Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2016, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2016, Blaðsíða 22
Vikublað 30.–31. mars 20166 Gler og gluggalausnir - Kynningarblað Gluggar, glerveggir, svalalokanir, svalaskjól og fleira Emerald ehf. – Hámarksgæði á lágu verði V erslunarfélagið Emerald ehf., Norðurtúni 26, Álftanesi, sérhæfir sig meðal annars í innflutn- ingi á svalalokunum, svalaskjólum, glerveggjum og gluggum. Svalalokanir eru úr hertu öryggislegri en einnig býður fyrir tækið upp á skilveggi úr hertu öryggisgleri fyrir verslanir, skrif- stofur, verslunarmiðstöðvar og heimili. Fjölbreytnin er mikil en Emerald leggur áherslu á að bjóða hámarksgæði á lágu verði. Þess vegna er fyrir tækið með mjög litla yfirbyggingu en flytur inn beint frá virtum og vönduðum framleiðend- um. Þess má geta að Emerald hefur verið í samfelldum rekstri frá 2002 og hefur því lifað af ýmsar sveiflur í efnahagslífinu undan farin ár, sem hafa ekki hvað síst komið illa við byggingarmarkaðinn. Hvað varðar svalalokanir, gluggakarma og hurðir þá geta viðskiptavinir valið um að hafa efnið úr vönduðum viði á borð við Mahogany eða Oregon Pine, eða nýta sér viðhaldsfríu PVC-lausn- ina, en PVC er hert plastefni sem hefur verið að ryðja sér til rúms á Íslandi á undanförnum árum. Emerald býður upp á heila sól- skála úr PVC og eru margir sem nýta sér þá hagstæðu og þægilegu lausn. Skálarnir eru úr viðarlíki að innan sem lítur út eins og viður. Sem fyrr segir flytur Emerald beint inn frá virtum framleiðend- um í Evrópu og er öll varan vottuð. Gluggarnir eru smíðaðir hjá fram- leiðanda og koma tilbúnir með körmum og póstum. Einnig er hægt að fá glugga með álkápu að utanverðu og við að innan. Fyrir utan vörur og lausnir sem tengjast gluggum og gleri er Emerald stór söluaðili ein- ingahúsa og ýmisskonar gáma- lausna. Fyrir tækið selur sum- arhús af ýmsum stærðum, sem og gistihús, úr gámaefni. Þá selur Emerald rekstrar vörur á borð við ruslatunnur, SOS öryggisljós, hraðahindranir og keilur. Ítarlegar og gagnlegar upplýs- ingar er að finna um vöruúrvalið og þjónustuna á heimasíðu Emerald. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.