Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2016, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2016, Blaðsíða 24
Helgarblað 19.–22. ágúst 20162 Skrifstofan - Kynningarblað Gæðafartölvur við allra hæfi – á hóflegu verði Computer.is, Skipholti 50C C omputer.is býður upp á mikið úrval af fartölvum af tegundunum Asus og Lenovo sem eru bæði þekkt og rómuð hágæðamerki í fartölvum. Bilanatíðni er afar lág í þessum tölvum og framleiðslugall­ ar fátíðir. Þessar fartölvur býður Computer.is í öllum stærðum og gerðum þannig að allir geta fund­ ið eitthvað við sitt hæfi, hvort sem kaupendurnir eru ástríðufullir tölvuleikjaspilarar, námsmenn eða fólk í atvinnulífinu í leit að góðri vinnutölvu. Tölvurnar eru á mjög samkeppnishæfu verði en þessa dagana eru sérstök skólatilboð á vinsælustu fartölvunum. Computer.is er ein elsta starfandi tölvuverslun landsins en fyrirtækið hóf starfsemi í ágúst árið 1986 und­ ir heitinu Tæknibær. Í upphafi tak­ markaðist starfsemin við heildsölu á samskiptabúnaði fyrir tölvur en í dag er Computer.is sérverslun með vandaðar tölvur og fylgihluti á betra verði. Verslunin er staðsett að Skip­ holti 50c en er jafnframt með öfluga netverslun sem sendir vörur um allt land samdægurs eða næsta dag ef pöntun berst eftir kl. 15.00. Minnstu fartölvurnar eru með 10 tommu skjá og þeim er hægt að skella í litlar handtöskur og nota til dæmis á ferðalögum. Flestum þykir þó best að vinna með 13–15 tommu tölvur en það eru jafnframt vinsæl­ ustu stærðirnar. Sem fyrr segir geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi og best er að koma í verslunina að Skipholti 50c þar sem afgreiðslu­ fólk með mikla þekkingu á fartölv­ um gefur góð ráð og hjálpar til við að velja réttu tölvuna fyrir hvern og einn. Það er einnig gagnlegt að skoða úrvalið á heimasíðu verslun­ arinnar, computer.is. n Auðvelt að kaupa skrifstofuvörur og láta gott af sér leiða á sama tíma M úlalundur selur fjöl­ breyttar skrifstofuvörur sem öll fyrirtæki þurfa á að halda. Með því að kaupa þær af okkur eru fyrirtæki í leiðinni að styðja við at­ vinnusköpun fólks með skerta starfsorku og ná þannig árangri á sviði samfélagslegrar ábyrgðar án aukavinnu eða kostnaðar,“ segir Sigurður Viktor Úlfarsson, fram­ kvæmdastjóri Múlalundar, Vinnu­ stofu SÍBS, sem starfrækt er á lóð Reykjalundar í Mosfellsbæ. Á síð­ asta ári fengu um 70 einstaklingar með skerta starfsorku tækifæri til að spreyta sig á Múlalundi. „Fyrirtæki geta verslað við okk­ ur í gegnum vefverslun okkar mula­ lundur.is, hringt og pantað, sent töluvupóst eða kíkt til okkar. Versl­ un Múlalundar er opin öllum alla virka daga. Við sendum vörurnar um hæl og ef keypt er fyrir 8.500 krónur eða meira er enginn sendingar­ kostnaður á höfuð­ borgar­ svæðinu. Vörur koma yfirleitt næsta virka dag,“ segir Sigurður. Vöruframboð og þjónusta sam­ anstendur af vörum framleiddum á Múlalundi og öðrum vörum sem Múlalundur selur til að viðskipta­ vinir geti nálgast sínar skrifstofu­ vörur allar á einum stað. „Margar framleiðsluvörur Múla­ lundar eru vörur sem fólk þekkir, s.s. Egla­möppurnar, plastvasarn­ ir, gatapokarnir, stóra veggdagatalið okkar, fjölbreyttar möppur af ýms­ um stærðum og gerðum og margt fleira. Einnig sérvinnum við vörur fyr­ ir tiltekna viðskiptavini, til dæmis Andrésar Andar­ möppurnar sem til eru á flestum heimil­ um. Þá framleið­ um við sérhannað­ ar verkstæðismöppur fyrir verkstæði og bílaleigur, möpp­ ur hannaðar undir atvinnuskírteini sjómanna, mat­ og vínseðla fyrir veitingastaði og hótel og margt fleira. Starfsfólk Múlalundar framleiðir seðlana frá grunni ásamt áprentun eða þrykkingu. Ferðaskrifstofur hafa einnig verið að nýta sér töskumerk­ in okkar með merki fyrirtækisins. Þá sker farangur ferðaskrifstofunnar sig frá öðrum og viðskiptavinurinn fær merki fyrir tækisins sem hann notar áfram, jafnvel í mörg ár.“ Þessu til viðbótar vinnur starfs­ fólk Múlalundar ýmsa handavinnu fyrir fyrirtæki, s.s. við að strika­ merkja vörur, pakka hlutum, setja í umslög og margt fleira sem fyrirtæki sjá hag sinn í að láta starfsfólk Múla­ lundar sjá um – og skapa með því verðmæt störf. Starfsemi Múlalundar er óneitan lega víðtæk og líklega fjöl­ breyttari en flestir gera sér grein fyrir: „Við getum flest,“ segir Sigurð­ ur um þetta og hlær. Ljóst er að starfsemi Múlalundar, Vinnustofu SÍBS, er stórmerkileg og vörur fyrirtækisins koma víða við sögu í daglegu lífi fólks. Með því að kaupa vörur frá Múlalundi – vörur sem fyrirtæki þurfa hvort eð er að kaupa fyrir sína daglegu starfsemi – er verið að viðhalda og fjölga störf­ um fyrir fólk með fötlun í samfé­ laginu. n Lenovo 14" Yoga 700 i5 Intel i5, 256GB SSD, 8GB minni, 8 klst. rafhl. Tilb. 144.900 Asus 11,6" E202SA Fislétt, ódýr og með 8 klst. rafhlöðuendingu - Verð: 59.900 Lenovo 15,6" Y700 Leikjatölva Intel i5, 128GB SSD og 1TB HDD, 8GB DDR4, nVidia GTX960M - 179.900 Asus 11,6" E202SA Fislétt, ódýr og með 8 klst. rafhlöðuendingu - Verð: 59.900

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.