Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2016, Qupperneq 31
Menning 23Vikublað 30.–31. mars 2016
eldbakaðar
eðal pizzur
sími 577 3333
www.castello.is
Dalvegi 2, 201 Kópavogi / Dalshrauni 13, 220 Hafnarfirði
E
ftirmálar 11. september
eru alls staðar í Batman vs.
Superman: Dawn of Justice:
er Superman George W.
Bush, sem kallar skelfi-
leg hryðjuverk yfir heiminn vegna
íhlutana í siðmenningu sem hann
skilur illa? Er Batman Dick Chen-
ey, sem trúir á pyntingar, eða er Lex
Luthor Donald Rumsfeld, sem trúir
á fyrirbyggjandi aðgerðir? Slíkar
vangaveltur hverfa hins vegar fljótt í
skuggann á spurningunni sem allir
hafa verið að spyrja síðan í leik-
skóla: Hvor myndi vinna í slag, Bat-
man eða Superman?
Leðurblökumaðurinn Affleck
Fyrst góðu fréttirnar. Ben Affleck
er eins og fæddur í hlutverk Bat-
man, þrátt fyrir örlitla undirhöku.
Undarlegt að engum skuli hafa
dottið það í hug fyrr. Jesse Eisen-
berg lék áður Mark Zuckerberg og
er því rökrétt val fyrir illmennið Lex
Luthor. Henry Cavill er mátulega
yfirnáttúru legur sem Superman en
tekst síður upp sem Clark Kent. Og
í því er galli hans fólginn. Ólíkt út-
gáfu Christophers Reeve nær maður
engri tengingu við mannlegu hliðar
persónunnar, enda virðast allir vita
að Kent er Superman hvort eð er.
Þetta er því miklu frekar mynd
Batman, sem er hér í forsvari fyrir
það góða í manninum, þótt sú regla
að hann drepi ekki fólk, sem var í
hávegum höfð hjá leikstjóranum
Christopher Nolan, fari fyrir lítið.
Uppbyggingin er hin ágætasta, jafn-
vel sú klisjukennda lausn að láta
menn verða óvini sökum vondra
drauma er ágætlega útfærð. Ofur-
hetjur DC spila ávallt í sömu tón-
tegund sem er hádramatík. En
vangaveltur um hvort Superman
sé guð og hversu langt hetjur megi
ganga í vondum heimi fara fljótt
fyrir lítið.
Ofurhetjuþreyta
Eins og í Superman-myndinni Man
of Steel er allt of löngum tíma eytt í
lokaslag sem er of líkur öllum öðr-
um slíkum. Það eru líka mistök að
tjalda Wonder Woman til strax,
enda er saga hennar illa unnin. Hún
á mun betra skilið en að vera þriðja
hjólið í þessum trekant. Í stað þess
að einbeita sér að átökum Batman,
Superman og Lex Luthor birtist
skrímsli á svæðinu sem er alveg eins
og öll önnur Hollywood-skrímsli.
Að lokum er maður eiginlega farinn
að gleyma hvers vegna maður var
spenntur til að byrja með, en man
að maður var það samt.
Stóra spurningin er þó kannski
hvers vegna menn kvikmynda ekki
bara Batman-teiknimyndasögur
Franks Miller, sem gerðu þetta allt
svo miklu betur, í stað þess að vera
stöðugt að vísa í þær. Sú von virð-
ist hins vegar endanlega úti. Það
er komin talsverð ofurhetjuþreyta í
áhorfendur, og það telst Batman vs.
Superman til tekna að það er unnið
með þessa þreytu ( áhorfendur í
myndinni eru flestir skeptískir á
ofur hetjur), án þess að það takist að
vinna úr henni. Nú liggur boltinn
hjá Captain America: Civil War.
Vonandi tekst henni að lífga formið
við. n
Ofurhetjuþreyta
vs. undirhaka
Valur Gunnarsson
valurgunnars@gmail.com
Kvikmyndir
Superman vs. Batman:
Dawn of Justice
IMDb 7,4 RottenTomatoes 28% Metacritic 44
Leikstjórn: Zack Snyder
Aðalhlutverk: Ben Affleck, Henry Cavill og
Jesse Eisenberg
Handrit: Chris Terrio og David S. Goyer
151 mínúta
„Að lokum
er maður
eiginlega farinn
að gleyma hvers
vegna maður
var spenntur til
að byrja með, en
man að maður
var það samt
Hvor er sterkari
Margir hafa eflaust rifist
um hvor myndi vinna
í slag, Batman eða
Superman. Þessu reynir
kvikmyndin Batman vs.
Superman að svara.