Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2016, Blaðsíða 46

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2016, Blaðsíða 46
Helgarblað 7.–10. október 201642 Fólk Tilboð þér að kostnaðarlausu Uppl. í síma: 820 8888 eða markmid@markmid-ehf.is ALHLIÐA FASTEIGNAVIÐHALD Smíðavinna · Pípulagnir · Raflagnir Málningavinna · Múrvinna · Flísalagnir Hellulagnir · Jarðvinna · Lóðavinna „Ekkert gaman ef værum alltaf tvö ein!“ n Sólveig og Sveinn hafa leikið saman í tíu uppfærslum L eikararnir Sólveig Guð­ mundsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnarsson leika um þessar mundir hjón í sýn­ ingunni Sóley Rós ræstitækn­ ir sem sýnd er í Tjarnabíói og hefur fengið frábæra dóma og góða að­ sókn. Sagan er áhrifarík og fjallar um foreldra sem missa barnið sitt í fæðingu. Samstarf Sólveigar og Sveins er þó ekki nýtt af nálinni því þau hafa á undanförnum árum leik­ ið saman í tíu uppfærslum bæði á sviði, í sjónvarpi og útvarpi. „Ég held að ástæðan fyrir þessu sé að við vinnum bæði sem sjálfstætt starfandi leikarar sem þýðir að við höfum hvorugt verið á samningi hjá stóru leikhúsunum. Sjálfstætt starf­ andi listamenn framleiða oft sjálfir verkefnin og jafnvel skrifa leikritin að hluta til eða með höfundi. Í svona vinnu er þakklátt og gjöfult að vinna áfram með góðu fólki og búa til hóp sem vinnur vel saman. En við fáum auðvitað nýtt blóð inn líka, það væri ekkert gaman ef við værum alltaf tvö saman! Eða jú, kannski væri það mjög gaman,“ segir Sólveig hugsi og hlæjandi aðspurð hvers vegna þau hafa svona oft leikið á móti hvort öðru. Hún tekur einnig fram að Sveinn sé afbragðsgóður leikari og að á milli þeirra hafi myndast traust sem sé svo mikilvægt á sviði. Undir þetta tekur Sveinn. „Það væri nú bara skringilegt illmenni sem myndi ekki ná saman við Sól­ veigu Guðmundsdóttur en hún er þægilegasta og yndislegasta mann­ eskja sem fyrirfinnst. Þegar svona samstarf gengur vel þá vísar maður líka ósjálfrátt á hvort annað þegar maður kemst inn í verkefni til dæm­ is með því að segja; „mér sýnist þetta hlutverk henta Sólveigu Guðmunds­ dóttur alveg ágætlega“.“ Sveinn og Sólveig hafa aðallega verið að leika í nýjum íslenskum verkum þar sem handritið er oft að mótast samhliða æfingartímabilinu. „Við vinnum oft handritið á leiðinni og þá þarf stóra hugsun og þor. Uppsetningin getur tekið lengri tíma en verk sem hefur verið sett upp áður. Við höfum bæði gaman af slík­ um verkefnum þó að við séum afar ólík. Svenni er mjög góður í því sem ég er ekki góð í. Hann horfir á stóru myndina á meðan ég er meira að fók­ usera á minni hluti. Það eru töfrarnir. Fólk sér mismunandi hluti en samt er verið að vinna markvisst að því að útkoman verði flott fyrir alla.“ Samstarf án orða Bæði Sveinn og Sólveig nefna barna­ sýninguna Lífið sem samstarfsverk­ efni sem heppnaðist sérstaklega vel en var um leið fremur erfitt. Sýn­ ingin fékk tvenn Grímuverðlaun og var kosin barnasýning ársins 2015 en það er athyglisvert við sýninguna að hún er án orða. „Já, þar var fjallað um tvær verur sem drullumalla á sviðinu. Verkið segir frá hvernig heimurinn varð til, hvernig líf kviknar. Afar falleg og óvenjuleg barnasýning. Það var mik­ il áskorun að búa til sýningu með mold en engum orðum. Sýningin heppnaðist alveg gríðarlega vel og þar hafði gott samspil okkar haft mikið að segja.“ Samstarfi þeirra Sveins og Sól­ veigar er hvergi nærri lokið. Í mars verður Illska sett aftur á fjalirnar í Borgarleikhúsinu og svo er búið að bjóða þeim til Kína með Lífið næsta sumar. Þau eru að sækja um frekari styrki og undirbúa komandi verkefni með GRAL og Óskabörnum ógæf­ unnar. n Út fyrir kassann Kristín Tómasdóttir skrifar Sveinn og Sólveig Samstarfi þeirra er hvergi nærri lokið. Mynd SigTryggur Ari n Örlagaeggin – Leikskólinn setti það verkefni upp í Borgarleikhúsinu í leikstjórn Bergs Þórs Ingólfssonar. n Gunnlaðarsaga sem Kvenfélagið Garpur setti upp í Hafnarfjarðarleikhúsinu. n Horn á höfði, Grímuverðlaunasýning árið 2010 – sýnt í Grindavík, Borgarleik- húsinu, Akureyri og Tjarnarbíói. n Endalok Alheimsins GRAL – Grindvíska Atvinnuleikhúsið. n Eiðurinn og Eitthvað – GRAL/Bergur Þór Ingólfsson. n Lífið – drullumall – í uppsetningu Leik- hússins 10 fingra – 2 Grímuverðlaun, besta barnasýning og Sproti ársins. n Illska 2015 – tilnefnd til 6 Grímuverðlauna. n Sóley Rós ræstitæknir sem nú er sýnt í Tjarnarbíói. n Léku hjón í Pressuseríunni. n Strindberg stundin eftir Bjarnar Jónsson (Útvarpsleikhúsið). n Leifur Óheppni eftir Maríu Reyndal og Ragnheiði Guðmundsdóttur (Útvarpsleikhúsið). n Egilssaga í leikstjórn Erlings Jóhannessonar (Útvarpsleikhúsið). „Við vinnum oft handritið á leiðinni og þá þarf stóra hugsun og þor. sólveig og sveinn hafa leikið saman í eftirtöldum sýningum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.