Dagblaðið Vísir - DV - 30.03.2016, Blaðsíða 25
Umræða 17Vikublað 30.–31. mars 2016
Erna Hrund Hermannsdóttir lét son sin sofa í finnsku barnaboxi. – DV
Grandagarði 13 • Reykjavík
Sími 552-3300 • www.klif.is
Allt til rafsuðu
í 50 ár
AP
ÓT
EK
UM
SN
YR
TIS
TO
FU
M
&
SN
YR
TIV
ÖR
UV
ER
SL
UN
UM
Marg
verðlaunaðar
snyrtivörur frá
Þýskalandi
Fermingagjafir
www.artdeco.de
artdecois
f
Pólitísk hjaðningavíg
í forsetakosningum?
Þ
að verður að segjast eins og er
að forsetakosningarnar á Ís-
landi byrja stórundarlega.
Það eru komnir fram
á annan tug frambjóðenda.
Enginn þeirra er líklegur
til að skora hátt – hvað þá
vinna kosningarnar. Margir
frambjóðendanna virð-
ast einungis vera að vekja
athygli á sjálfum sér. Þeim er
það auðvitað heimilt.
En þær sögur ganga fjöllun-
um hærra að tvær stórkanónur
úr pólitík síðustu áratuga séu að
undirbúa framboð, Össur Skarp-
héðinsson og Davíð Oddsson.
Undireins og annar þeirra býður
sig fram gjörbreytist andrúmsloftið
í kringum kosningarnar. Þá verður
þetta hápólitískt – og þá hefst tími
mikillar upprifjunar fremur en að
horft verði fram á veginn.
Össur hefur setið á Alþingi síðan
1991, í 25 ár, hann var í ríkisstjórn
bæði fyrir og eftir hrun, sem sagt í
hrunstjórninni sjálfri og í stjórninni
sem tók við í ársbyrjun 2009.
Davíð Oddsson var sem kunnugt
er borgarstjóri í Reykjavík í níu ár, for-
sætisráðherra í þrettán ár og seðla-
bankastjóri þar á eftir. Er nú ritstjóri
Moggans sem er óspart beitt í stjórn-
málabaráttu.
Báðir eru þeir umdeildir menn –
Davíð þó nokkuð umdeildari.
Þarna erum við að tala um
forsetakosningar sem gætu
snúist upp í pólitísk hjaðn-
ingavíg með endalausum
skírskotunum til gamalla
ávirðinga.
Vegna fjölda fram-
bjóðenda er hugsan-
legt að forseti verði
kosinn með tuttugu
af hundraði atkvæða.
Við gætum sem sagt
fengið yfir okkur for-
seta sem er ekki bara
umdeildur, sundrar þjóð-
inni fremur en sameinar hana, held-
ur er líka með lítið og lélegt umboð.
Davíð hefur svo sem ekkert látið
hafa eftir sér enn hvort hann ætlar
í framboð, þann varnagla verður
að slá. Össur er hins vegar mjög al-
tillegur þegar forsetakosningarnar
ber á góma og í síðustu viku birti
hann grein sem hafði það inntak að
hann væri hinn eðlilegi arftaki Ólafs
Ragnars Grímssonar. n
Egill Helgason
Af Eyjunni
Myndin Gert klárt Fyrir veiðiferð þarf að tryggja að nægjanlegt magn af körum og ís séu um borð. mynd SiGtryGGur ari