Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2016, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2016, Blaðsíða 4
4 Fréttir Vikublað 30.–31. mars 2016 Sími 568-5556 www.skeifan.is Eysteinn Sigurðsson Löggiltur fasteignasali / Sími: 896-6000 eysteinn@skeifan.is / skeifan.is Magnús Hilmarsson Sölumaður / Sími: 896-6003 magnus@skeifan.is / skeifan.is Sigurður Hjaltested Löggiltur fasteignasali / Sími: 821-5400 sigurdur@skeifan.is / skeifan.is Föst söluÞÓKNuN Sími 568- 5556 www .skeifan.is 1% + vsk.Vegna mikillar sölu vantar allar stærðir eigna á skrá Settu 2,2 milljarða króna í Heimavelli n Hlutaféð aukið n Vilja kaupa 450 íbúðir n Stálskip og Sjóvá í eigendahópnum E igendur leigufélagsins Heimavellir hafa aukið hlutafé þess um 2,2 millj­ arða króna á síðustu tveim­ ur mánuðum. Á því tímabili keyptu þeir 139 íbúðir af Íbúða­ lánasjóði og undirbúa nú tilboð í leigufélagið Klett sem rekur um 450 íbúðir. Heimavellir er eitt um­ svifamesta fyrirtæki sinnar tegund­ ar á landinu en stærstu einstöku eigendur þess eru Stálskip, Sjóvá og Magnús Pálmi Örnólfsson, fyrr­ verandi forstöðumaður gjaldeyris­ miðlunar Glitnis. „Stækkun eignasafnsins er skýrt markmið þessara aukninga. Við erum búin að stilla upp fleiri samn­ ingum til að bæta við okkur og það verða fleiri hlutafjáraukningar á þessu ári,“ segir Sturla Sighvatsson, framkvæmdastjóri Heimavalla. Stefna að 2.000 íbúðum Sturla svarar aðspurður að eigenda­ hópur leigufélagsins hafi ekki tekið „stórvægilegum breytingum“ í síð­ ustu hlutafjáraukningum. Í um­ fjöllun DV um Heimavelli í nóv­ ember síðastliðnum kom fram að í félaginu væru einnig þekkt­ ir fjárfestar eins og Þórður Már Jóhannesson, fyrrverandi for­ stjóri Straums fjárfestingarbanka, og Arnar Gunnlaugsson, fyrrver­ andi knattspyrnukappi. Það hefði síðustu ár keypt um 450 íbúðir og að stefnt væri að skráningu þess í Kauphöll Íslands. „Við erum núna með í kringum 700 íbúðir og það er áframhaldandi stækkun framundan. Við ætlum okkur að vera komnir með 1.500 til 2.000 íbúðir þegar við skráum okk­ ur á markað eftir eitt og hálft ár,“ segir Sturla. Leggja fram tilboð Heimavellir var stofnað í júní 2014 og hefur auglýst íbúðir sínar til leigu fyrir einstaklinga og fjölskyldur. Komu þar saman smærri fasteigna­ félög en hluthafahópurinn varð til með sameiningu þeirra og aukn­ ingu hlutafjár. Leigufélagið á fast­ eignir á höfuðborgarsvæðinu, Suðurlandi, Vesturlandi og Vest­ fjörðum og þar á meðal heilu fjöl­ býlishúsin í Borgarnesi, Þorláks­ höfn, á Akranesi og Selfossi. „Íbúðalánasjóður lagði í vetur af stað með sölu á um 500 íbúðum og það voru settir skilmálar þar sem hver og einn gat einungis keypt þriðjung safnsins. Það gerðum við og það verður gengið frá kaup­ samningi um þær 139 íbúðir núna í apríl,“ segir Sturla. Aðspurður hvort eigendur Heimavalla hafi gert tilboð í leigu­ félagið Klett, dótturfélag Íbúða­ lánasjóðs, sem hefur verið í sölu­ ferli síðan í fyrra, svarar Sturla að félagið muni leggja fram tilboð. „Það eru 450 íbúðir og það sölu­ ferli er í gangi og við þurfum að skila inn tilboði fyrir 4. apríl. […] Heima­ vellir er fagfjárfestasjóður með tak­ markaðan starfstíma og okkur ber að leysa hann upp innan ákveðins tíma. Verkefni sjóðsins er mjög skilgreint en hann á að kaupa og safna að sér íbúðarhúsnæði og búa til nógu stóran pott til þess að úr verði grunnur að stóru íbúðaleigu­ félagi að skandinavískri fyrirmynd. Hann geti síðan haldið áfram að vaxa í höndunum á væntum nýjum eigendahópi sem að stærstu leyti yrði lífeyrissjóðir og aðrir stofnana­ fjárfestar.