Dagblaðið Vísir - DV - 19.08.2016, Blaðsíða 4
Helgarblað 19.–22. ágúst 20164 Fréttir
Sérmerktu
persónulegu
gjafavörurnar
ALLT MERKILEGT
GarðatorG 3, Garðabæ - S: 555 3569 - Sala@alltmerkileGt.iS - alltmerkileGt.iS - Sala@alltmerkileGt.iS
Pantaðu í netversluninni
Hægt er að fá bæði sent heim
eða sækja í nýju versluninni okkar!
Allt
merkilegt
10 árA
Margrét Gauja
vill á þing
Mar grét Gauja Magnús dótt ir,
bæj ar full trúi í Hafnarfirði og
varaþingmaður, gef ur kost á sér
í 2. sæti í próf kjöri Sam fylk ing
ar inn ar í Suðvest ur kjör dæmi.
Mar grét er 39 ára og hef ur setið
í bæj ar stjórn Hafn ar fjarðar
frá ár inu 2006, verið for seti
bæj ar stjórn ar, formaður um
hverf is og fram kvæmdaráðs,
formaður fjöl skylduráðs og
stjórn ar formaður Sorpu Bs. Hún
er með BApróf í upp eld is og
mennt un ar fræðum frá HÍ og
kennslu rétt indi og stund ar MA
nám í upp eld is og mennt un
arsál fræði með áherslu á borg
ara vit und og lífs sýn ungs fólks.
„Hefðum getað
fyllt nokkrar íbúðir“
n Þakklát þjóðinni í kjölfar bruna n Mamma tekið vel á móti Perlu
V
iðbrögðin hafa verið ótrú
leg. Við hefðum getað fyllt
nokkrar íbúðir ef tekið
hefði verið við öllu sem
okkur bauðst eftir að heim
ili pabba á Seltjarnarnesi brann,“
segir Jóhanna Ósk Snædal. Heimili
fjölskyldunnar til 30 ára er gjörónýtt.
Eldur kom upp í húsinu á þriðju
dag en allt tiltækt slökkvilið á höfuð
borgarsvæðinu var kallað til. Í hús
inu bjó bróðir Jóhönnu og Kristján
G. Snædal, faðir hennar, ásamt tík
inni Perlu sem varð eldinum að bráð.
Jóhanna biðlaði til þjóðarinnar eftir
hjálp. Í frétt Pressunnar var haft eftir
Jóhönnu:
„Þetta er annað mikla áfallið á
mánuði en svo stutt er síðan mamma
kvaddi. Nú er pabbi búinn að missa
konuna, hundinn, húsið og allt inn
bú og Dabbi bróðir líka.“
Tíkin Perla gerði nágrönnum vart
við eldinn með eymdarlegu gelti.
Þegar slökkvilið kom á vettvang var
ekki vitað hvort fólk væri í húsinu
og fóru reykkafarar inn í það. Eina
sem fannst í húsinu var fjölskyldu
hundurinn sem var dauður uppi í
hjónarúmi. Bruninn var mikið áfall
og sagði Jóhanna að fjölskylduna
vantaði bæði húsnæði og innan
stokksmuni. Jóhanna segir að síminn
hafi logað eftir að hún sendi neyðar
kall til þjóðarinnar og á aðeins ein
um degi hafi safnast allt sem til þarf
til að halda gott
heimili.
„Ég hef verið í
símanum frá því
í gær. Við erum
komin með alla
innanstokks
muni og flíkur,“
segir Jóhanna og
þá er fjölskyldan
að fara að skoða
tvær íbúðir sem
henni hefur
boðist.
Systir Jó
hönnu, Katrín
Björg Guðbjörnsdóttir, segir erfitt að
sjá á eftir húsinu og tíkinni og finnur
mikið til með föður sínum og bróður.
Ljósið í myrkrinu er að hennar mati
ótrúleg viðbrögð ókunnugs fólks
sem hafi létt undir með fjölskyldunni
með góðmennsku sinni og hlýhug.
Hún áttaði sig á að um æskuheim
ili hennar var að ræða þegar hún sá
fréttir á Facebook.
„Það var hræðilegt og síðustu
mánuðir er búnir að vera eins og í
ömurlegu kantrílagi; pabbi fékk áfall,
mamma dó úr krabbameini þann
13. júlí og svo brennur æskuheim
ilið. Skítt með innanstokksmuni
en myndir og persónulega hluti er
vont að missa. Og elsku Perlan okk
ar, mamma hefur tekið vel á móti
henni. Þær voru óaðskiljanlegar, þær
voru eitt.“
Þegar DV náði tali af Jóhönnu var
hún á leið út á Melabraut að ná tíkina
Perlu til að grafa hana, en hundinum
var komið fyrir í garðinum og hefur
verið þar síðan á þriðjudaginn.
„Perla var úti í garði þegar við fór
um þangað í gær. Við máttum ekki
fara inn í garðinn því svæðið var lok
að,“ segir Jóhanna sem fékk leyfi lög
reglu í dag til að ná í tíkina en lög
regla hefur lokið störfum á svæðinu.
„Ég vil þakka fyrir stuðninginn. Þetta
yljar manni svo mikið. Ég er svo
þakklát þjóðinni fyrir að styðja við
bakið á pabba á erfiðustu stund lífs
hans.“ n
Jóhanna Ósk Missti æskuheimilið en þakkar þjóðinni. Myndir ÞorMar Vignir gunnarsson
Erfið lífsreynsla Húsið gjörónýtt eftir
brunann.„Mamma hefur
tekið vel á móti
henni. Þær voru óaðskilj-
anlegar, þær voru eitt.