Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2016, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2016, Blaðsíða 38
30 Fólk Vikublað 30.–31. mars 2016 F yrirsætan og athafnakonan Ásdís Rán Gunnarsdóttir er komin með þyrluflug- mannspróf, en hún greindi frá tíðindunum á Face- book-síðu sinni fyrir páska. Hún hóf námið í ágúst síðast- liðnum í Búkarest í Rúmeníu eftir að hafa látið sig dreyma um flugmannsréttindi í tíu ár. Á bloggsíðu sinni segist hún hafa ferð- ast á milli Búlgaríu, þar sem hún er búsett, Rúmeníu og Íslands síðustu mánuði til að sinna náminu. Hún lærði á þyrlu af gerðinni Robinson 22. „Ég verð að segja að þetta er erfiðasta markmið sem ég hef sett mér í lífinu. Þetta hefur kostað blóð, svita og tár síðustu mánuði og nú er ég svo nálægt því að ná mark- miðinu,“ skrifaði Ásdís á bloggsíðu sína fyrir nokkrum vikum. „Ég vonast til að geta hvatt aðrar konur til að eltast við drauma sína og sýnt þeim fram á að ekkert er ómögulegt,“ skrifaði hún jafnframt. Ásdís, sem hefur verið dugleg að birta myndir af sér í þyrlunni, greinir svo frá því á Facebook-síðu sinni að hún stefni nú á að hefja þjálfun á þyrlu af gerðinni As350 turbine í Svíþjóð í apríl. Þá þakkar hún fyrr- verandi eiginmanni sínum Garðari Gunnlaugssyni, fjölskyldu hans og vinkonu sinni fyrir að hafa gert sér kleift að láta þennan draum sinn rætast. Það er fyrir löngu orðið ljóst að Ásdísi er margt til lista lagt og hún kallar ekki allt ömmu sína. Síðustu mánuði hefur hún líka verið að læra að læra að skjóta af byssu og ætti hún að vera orðin nokkuð vel sett með þessa fjölbreyttu kunnáttu sína og þekkingu. n Ásdís Rán orðin þyrluflugmaður n Hefur lagt hart að sér síðustu mánuði n Draumurinn hefur ræst Flugmaður Í apríl mun Ásdís halda til Svíþjóðar til að hefja þjálfun á annarri þyrlutegund.„Þetta er erfiðasta markmið sem ég hef sett mér í lífinu Erfitt Ásdís segir námið hafa kostað blóð, svita og tár síðustu mánuði. Glæsileg Ásdís með þyrluna í bakgrunni. Loksin s er langþráður draumur orðinn að veruleika.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.