Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2016, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2016, Blaðsíða 8
Helgarblað 7.–10. október 20168 Fréttir 5 5 2 - 6 0 6 05 5 2 - 6 0 6 0 Ugly. is - smiðjUvegi 2 og l angarima 21 „Ég hálf missti andann“ n Barnaspítalinn lét ekki vita af þvagfærasýkingu dótturinnar n Undrandi á verklagsreglum G reyið litla prinsessan var búin að vera rosalega pirruð og svaf mjög illa en ég hélt að það væru bara tennurn- ar eða maginn á henni því hún er á þessu magalyfi. Á meðan er hún búin að vera með þvagfærasýk- ingu í tvær vikur, og enginn hringir og lætur mig vita,“ segir Elísabet Ósk Magnúsdóttir en hún kveðst ósátt við verklagsreglur Barnaspítalans varðandi það að foreldrum sé ekki tilkynnt símleiðis þegar óeðlilegar niðurstöður berast úr rannsóknum, heldur þurfi þeir sjálfir að bera sig eftir þeim. Sjálf hafi hún lent í því að vera ekki tilkynnt um það að fyrra- bragði að sex mánaða dóttir hennar væri haldin svæsinni þvagfærasýk- ingu af völdum E. Coli-bakteríu. Óbærileg lykt Í samtali við blaðamann DV segir Elísabet að dóttir hennar hafi fyrst verið lögð inn á Barnaspítalann þann 17. ágúst síðastliðinn vegna alvarlegrar, einkennalausrar E. Coli- þvagfærasýkingar. „Hún var þar í fimm daga og þá var annað nýrað örlítið stækkað. Hún fór á tvo pensi- línkúra eftir það.“ Hún kveðst hafa leitað á ný með dóttur sína á Barnaspítalann þann 13. september síðastliðinn en afar vond lykt hafi þá verið af þvagi henn- ar. Segir Elísabet að hana hafi þá grunað að dóttirin væri komin með þvagfærasýkingu en læknir hafi tjáð henni að lyktin væri tilkomin vegna magalyfsins sem dóttir hennar hafði tekið inn undanfarnar tvær vikur. Segir Elísabet hann hafa sannfært hana um að dóttir hennar væri ekki haldin sýkingu af þessu tagi. „Við erum að tala um lykt sem festist í öllum fötum, dýnunni og sænginni hennar þegar hún sefur,“ segir hún og bætir við að í kjölfarið hafi umræddur læknir sent þvag- sýni úr dóttur hennar í ræktun. Hún hafi þá verið farin að upplifa sig sem „móðursjúka“ mömmu. „Ég fer síðan heim með Júlíu af spítalanum og daginn eftir enda ég sjálf á spítala í viku. Ég er rétt núna að byrja að jafna mig eftir þessi hræði- legu veikindi sem þessu fylgdu.“ „Ég hálf missti andann“ Elísabet segir ritara taugalæknis dóttur hennar hafa hringt í hana síð- astliðinn fimmtudag til að tjá henni að tími sem dóttir hennar átti hefði fallið niður. Elísabet segist um leið hafa spurt ritarann hvort ekki væri allt í góðu með sýnið sem sent hafði verið í ræktun fyrr í mánuðinum. Henni hafi þá verið sagt að svo væri ekki; dóttirin væri með E. Coli-sýk- ingu í þvagfærum. Hún segir að sér hafi brugðið illilega og hún reiðst, enda hafi dóttir hennar verið afar kvalin undanfarnar tvær vikur. Elísabet kveðst furða sig á verk- lagsreglum Barnaspítalans og þeirri staðreynd að ekki sé hringt í for- eldra og þeir upplýstir ef prufur koma illa út. Þess í stað þurfi þeir sjálfir að hringja og spyrjast fyrir um niðurstöðurnar. „Ég er búin að segja tveimur læknum frá þessu og annar var afskaplega hissa á að ég væri ekki látin vita, á meðan hinn sagði: „Já, var þér ekki sagt að hringja í síma- tíma?“ segir hún jafnframt. „Maður hefði haldið að þegar maður fer í alls konar blóðprufur og rannsóknir sé yfirleitt látið vita ef eitthvað er að. En annars er ekkert hringt í mann. Ég vil samt taka það fram að starfsfólkið á Barnaspít- alanum er alveg yndislegt í alla staði, alveg frá starfs- fólkinu í mötuneytinu upp í sérfræðingana. Það er bara heilmikið álag á þeim og það getur endað illa.“ Segir oft erfitt að ná í foreldra Í skriflegu svari til DV segir Ragnar Bjarnason, yfir- læknir Barnalækninga, Barna- og Kvennasviði, LSH verklagsreglur spítalans vera þær að foreldrar fái ráðleggingar um að hringja í síma á bráðamóttöku eftir tvo daga til að fá svör. Að jafnaði sé ekki hringt til að láta vita af ræktun sem voru eðli- legar, það er metnar sem ekki sýking. Segir Ragnar að sá háttur sé hafð- ur á annars vegar vegna þess að mjög erfitt geti verið að ná í foreldra í uppgefnum númerum og hins vegar þar sem mikilvæg ræktun geti verið merktar læknum sem séu komnir í frí eða af öðrum ástæðum geta ekki brugðist við svari. n Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is Mæðgur Elísabet Ósk ásamt dóttur sinni Júlíu. Barnaspítali Hringsins Hleðslustöðvar um allt land Orkusalan, dótturfélag RARIK, hefur ákveðið að setja upp hleðslustöðvar fyrir rafbíla í öll sveitarfélög landsins. Af þessu segir í tilkynningu frá fyrirtæk- inu. Með þessu vill Orkusalan gera rafbílaeigendum auð- veldara að ferðast um landið allt. Enn sem komið eru fáar hleðslustöðvar á landsbyggð- inni. Eftir átak Orkusölunnar geta eigendur rafbíla ekið á bíl- um sínum um allt land. Haft er eftir sölustjóra Orku- sölunnar að fyrirtækið sé með þessu að ýta mikilvægum bolta af stað og sýna samfélagslega ábyrgð. Stöðvarnar verða um 80 talsins. Sú fyrsta rís í Vest- mannaeyjum á næstunni. Líkamsárás í heimahúsi Lögreglan á höfuðborgarsvæð- inu handtók karlmann á mið- vikudagskvöld eftir að lögreglu barst tilkynning um húsbrot og líkamsárás í heimahúsi í Grafar- holti. Frá þessu er greint í dag- bók lögreglunnar. Maðurinn var færður í fangageymslu en ekki kemur fram hvort meint brot mannsins hafi verið alvarlegt. Síðar þetta sama kvöld var erlendur ferðamaður handtek- inn í miðborginni. Þá var hann búinn að vera ógnandi við gesti á skemmtistað og einnig hafði kann kastað glösum á sama stað. Maðurinn var mjög upp- stökkur og æstur við lögreglu- menn, en róaðist þó inni á milli. Maðurinn fékk að sofa úr sér í fangageymslu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.