Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2016, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2016, Blaðsíða 32
Helgarblað 19.–22. ágúst 201628 Lífsstíll - Kynning K affivagninn, Grandagarði 10 í Reykjavík, verður í hátíðar­ skapi á Menningarnótt en þá verður aldrei þessu vant opið til miðnættis. Staður­ inn verður opnaður klukkan hálf tíu um morguninn. Að sögn Mjallar Daníelsdóttur, eiganda staðarins, er hvergi betra útsýni á flugeldasýn­ inguna sem slær botninn í Menn­ ingarnótt en út um gluggana á Kaffi­ vagninum og á pallinum fyrir utan staðinn. Matreiðslumeistari staðarins verður með nýja og spennandi rétti á Menningarnótt í takt við það ferska hráefni úr sjónum sem honum verð­ ur tiltækt þann daginn. Ekki eru borðapantanir en þeir sem mæta tímanlega fá borð og geta notið Menningarnætur á þessum frábæra matsölustað með einstakt útsýni yfir höfnina, sjóinn og borgina. Einn elsti og þekktasti veitingastaður borgarinnar Nútíð og fortíð blandast saman með skemmtilegum hætti á Kaffivagn­ inum, einum elsta og þekktasta veitingastað borgarinnar, en síðustu árin hefur verið lögð aukin áhersla á framsækna matargerð úr íslensku sjávarfangi á staðnum. Segja má að Kaffivagninn sé í dag þrískiptur staður, í fyrsta lagi býður hann upp á fjölbreyttan og framúrskarandi morgunverð, í öðru lagi er hann fisk­ réttastaður og í þriðja lagi kaffihús með kökum. Kaffivagninn hefur frá árinu 2013 verið í eigu hjónanna Guðmundar Viðarssonar, sem er matreiðslu­ meistari staðarins, og Mjallar Daníels dóttur. Á hverjum degi eru í boði 3–4 fiskréttir dagsins: „Við leggjum mikla áherslu á fisk­ rétti og erum á þessum skandinav­ ísku nótum. Flestir fiskréttirnir okkar eru bornir fram á pönnum. Einn af þessum pönnuréttum má kalla aðalsmerki Kaffivagnsins en það er þorskhnakki, gratíneraður með rækjum og béarnaise­ sósu, Julian­ grænmeti og kartöflum. Þetta er afar vinsæll réttur. Síðan erum við með gömlu góðu réttina sem við förum með upp á næsta stig. Þar má nefna plokkfisk, fiskibollur, bleikju og fiskisúpu. Þá erum við með smurbrauð með bleikju en fyrir þá sem alls ekki vilja fisk þá bjóð­ um við líka upp á smurbrauð með roast beef sem við poppum dálítið upp,“ segir Mjöll. Á Kaffivagninum er fastur matseðill sem gest­ ir staðarins ganga að vísum en réttir dagsins eru hins vegar breytilegir frá degi til dags og ráðast algjörlega af því hvaða fiskur er í boði þann daginn. Ferskleikinn er í há­ vegum hafður á Kaffivagnin­ um og eingöngu er boðið upp á splunkunýjan og ferskan fisk. Fjölbreyttur hópur viðskiptavina Eins og margir aðrir veitinga­ staðir í Reykjavík hefur Kaffi­ vagninn ekki farið varhluta af fjölgun erlendra ferðamanna, sem vissulega sækja staðinn og setja skemmtilegan svip á hann. Íslendingar eru samt sem áður um 75% gestanna og hefur gestahópur­ inn orðið fjölbreyttari síðari árin, til dæmis hefur konum fjölgað mikið. „Hingað koma afar og ömmur með barnabörnin, ungt fólk sækir mikið hingað og svo eru til dæmis kvennahópar sem mæta hingað á föstum tímum, til dæmis fyrsta þriðjudag í hverjum mánuði og svo framvegis,“ segir Mjöll. Auk fiskrétt­ anna hefur fjölbreyttur og girnilegur morgunverður Kaffivagnsins mikið aðdráttarafl. Má meðal annars gæða sér á lúxus­hafragraut, hrærðum eggjum, beikoni og eggjum, laxi og ristuðu brauði. Mjög vinsælt er að fá sér kaffi og kökur á Kaffivagninum en allar kök­ ur eru bakaðar á staðnum. Hefðbundinn opnunartími Kaffi­ vagnsins er alla daga vikunnar frá kl. 07.30 til 18.00. Heimasíðan er www. kaffivagninn.is n Besta útsýnið á flugeldasýninguna Kaffivagninn á Menningarnótt Allt á einum stað: Prentun, merkingar og frágangur. Inni- og útimerkingar. Segl- og límmiðaprentun. Ljósmynda-, striga- og segulprentun. Textaskraut, sandblástur, GSM hulstur og margt fleira...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.