Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2016, Blaðsíða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2016, Blaðsíða 31
Menning 23Vikublað 30.–31. mars 2016 eldbakaðar eðal pizzur sími 577 3333 www.castello.is Dalvegi 2, 201 Kópavogi / Dalshrauni 13, 220 Hafnarfirði E ftirmálar 11. september eru alls staðar í Batman vs. Superman: Dawn of Justice: er Superman George W. Bush, sem kallar skelfi- leg hryðjuverk yfir heiminn vegna íhlutana í siðmenningu sem hann skilur illa? Er Batman Dick Chen- ey, sem trúir á pyntingar, eða er Lex Luthor Donald Rumsfeld, sem trúir á fyrirbyggjandi aðgerðir? Slíkar vangaveltur hverfa hins vegar fljótt í skuggann á spurningunni sem allir hafa verið að spyrja síðan í leik- skóla: Hvor myndi vinna í slag, Bat- man eða Superman? Leðurblökumaðurinn Affleck Fyrst góðu fréttirnar. Ben Affleck er eins og fæddur í hlutverk Bat- man, þrátt fyrir örlitla undirhöku. Undarlegt að engum skuli hafa dottið það í hug fyrr. Jesse Eisen- berg lék áður Mark Zuckerberg og er því rökrétt val fyrir illmennið Lex Luthor. Henry Cavill er mátulega yfirnáttúru legur sem Superman en tekst síður upp sem Clark Kent. Og í því er galli hans fólginn. Ólíkt út- gáfu Christophers Reeve nær maður engri tengingu við mannlegu hliðar persónunnar, enda virðast allir vita að Kent er Superman hvort eð er. Þetta er því miklu frekar mynd Batman, sem er hér í forsvari fyrir það góða í manninum, þótt sú regla að hann drepi ekki fólk, sem var í hávegum höfð hjá leikstjóranum Christopher Nolan, fari fyrir lítið. Uppbyggingin er hin ágætasta, jafn- vel sú klisjukennda lausn að láta menn verða óvini sökum vondra drauma er ágætlega útfærð. Ofur- hetjur DC spila ávallt í sömu tón- tegund sem er hádramatík. En vangaveltur um hvort Superman sé guð og hversu langt hetjur megi ganga í vondum heimi fara fljótt fyrir lítið. Ofurhetjuþreyta Eins og í Superman-myndinni Man of Steel er allt of löngum tíma eytt í lokaslag sem er of líkur öllum öðr- um slíkum. Það eru líka mistök að tjalda Wonder Woman til strax, enda er saga hennar illa unnin. Hún á mun betra skilið en að vera þriðja hjólið í þessum trekant. Í stað þess að einbeita sér að átökum Batman, Superman og Lex Luthor birtist skrímsli á svæðinu sem er alveg eins og öll önnur Hollywood-skrímsli. Að lokum er maður eiginlega farinn að gleyma hvers vegna maður var spenntur til að byrja með, en man að maður var það samt. Stóra spurningin er þó kannski hvers vegna menn kvikmynda ekki bara Batman-teiknimyndasögur Franks Miller, sem gerðu þetta allt svo miklu betur, í stað þess að vera stöðugt að vísa í þær. Sú von virð- ist hins vegar endanlega úti. Það er komin talsverð ofurhetjuþreyta í áhorfendur, og það telst Batman vs. Superman til tekna að það er unnið með þessa þreytu ( áhorfendur í myndinni eru flestir skeptískir á ofur hetjur), án þess að það takist að vinna úr henni. Nú liggur boltinn hjá Captain America: Civil War. Vonandi tekst henni að lífga formið við. n Ofurhetjuþreyta vs. undirhaka Valur Gunnarsson valurgunnars@gmail.com Kvikmyndir Superman vs. Batman: Dawn of Justice IMDb 7,4 RottenTomatoes 28% Metacritic 44 Leikstjórn: Zack Snyder Aðalhlutverk: Ben Affleck, Henry Cavill og Jesse Eisenberg Handrit: Chris Terrio og David S. Goyer 151 mínúta „Að lokum er maður eiginlega farinn að gleyma hvers vegna maður var spenntur til að byrja með, en man að maður var það samt Hvor er sterkari Margir hafa eflaust rifist um hvor myndi vinna í slag, Batman eða Superman. Þessu reynir kvikmyndin Batman vs. Superman að svara.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.