Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2016, Blaðsíða 38

Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2016, Blaðsíða 38
Helgarblað 19.–22. ágúst 201634 Menning Þ egar keyrt er út Eyjafjörð að Svalbarðseyri tekur á móti manni blár jakkafataklæddur málm- risi með hatt og lukt. Þessi háfætti og alvörugefni safnvörður er sköpunarverk Huglistar, hóps geðfatlaðs listafólks, og vísar hann forvitnum ferðalöngum á Safnasafnið. Safnið hefur verið starfrækt í rúm tuttugu ár af hjónunum Magn- hildi Sigurðardóttur geðhjúkrunar- fræðingi og Níels Hafstein myndlist- armanni, fyrst í Reykjavík en síðar fyrir norðan í Gamla barnaskólanum eða Þinghúsinu og kaupfélagshús- inu Gömlu-búð sem þau fluttu upp eftir höfninni, gerðu upp og tengdu með nýrri byggingu. Safnið er opið á sumrin og eru þar settar upp metnaðarfullar sýningar á verkum lærðra jafnt sem sjálflærðra listamanna, jaðarlistamanna sem af ýmsum ástæðum hafa ekki orðið hluti af meginstraumnum. Hjónin eru óþreytandi í að svara spurningum safngesta um verkin og listamennina, bjóða upp á nýbak- aða ástarpunga frá nágrannakonu og halda uppistand með safni töfr- andi leikfanga víðs vegar að úr heim- inum. Þarna er hægt að gleyma sér í ævintýralegum og litríkum steypu- höggmyndum Ragnars Bjarnasonar, agnarsmáum grafítskúlptúrum Kópavogsbúans Jaroslaws Lenski og brúðum frá öllum heimshornum. Alþýðulistin milli þilja „Löngu áður en við stofnuðum safnið var orðið ljóst að það stefndi í óefni með þessa grein myndlist- arinnar,“ segir Níels um ástæður þess að Safnasafnið var stofnað árið 1995. Listasafnið hafi sýnt alþýðu- listinni lítinn áhuga, en í vörslu Þjóðminjasafnsins hafi myndverk ís- lenskrar alþýðu fyrst og fremst verið skoðuð út frá sjónarhóli þjóðfræða. Níels segir að Nýlistasafnið hafi reynt að koma til aðstoðar eftir að það var stofnað 1978. „Á þeim tíma fannst mér ekki annað hægt en að ungir myndlistarmenn tækju skref í þá átt að bjarga alþýðulistinni á sama tíma og þeir björguðu nútíma- listinni, því Listasafn Íslands hafði áhuga á hvorugu þá.“ Hins vegar hafi Nýlistasafnið fyrst og fremst verið hugsað sem safn og sýningarrými ungra listamanna og var því ljóst að stofna yrði sjálfstætt safn um alþýðulistina, og það gerðu Magnhildur og Níels sem höfðu sjálf safnað þrívíðum gripum íslenskra alþýðulistamanna um nokkurt skeið. „Orðið alþýðulist er frekar óhent- ugt hugtak því það er niðurlægingar- tónn í því. Þegar Bólu-Hjálmar, þetta firnasterka ljóðskáld, kom til sögunnar var hann kallaður „al- þýðuskáld“ en þeir sem höfðu far- ið til náms í Kaupmannahöfn voru skáld með stórum staf – þótt þeir væru hvorki betri né verri sumir hverjir. Þessi skilgreining færðist svo yfir á þá sem unnu við myndsköpun. Alþýðulistamennirnir eru sjálflærðir en hinir skólalærðir. Við höfum reynt að taka þessi hugtök upp hér líkt og gert er í Bandaríkjunum, því við telj- um þau ásættanleg,“ segir hann. „Í Evrópu eru hugtökin á reiki: Art Brut, Visionary Art, Raw Art, Folk- Art og mörg fleiri orð sem eru not- uð sitt á hvað,“ segir Níels, sem tók sig til fyrir 14 árum og þróaði flokk- unarkerfi sem hann segir að nýtist til að draga saman alla myndlist og sýna hvernig uppspretta sköpunar- innar sé ein og söm – hvort sem hún fái form sitt í sjálfsprottinni sýn eða lærðri fagurfræði. Þetta kerfi sem hann kallar „Hringferil myndlistar“ inniheldur 16 þætti sem notaðir eru við mat á ríflega 6.100 verkum safns- ins og tölvuskráningu þeirra. » Loftsíur » Smurolíusíur » Eldsneytissíur » Kælivatnssíur » Glussasíur Túrbínur Bætir ehf. býður upp á viðgerðarþjónustu fyrir flestar gerðir túrbína. Sími 567-2050 - Smiðshöfði 7 - 110 Reykjavík Viðgerða- og varahlutaþjónusta í yfir 30 ár Bætir ehf hefur í rúm 30 ár boðið uppá alhliða viðgerða- og varahlutaþjónustu fyrir breiðann hóp viðskiptavina. Við þjónustum og útvegum varahluti í flestar tegundir dísilvéla og höfum mikla reynslu í ZF og Twin Disc gírum. Bætir ehf hefur um árabil boðið uppá há gæða varahluti, frá framleiðendum á borð við IPD og Interstate Mcbee, sem henta m.a. í vélar frá: Caterpillar® Cummins® Detroit Diesel® Nöfn vélaframleiðenda eru hér aðeins til upplýsinga og eru vörumerkin eign hvers framleiðanda. Cat® og Caterpillar® eru skrásett vörumerki í eigu Caterpillar Inc. Cummins® er skrásett vörumerki í eigu Cummins Engine Company. Detroit Diesel® er skráett vörumerki í eigu Detroit Diesel Corporation. Kímni, léttleiki og leiðrétt listasaga Safnasafnið hefur sýnt listaverk alþýðulistamanna og einfara í íslenskri myndlist í rúmlega 20 ár „Erlendir gestir halda að ómældu opinberu fé sé varið til rekstrar og verkefna, sem er ekki raunin. En það er efni í annað og mun alvarlegra viðtal. Safnvörð- urinn Huglist, listahópur fólks með geðraskanir, bjó til hinn ein- kennandi safn- vörð Safnasafns- ins. Mynd MAgnhildur SigurðArdóttir óþekktar listakonur Níels Hafstein segir að þegar útsaumsverk missi hlutverk sitt öðlist það nýtt gildi og eigi erindi við skap- andi myndlist. Mynd MAgnhildur SigurðArdóttir Verðlaunuð Niels og Magn- hildur hlutu Eyrar- rósina, viðurkenn- ingu fyrir afburða menningarver- kefni á lands- byggðinni, árið 2012 fyrir rekstur Safnasafnsins. Kristján guðjónsson kristjan@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.