Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2016, Qupperneq 38
30 Fólk Vikublað 30.–31. mars 2016
F
yrirsætan og
athafnakonan Ásdís
Rán Gunnarsdóttir er
komin með þyrluflug-
mannspróf, en hún
greindi frá tíðindunum á Face-
book-síðu sinni fyrir páska.
Hún hóf námið í ágúst síðast-
liðnum í Búkarest í
Rúmeníu eftir að hafa
látið sig dreyma um
flugmannsréttindi í tíu
ár. Á bloggsíðu sinni
segist hún hafa ferð-
ast á milli Búlgaríu,
þar sem hún er búsett,
Rúmeníu og Íslands
síðustu mánuði til að
sinna náminu. Hún
lærði á þyrlu af gerðinni
Robinson 22. „Ég verð
að segja að þetta er
erfiðasta markmið sem
ég hef sett mér í lífinu.
Þetta hefur kostað blóð,
svita og tár síðustu
mánuði og nú er ég svo
nálægt því að ná mark-
miðinu,“ skrifaði Ásdís
á bloggsíðu sína fyrir
nokkrum vikum. „Ég
vonast til að geta hvatt
aðrar konur til að eltast
við drauma sína og sýnt
þeim fram á að ekkert er ómögulegt,“
skrifaði hún jafnframt.
Ásdís, sem hefur verið dugleg að
birta myndir af sér í þyrlunni, greinir
svo frá því á Facebook-síðu sinni
að hún stefni nú á að hefja þjálfun
á þyrlu af gerðinni As350 turbine í
Svíþjóð í apríl. Þá þakkar hún fyrr-
verandi eiginmanni sínum Garðari
Gunnlaugssyni, fjölskyldu hans og
vinkonu sinni fyrir að hafa gert sér
kleift að láta þennan draum sinn
rætast.
Það er fyrir löngu orðið ljóst að
Ásdísi er margt til lista lagt og hún
kallar ekki allt ömmu sína. Síðustu
mánuði hefur hún líka verið að læra
að læra að skjóta af byssu og ætti
hún að vera orðin nokkuð vel sett
með þessa fjölbreyttu kunnáttu sína
og þekkingu. n
Ásdís Rán orðin
þyrluflugmaður
n Hefur lagt hart að sér síðustu mánuði n Draumurinn hefur ræst
Flugmaður Í apríl mun Ásdís
halda til Svíþjóðar til að hefja
þjálfun á annarri þyrlutegund.„Þetta er
erfiðasta
markmið sem
ég hef sett
mér í lífinu
Erfitt Ásdís segir námið hafa kostað blóð, svita og tár síðustu mánuði.
Glæsileg Ásdís með þyrluna í bakgrunni. Loksin
s er
langþráður draumur orðinn að veruleika.