Dagblaðið Vísir - DV - 29.04.2016, Side 10
Helgarblað 29. apríl–2. maí 201610 Fréttir
Sérbakað
fyrir þig
Allt fyrir fermingar
tertur, heitir réttir,
brauðtertur, snittur
og margt fleira.
Sími: 483 1919 - almarbakari@gmail.com Hveragerði og Selfossi
H
ópur manna hefur, hart-
nær hvert sumar, leitað að
fjársjóði musterisriddara
á hálendi Íslands. Í farar-
broddi er Ítalinn Giancarlo
Gianazza sem telur sig hafa fundið
vísbendingar í meistaraverkum
Dante, da Vinci, Boticelli og Raph-
ael sem allar vísa á ákveðinn stað,
ár farveg uppi á Kili. Á leitarstaðnum
hafa undanfarin ár fundist enn fleiri
vísbendingar sem gefa til kynna að
fótur sé fyrir kenningum Gianazza
auk þess sem eitt af höfuðverkum
okkar Íslendinga, Sturlunga, leik-
ur mikilvægt hlutverk í lausn ráð-
gátunnar. Enn einn leiðangurinn er
fyrir hugaður í sumar.
Tortóla miðalda
Íslenskt samfélag nötrar nú um
stundir út af uppljóstrunum úr
svokölluðum Panama-skjölum.
Skjölin sýna fram á hvernig fjöl-
margir íslenskir valdamenn fluttu
verðmæti frá landinu á tímabili þar
sem ástandið hérlendis var vægast
sagt ótryggt. Ekkert er hins vegar nýtt
undir sólinni og í gegnum söguna
eru mörg dæmi um slíkt, að verð-
mætum sé skotið undan í öruggt
skjól. Eitt hugsanlegt dæmi byggir
á þeirri kenningu að árið 1217 hafi
herflokkur musterisriddara ferðast
alla leið til Íslands til þess að koma
verðmætum fjársjóði í öruggt skjól
við heimskautabaug. Ísland var,
samkvæmt þessari kenningu, því
eins konar Tortóla miðalda.
Byltingarkennd túlkun
meistaraverks
Þessi kenning á rætur sínar að rekja
til rannsókna Giancarlo Gianazza,
ítalsks stærðfræðings, á meistaraverki
ítalskra bókmennta, Guðdómlega
gleðileiknum eftir Dante Alighieri,
sem ort var í byrjun 14. aldar. Í kvæð-
inu lýsir Dante ferðalagi sínu um
helvíti (Inferno), hreinsunareldinn
(Purgatorio) og að lokum paradís
(Paradiso) í fylgd rómverska skálds-
ins Virgil og drottningarinnar Beat-
rice. Dante var frumkvöðull í að skrifa
á ítölsku talmáli frekar en latínu og
því hefur hann verið titlaður „Fað-
ir ítölskunnar“. Það er því í meira lagi
n Enn einn leiðangurinn fyrirhugaður í sumar n Kenningin byggist á Gleðileik Dante
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Leitin að fjársjóði
musterisriddaranna