ára sem hafa
verið skilin eftir í heimi sem þau bjuggu
ekki til. Þau taka yfir sviðið og eyða
tíma saman, dansa, spila tónlist og
tala við hvert annað. Börnin mæta
heimi fullum af melankólíu, svartsýni,
rómantík og ruglingi sem þau hafa erft
en báðu aldrei um.
Verkið er samstarfsverkefni Borg-
arleikhússins og Við og við klúbbsins
og verður sýnt á Litla sviði Borgarleik-
hússins frá 1 apríl.