“ n Haraldur Guðmundsson haraldur@dv.is Leigurisi Heimavellir á nú um 700 íbúðir en stefnir að eignasafni upp á 1.500 til 2.000 íbúðir. Mynd SiGtryGGur Ari Framkvæmdastjórinn Sturla Sighvats- son segir stefnt að skráningu Heimavalla á markað fyrir árslok 2017. Mynd Björn BLöndAL Hluthafi Hjónin Guðrún Helga Lárusdóttir og Ágúst Guðmundsson eru hluthafar í Stálskipum ehf. en félagið er stærsti eigandi Heimavalla með 23,9% hlut. Mynd ViðSkiptABLAðið Stöðvaði Air- bnb-gistingu Lögreglan á Suðurnesjum stöðv­ aði nýverið starfsemi svokall­ aðrar Airbnb­heimagistingar í umdæminu þar sem engin rekstrar­ eða starfsleyfi reyndust vera til staðar. Var því um að ræða brot á lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald. Þetta kom fram í tilkynningu frá lögreglunni í gær, þriðjudag. Í henni sagði einnig að lögreglan ætli á næstunni að heimsækja fleiri staði þar sem heimagisting er auglýst á Airbnb og athuga hvort tilskilin leyfi séu til staðar. A ðeins ein vefsíða fasteignasala af 109 uppfyllti öll þau skilyrði sem gerð eru til upplýsinga um þjónustu fasteignasala. Þetta kemur fram á vef Neytendastofu sem kannaði í byrjun árs vefsíð­ ur 109 fasteignasala á landinu ásamt því að kanna sölustaði þeirra sem staðsettar eru á höfuðborgarsvæðinu. Athugað var hvort verð á öllum þjónustuþáttum væri sýnilegt á staðnum og á vefsíð­ um fyrirtækjanna þar sem skylt er að gefa upp verð, bæði þar sem þjónusta er kynnt og seld auk þess sem sérstaklega þarf að taka fram ef annar kostnaður bætist við verðið. Einnig var kannað hvort allar upplýs­ ingar um fasteignasölurnar, svo sem heimilisfang, kennitala, netfang, vsk. númer, hlutafélagaskrá og starfsleyfi kæmu fram á vefsíðu. Fasteignasölum ber skylda til að vera með lögbundið starfsleyfi frá innanríkisráðuneytinu. Aðeins fasteignasalan Nýtt heimili uppfyllti öll þau skilyrði sem gerð eru til upplýsinga um þjónustuna. Flestar athugasemdir sem komu fram voru vegna skorts á upplýsingum um söluaðilann og sölu­ þóknun. Af þeim 109 vefsíðum sem skoðaðar voru var verð á öllum þjónustuþátt­ um einungis tilgreint á fjórum síðum en fimm til viðbótar höfðu ein­ hverjar upplýsingar um verð. Þá voru einungis þrjár fasteignasölur með gjaldskrá sýnilega fyrir alla þjónustu­ þætti á sölustað og þrjár til viðbótar höfðu hluta af upplýsingunum sýni­ legan. Neytendastofa hvetur neytendur til að vera á verði. n Vefsíður fasteignasala í ólagi Aðeins 1 af 109 uppfyllti öll skilyrði sem gerð eru Laus af gjörgæslu Karlmaður á þrítugsaldri sem særðist lífshættulega eftir hnífa­ árás fyrir utan stúdentaíbúðirnar við Sæmundargötu aðfara­ nótt 6. mars síðastliðinn hefur verið útskrifaður af gjörgæslu­ deild Landspítala. Maðurinn var stunginn í bakið og hlaut áverka á lunga og lifur. Eftir skurðaðgerð var manninum haldið sofandi í öndunarvél en hann var útskrif­ aður af gjörgæslu í síðustu viku. Árásarmaðurinn er enn í gæsluvarðhaldi, og verður það til 6. apríl, grunaður um tilraun til manndráps eða sérstaklega hættulega líkamsárás.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.