Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2016, Qupperneq 10
10 Fréttir Helgarblað 15.–18. apríl 2016
Allt fyrir raftækni
Yfir 500.000 vörunúmer
Miðbæjarradíó ehf. - Ármúla 17, Reykjavík - www.mbr.is - S: 552-8636
M
aðurinn sem myrti eigin
konu sína og svipti sig svo
sjálfur lífi á Akranesi var
sjúklingur og hafði glímt
við erfið veikindi um
langa hríð. Hann er grunaður um
að hafa myrt eiginkonu sína á heim
ili þeirra í fjölbýlishúsi á Akranesi á
þriðjudagskvöld. Samstarfsfólk kon
unnar hafði samband við lögreglu
þegar hún skilaði sér ekki til vinnu,
sem var óvenjulegt. Maðurinn átti
stóra fjölskyldu, en konan var ein bú
sett á Íslandi af sínu fólki.
Mikil sorg
Samkvæmt upplýsingum DV átti
maðurinn fimm börn og hafði verið
giftur þrisvar sinnum. Konan átti
einn son sem er búsettur erlendis.
Hún var íslenskur ríkisborgari en
á ættir sínar að rekja til Rússlands.
Hún á enga ættingja hér á landi.
Mikil sorg er á Akranesi og kveikt
hefur verið á kertum víða. Nemendur
í Grundaskóla, þar sem konan starf
aði, eru sorgmæddir og fólk á bágt
með að trúa að slíkur harmleikur
hafi átt sér stað í bænum. Konan var
skólaliði í skólanum. „Fólk er harmi
slegið. Það er örugglega mikið um
að fólk kveiki á kertum þegar svona
kemur upp,“ segir Eðvarð Ingólfsson,
sóknarprestur á Akranesi. Eðvarð
segir að konan hafi verið vel liðin.
„Þetta var bráðfalleg sál. Og kom vel
fyrir. Hún hafði stutt vel við manninn
í veikindum og annaðist hann mjög
vel. Hann átti ekki gott með að fara
sinna ferða.“
Var veikur
Maðurinn glímdi við MSsjúkdóm
inn og hafði átt erfitt með athafnir
daglegs lífs. Konan hans hafði staðið
við hlið hans í veikindunum, að sögn
Eðvarðs. Maðurinn var mikið bund
inn heima við vegna veikinda sinna
og fór ekki mikið út á meðal fólks.
Hann hefur verið aðstandendum
innan handar. Eðvarð segir að þau
hafi bæði verið vel liðin í bænum.
Maðurinn hafi þó ekki farið mikið út
fyrir hússins dyr vegna veikinda.
„Sorgin tengist ekki síst þessum
atburði, fólk verður orðvana þegar
það stendur frammi fyrir þeirri stað
reynd að þetta skuli hafa gerst. Þau
voru bæði vel liðin.“
Samviskusöm
Jón Ólason, yfirlögregluþjónn á
Akranesi, tekur undir orð prestsins
og segir samfélagið í mikilli og djúpri
sorg. Það hefur vakið spurningar að
lögreglan hafi farið á staðinn fyrir
hádegi þegar konan skilaði sér ekki
til vinnu. Jón útskýrir það og segir
að það hafi þótt óvenjulegt að hún
skilaði sér ekki til vinnu. Konan hafi
verið afar samviskusöm og látið vita
með fyrirvara ef hún myndi ekki
skila sér til vinnu. Þetta staðfestir
skólastjóri Grundaskóla.
Heyrðu ekki skothvelli
Samkvæmt upplýsingum frá lög
reglu urðu nágrannar ekki varir við
skothvellina. Lögregla var á heimili
þeirra um klukkan ellefu á þriðjudags
morgun og kallaði eftir aðstoð sérsveit
arinnar þar sem skotvopn voru skráð á
heimilinu. Lögreglu mun hafa grunað
að ekki væri allt með felldu. „Við sáum
að það var eitthvað óeðlilegt í gangi.
Það næst ekki samband við fólkið og
það bendir allt til að þau séu þarna
inni. Okkur þótti öruggara að tryggja
þetta allt í bak og fyrir,“ segir Jón.
