Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2016, Blaðsíða 25
Helgarblað 7.–10. október 2016 Kynningarblað - Skemmtanalífið 3
Einn öflugasti
tónleikastaður
landsins
Græni hatturinn
snýst um lifandi tónlist
G
ræni hatturinn á Akureyri
er fyrir löngu orðinn einn
þekktasti tónleikastaður
landsins en þar halda lands-
þekktir tónlistarmenn tón-
leika fyrir fullu húsi þrjú kvöld í viku.
Frábær hljómburður og framúrskar-
andi aðstaða gera það meðal annars
að verkum að það eru tónlistar-
mennirnir sjálfir sem hafa samband
við staðarhaldarann, Hauk Tryggva-
son, og panta tónleika, en ekki öfugt.
Oftast er húsið bókað marga mánuði
fram í tímann.
„Hér er bara opið þegar tón-
leikar eru í gangi og þá er hús-
ið opnað klukkutíma áður en tón-
leikarnir hefjast, eða klukkan 20 á
fimmtudagskvöldum og 21 á föstu-
dags- og laugardagskvöldum. Síð-
an er lokað um klukkustund eftir að
tónleikunum lýkur,“ segir Haukur en
hann hefur rekið Græna hattinn frá
árinu 2003. Orðspor staðarins sem
tónleikastaðar hefur vaxið jafnt og
þétt og er mjög algengt að erlendir
tónlistarmenn hafi sambandi og
falist eftir því að troða upp á staðn-
um.
„Hér spilaði til dæmis hljóm-
sveitin The Sex Pistols Experience
um síðustu helgi en hún flytur tónlist
hinnar frægu ensku pönkhljómsveit-
ar The Sex Pistols. Hin heimsfræga
hollenska rokkhljómsveit Focus spil-
aði síðan hér í fyrra. Ég hélt reynd-
ar að þetta væri eitthvert grín þegar
umboðsmaður þeirra hafði sam-
band enda hélt ég mikið upp á þessa
hljómsveit á unglingsárum,“ segir
Haukur.
Græni hatturinn er staðsettur
að Hafnarstræti 96 á Akureyri og að
sögn Hauks er hljómburður í húsinu
afskaplega góður:
„Það er afar
góður viður í hús-
inu og timburloft.
Sviðið er síðan al-
veg pakkað í ein-
angrun. Auk þess
höfum við allt til
alls hér fyrir tón-
listarmennina, alla
magnara, hljóð-
kerfi, trommusett,
Hammond-orgel
og píanó.“
Aðgöngumiðar
á tónleika eru
seldir á vefsíðunni
graenihatturinn.is
og í Eymundsson
en síðan eru seldir
einhverjir afgangs-
miðar á staðnum. Stundum selst þó
allt upp á netinu. Nær alltaf er kom-
in löng biðröð áður en tónleikarnir
hefjast og húsið orðið fullt um korter
eftir opnun.
Áhugavert er að skoða dagskrána
framundan á graenihatturinn.is en
óhætt er að segja að hún sé metnað-
arfull. Meðal listamanna sem koma
fram á næstunni eru Bara flokkurinn,
Ljótu hálfvitarnir, Skálmöld, Margrét
Eir og Todmobile, Moses Hightower,
Hjálmar og Jónas Sigurðsson og Rit-
vélar framtíðarinnar. Enn fremur
verður á næstunni haldin söng-
skemmtunin Örlítið meiri diskant
sem er dagskrá til heiðurs tónlistar-
manninum Ingimar Eydal.
Staðurinn tekur 180 manns í sæti
en aðrir gestir njóta tónlistarinn-
ar standandi. Bar er á staðnum þar
sem hægt er að fá flesta hugsanlega
drykki, áfenga sem óáfenga. n
Jónas Sig og
Ritvélar fram-
tíðarinnar
Mynd daníel StarraSon
Focus
John Grant
Mynd daníel StarraSon
Skálmöld
Hjálmar