Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2016, Blaðsíða 22
Helgarblað 19.–22. ágúst 201622 Fólk Viðtal
Mekka íssins
Erum í miðbæ
Hveragerðis
Ís í vél, 4 tegundir | Kúluís
Pinnaís | Krap | Bragðarefur
Ísfrappó | Sælgæti | Franskar
Samlokur | Gos | Snakk
Bland í poka | Pylsur | Kaffi
Opnunartími
mán-fim 10 - 21 / fös 10 - 22
lau 12 - 22 og sun 12 - 21 Breiðamörk 10, Hveragerði
H
armageddon hefur ver-
ið í loftinu í nærri tíu ár og
hefur náð miklum vinsæld-
um fyrir beinskeytt við-
töl, harða gagnrýni þeirra
Frosta og Mána á Þjóðkirkjuna og
undarlegar uppákomur í beinni út-
sendingu. Máni hefur starfað á X-
inu frá árinu 1997 þegar hann var
rétt skriðinn yfir tvítugt og nýkominn
úr meðferð. Hann lýsir sjálfum sér
sem frjálshyggjusósíalista, femínista
og Garðbæingi. „Lengi vel hataði ég
Garðabæ, helst af því að ég elst upp
í ömurlegu skólakerfi í Garðabæ og
að mörgu leyti skrýtnu samfélagi.
Æskan var ævintýralega skemmti-
leg fyrir utan erfiðleikana í skóla-
kerfinu, foreldrar mínir voru frábær-
ir. Þegar ég var ungur þá var þetta
algjör plebbastaður og þegar ég var
tvítugur þá var Garðabær ekki þekkt-
ur fyrir neitt nema að þar byggju bara
pabbastrákar. Svo seinna nær maður
sátt við sjálfan sig. Ég er mótaður af
bænum, ég er Stjörnumaður, maður
á að elska það sem mótar mann og
ég væri ekki ég nema út af Garðabæ.
Nú lít ég á bæinn og sé stóran hóp
af afreksíþróttamönnum, tónlistar-
mönnum og rithöfundum frá Garða-
bæ, það er merkileg staðreynd að allt
þetta hæfileikaríka fólk er yfirleitt
ekki í Sjálfstæðisflokknum.“
„Enginn
kvartað
eins mikið
og Biskups-
stofa“
Margt hefur verið sagt um Þorkel Mána Pétursson
og mörgu hægt að bæta við. Í nærri því áratug hefur vélbyssu-
kjaftur Mána ómað í útvarpstækjum landsmanna í gegnum
þáttinn Harmageddon á X-inu 977 sem hann stýrir ásamt
Frosta Logasyni. Þeim Harmageddonbræðrum er fátt heilagt
og ekkert óviðkomandi. Ásamt því að vera í útvarpi nánast á
hverjum degi þá starfar Máni einnig sem umboðsmaður og
hefur starfað sem knattspyrnuþjálfari. Ari Brynjólfsson hitti
Mána og fór yfir stöðuna á honum og samfélaginu öllu.