Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.2016, Side 13
Helgarblað 15.–18. apríl 2016 Fréttir 13
HamraHlíð 17, 105 reykjavík / Hús Blindrafélagsins / sími 552-2002
Vönduð
lesgleraugu
frá 3.900 kr.
Guðrúnartúni 4,
105 reykjavík
Sími: 533 3999
www.betraGrip.iS
Opið
virka
daga frá
kl. 8–17
gæða
dekk á
góðu
verði
Mars 2010
Þetta hafði gengið á
Þann 6. mars 2010 fór fram þjóðar-
atkvæðagreiðsla um Icesave-lög-
in umdeildu sem þjóðin felldi með
yfir gnæfandi meirihluta eftir að
forseti Íslands hafði synjað þeim
undirskriftar. Öll spjót beindust að
ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur
og Steingríms J. Sigfússonar aðeins
rúmu ári eftir alþingiskosningar
25. apríl 2009. Meðal annarra töldu
Bjarni Benediktsson og Sigmund-
ur Davíð að ríkis stjórnin ætti að
víkja. 5. mars 2010 hafði ríkisstjórn-
in mælst með 36,1 prósents fylgi í
könnun MMR.
Það sem sagt var
19. mars 2010 sagði Bjarni í sam-
tali við Morgunblaðið að hann teldi
að ríkisstjórn sem væri „verklaus,
ósamstiga og nýtur ekki trausts
lengur hafi ekkert erindi lengur“. Þá
bætti hann við:
„Nú þarf ríkisstjórnin að horf-
ast í augu við það að hún hefur
ekki umboð til þess að halda áfram
á sömu braut,“ og enn fremur:
„Fólk ætlast til þess að stjórn-
völd þvælist ekki fyrir. Fólk vill fá
að grípa þau tækifæri sem eru til
staðar. Ríkisstjórnin hefur ekki haft
burði til þess að greiða götu fólks
og fyrirtækja.“
Í umræðum formanna flokkanna
í Silfri Egils 7. mars 2010 kvaðst Sig-
mundur Davíð Gunnlaugsson, for-
maður Framsóknarflokksins, túlka
niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðsl-
unnar sem vantraustsyfirlýsingu á
ríkisstjórnina, vildi að ríkisstjórn-
in segði af sér og að boðað yrði til
kosninga sem fyrst.
Október 2010
Þetta hafði gengið á
Fjölmenn og hörð mótmæli voru
í byrjun október á Austurvelli þar
sem fólk lét ríkisstjórnina heyra það
fyrir blóðugan niðurskurð í þjóð-
félaginu og að lítið sem ekkert væri
verið að gera varðandi skuldavanda
heimilanna og kallaði eftir skjald-
borg um heimilin. Alþingi, þing-
menn og ráðherrar voru grýttir og
slori var sturtað við heimili Jóhönnu
Sigurðardóttur og Steingríms J.
5. október mældist ríkisstjórnin
með það sem átti eftir að reynast
hennar minnsti stuðningur á kjör-
tímabilinu, samkvæmt könnunum
MMR, aðeins 22,8 prósent. Þrátt
fyrir þetta var ekki uppi hávær
krafa meðal stjórnarandstöðunnar
um að ríkis stjórnin stigi til hliðar.
Það sem sagt var
„Ég held að það verði annaðhvort
kosningar eða breytt stjórnar-
mynstur en hvort við tökum þátt
í því skal ég ekki segja,“ segir Sig-
mundur Davíð Gunnlaugsson,
formaður Framsóknarflokksins,
í Bítinu á Bylgjunni 8. október og
talaði um að mynda þjóðstjórn. „Ég
held að það væri æskilegast að all-
ir kæmu inn í stjórnina og mynduð
yrði þjóðstjórn sem myndi samein-
ast um tíu mikilvægustu verkefnin
og fara í þau. Þá ræður meirihlut-
inn í þinginu.“
Vigdís Hauksdóttir, þingmaður
Framsóknarflokksins, líkti Össuri
Skarphéðinssyni, Steingrími J. og
Jóhönnu við dauða fugla á grilli
bíla á bloggi sínu.
„Nú eru þau föst í grillinu – geta
ekki losað sig – geta ekki brotið
odd af oflæti sínu með að segja það
hreint út að þau ráði ekki við vand-
ann. […] Þau bíða að einhver komi
með hanska og plokkara til að ná
þeim … Hví – jú það lítur betur út
fyrir þessi þrjú egó – sem halda að
þau séu stærri en þjóðin.“
Desember 2012
Þetta hafði gengið á
Mikil ólga á vinnumarkaði þar sem
Alþýðusamband Íslands hafði með-
al annars sakað ríkisstjórnina um
svik og vanefndir. Steingrímur J. sak-
aði forseta ASÍ um að kunna ekki
mannasiði og samskipti stjórnar
og ASÍ voru afar stíf. 11. desember
mældist ríkisstjórnin með 28,9 pró-
senta fylgi í könnun MMR.
Það sem sagt var
14. desember 2012 krafðist Bjarni
Benediktsson þess að Jóhanna Sig-
urðardóttir „skilaði lyklunum“ í ræðu
á Alþingi.
„Það er hlutverk ríkisstjórnar á
hverjum tíma að leiða saman þjóð-
ina, skapa sátt í samfélaginu, koma
á friði og ró á vinnumarkaði eftir
því sem ríkisstjórnin hefur eitthvað
fram að færa í þeim efnum, en ekki
að efna til átaka, svika og sundr-
ungar í samfélaginu,“ og bætti við:
„Ég spyr hæstv. forsætisráð-
herra: Er ekki kominn tími til að
viðurkenna uppgjöfina, viður-
kenna getuleysið, viðurkenna úr-
ræðaleysið sem blasir við öllum?
Er ekki kominn tími til að skila
lyklunum? Hvers vegna á að halda
þjóðinni í þeirri stöðu að þurfa að
bíða eftir kosningum fram á vor
[…] Hvers vegna ekki bara að skila
lyklunum nú þegar?“
2009 2010 2011 2012 2013 2014 2015 2016
10%
20%
30%
40%
50%
60%
Stuðningur við ríkisstjórnina
– Samfylking og Vinstri græn
– Framsókn og Sjálfstæðisflokkur
Mesta fylgi
25.04.09
47,7%
Mesta fylgi
01.06.13
59,9%
Fylgi
02.06.15
29,4%
Minnsta
fylgi
06.04.16
26%
Kastljósþáttur
um Panama-
skjölin sýndur
03.04.16
Minnsta fylgi
05.10.10
22,8%
Fylgi
17.04.12
25,5%
Fylgi
14.04.13
24,6%
Krafin um
afsögn
05.03.10
36,1%
Krafin um
afsögn
11.12.12
28,9%