Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2016, Blaðsíða 8
Helgarblað 15.–18. apríl 20168 Fréttir
436 milljónir í sérfræðinga
n Vinna við Icesave-samninga dýr n 5 ráðuneyti keyptu sérfræðiráðgjöf fyrir 1,4 milljarða
F
jármála- og efnahagsráðu-
neytið hefur upplýst að
kostnaður við aðkeypta sér-
fræðiráðgjöf vegna Icesave-
samninganna nam 436 millj-
ónum króna á árunum 2010, 2011 og
2012. Stærstur hluti rann til breska
ráðgjafarfyrirtækisins Hawkpoint
Partners, eða ríflega 181 milljón
króna. Lögmannastofa Lee Buchheit,
formanns Icesave-samninganefndar-
innar, Cleary Gottlieb Steen, fékk
rúmar 104 milljónir fyrir ráðgjöf og
vinnu vegna samninganna umdeildu
sem felldir voru í þjóðaratkvæða-
greiðslu, sem frægt er orðið.
988 milljónir alls
Upplýst er um þennan gríðarlega
kostnað í svari fjármála- og efna-
hagsráðherra við fyrirspurn frá Will-
um Þór Þórssyni, þingmanns Fram-
sóknarflokksins, um útgjöld vegna
sérfræði-, ráðgjafar- og kynningar-
starfa á árunum 2010, 2011 og 2012.
Fyrirspurnirnar voru lagðar fram í
byrjun febrúar, en svar fjármálaráðu-
neytisins barst á miðvikudag. Þar
kemur fram að tilfallinn kostnaður
vegna kaupa eða milligöngu ráðu-
neytisins um kaup á þjónustu sem
þessari nam 988.145.449 krónum á
tímabilinu. 44 prósent af öllum út-
lögðum kostnaði ráðuneytisins í sér-
fræðiráðgjöf voru því vegna Icesave.
Aðrir stórir útgjaldaliðir sem sundur-
liðaðir eru í svari ráðuneytisins eru
að mestu vegna uppgjörs föllnu
bankanna. Hawkpoint Partners fékk
þannig ekki aðeins rúmlega 181 millj-
ón króna vegna Icesave heldur annað
eins vegna uppgjörs föllnu bank-
anna. Samtals 361,5 milljónir króna
frá ráðuneytinu.
Dýrara en allur kostnaður
fjögurra ráðuneyta
Fjármálaráðuneytið var fimmta
ráðuneytið, af níu, til að svara fyrir-
spurn Willums Þórs en fjögur eiga
enn eftir að svara. Þar á meðal þrjú
vegna breytinga sem urðu á ríkis-
stjórninni í síðustu viku og fjallað er
um á öðrum stað hér í blaðinu. Til
að setja kostnaðinn vegna Icesave-
samninganna eina og sér í samhengi
þá var aðkeypt þjónusta vegna þeirra
dýrari en öll sérfræði-, ráðgjafar-
og kynningarvinna sem hin fjögur
ráðuneytin sem svarað hafa fyrir-
spurninni keyptu á sama tímabili.
Heilbrigðisráðuneytið, forsætisráðu-
neytið, atvinnuvega- og nýsköpunar-
ráðuneytið og innanríkisráðuneytið
greiddu 396 milljónir fyrir ýmiss
konar sérfræðiþjónustu
á sama tíma.
Af þessum fjórum
ráðuneytum reyndist
dýrasta einstaka verk-
efnið á því tímabili sem
spurt var um vera hjá
heilbrigðisráðuneytinu
vegna ómskoðana og
brottnáms á PIP-silí-
konbrjóstapúðunum
sem DV fjallaði um í
síðasta blaði. Þá var í
forsætisráðuneytinu
varið um 33,5 milljón-
um alls vegna hátíða-
halda í tilefni af tveggja
alda afmæli Jóns Sig-
urðssonar.
Útgjöldin meiri þá
Eins og DV hefur greint frá var tilefni
fyrirspurna hans sambærilegar fyrir-
spurnir Katrínar Jakobsdóttur um
þessi útgjöld í tíð núverandi ríkis-
stjórnar á árunum 2014 til og með
október 2015.
Þau ráðuneyti, sem svarað hafa
fyrirspurn Willums, vörðu sam-
kvæmt svörum við fyrirspurn
Katrínar alls 497 milljónum króna
í sérfræði,- ráðgjafar- og kynn-
ingarvinnu á tímabilinu sem fyrir-
spurn formanns Vinstri grænna tók
til. sömu fimm ráðuneyti keyptu
sérfræðiþjónustu fyrir tæpar 1.400
milljónir á árunum 2010–2012. n
Sigurður Mikael Jónsson
mikael@dv.is
Icesave-samninganefndin Þrettán félög, fyrirtæki og einstaklingar fengu greitt fyrir
sérfræðiþjónustu sína vegna Icesave-samninganna. Kostnaður vegna Icesave-tengdra
verkefna nam 436 milljónum króna. MynD SIgtryggur ArI
ráðherrakapall Ýmsar hrókeringar voru gerðar á ráðherr-um ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstri grænna. Svona leit ríkisstjórnin út eftir breytingar þann 31. desember 2011, á því tímabili sem fyrirspurn Willums Þórs tekur meðal annars til.
Lee Buchheit Lögmannastofa
formanns samninganefndarinn-
ar fékk ríflega 104 milljónir króna
fyrir ráðgjöf og vinnu vegna
Icesave-samninganna.
Dýr vegferð
Steingrímur J.
Sigfússon var
fjármála- og efna-
hagsráðherra á
tímabilinu og stóð
í miðju Icesave-
deilunnar í leit að
lausn. Samn-
ingaleiðin reyndist
ekki sú lausn.
Hentar vel í matargerð, ofan á brauð, til að poppa popp,
í baksturinn, í þeytinginn, á húðina eða til inntöku.