Ekki hægt að fullyrða neitt
Lögregla hafði aldrei þurft að
hafa afskipti af heimilinu áður.
Stjórnendum Grundaskóla fannst
óeðlilegt að konan hefði ekki mætt.
En þeir starfsmenn sem DV hefur
talað við neita því að þeir hafi talið
að hún gæti verið í hættu stödd, það
hafi einfaldlega verið óvenjulegt að
hún hefði ekki mætt.
Jón segir að ekki sé hægt að full
yrða neitt á þessari stundu „en það
virðist sem maðurinn hafi skotið
konuna og svipt sig svo lífi á eftir.“
Rannsókn málsins er á frumstigi.
Unnið er úr gögnum og vonast lög
regla til að fá niðurstöðu í harmleik
inn á næstu dögum. n
Var sjúklingur og
fór ekki Mikið út
Lögreglan sá strax að eitthvað óeðlilegt var í gangi í fjölbýlishúsi á Akranesi þar sem maður myrti eiginkonu sína
Kveikt á kertum Mikil sorg er á Akranesi
og kveikt hefur verið á kertum víða, segir
Eðvarð Ingólfsson sóknarprestur.
Kristjón Kormákur Guðjónsson
Ásta Sigrún Magnúsdóttir
kristjon@pressan.is / astasigrun@dv.is
Mikil sorg
Íbúar á Akranesi
eru slegnir og
nemendur
og starfsfólk
Grundaskóla
syrgja sam-
starfskonu sína.
Mynd KriStin MaGnúSSon
„Þau voru
bæði vel liðin
f
imm einstaklingar sitja í gæslu
varðhaldi vegna rannsóknar á
stórfelldum skattalaga og bók
haldsbrotum í starfsemi verk
takafyrirtækja í byggingariðnaði.
Embætti héraðssaksóknara stóð
fyrir aðgerðunum, sem voru afar
umfangsmiklar, í samvinnu við lög
regluna á höfuðborgarsvæðinu og
Vesturlandi. Alls voru níu einstak
lingar handteknir en fjórum var
sleppt eftir skýrslutöku síðar um
daginn. Þá kom lögreglan upp um
kannabisræktun í aðgerðunum og
var hald lagt á 100 plöntur. RÚV
greindi fyrst frá málavöxtum en
samkvæmt upplýsingum frá Ólafi
Þór Haukssyni, fyrrverandi sér
stökum saksóknara og nýskipuðum
héraðssaksóknara, snýst málið um
hundraða milljóna króna svik.
Heimildir DV herma að tveir
eigendur verktakafyrirtækis sem
kemur að hótelbyggingu í miðbæ
borgarinnar séu á meðal þeirra sem
voru handteknir. Aðeins annar þeirra
var látinn sæta gæsluvarðhaldi. Báð
ir eigendurnir hafa hlotið sex mánaða
skilorðsbundinn dóm fyrir brot í
tengslum við skil á virðisaukaskatti.
Dómarnir féllu árið 2009 en mál
in tengdust ekki innbyrðis. Samtals
þurftu eigendurnir að greiða 52 millj
ónir í sektir. Þá fékk fyrirtæki í þeirra
eigu áminningu frá Heilbrigðis
eftirlitinu fyrir að láta erlenda verka
menn rífa hús með asbestklæðningu
án nauðsynlegs hlífðarbúnaðar.
Í tengslum við áðurnefnt hótel
sem er í byggingu hefur reglulega
slegið í brýnu milli forsvarsmanna
fyrirtækisins og nágranna, sem hafa
verið ósáttir við að starfsmenn fyrir
tækisins hafi ítrekað unnið fram yfir
lögbundinn tíma og ekki sinnt tilmæl
um lögreglu um að láta af þeirri hegð
un. Í byrjun þessa árs kom fram í frétt
um að annar eigandi fyrirtækisins, sá
er nú situr í gæsluvarðhaldi, hafi lent í
handalögmálum við þann sem harð
ast gekk fram í mótmælum. n
bjornth@dv.is
Áður komist í kast við lögin
Fimm einstaklingar sitja í gæsluvarðhaldi