Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2016, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2016, Blaðsíða 12
Helgarblað 7.–10. október 201612 Fréttir S amfylkingin kynnti í vik­ unni eitt fyrsta stóra kosn­ ingaloforðið sem fram er komið vegna komandi þing­ kosninga. Stefnumálið ber yfirskriftina „Forskot á fasteigna­ markaði“ sem felur í sér að fyrirfram­ greiða vaxtabætur til fimm ára sem styrk til kaupenda að fyrstu fasteign og fólks sem ekki hefur átt fasteign í að minnsta kosti þrjú ár. Þannig geti fólk í sambúð að hámarki fengið 3 milljónir króna í styrk, einstæðir for­ eldrar 2,5 milljónir og einstaklingar 2 milljónir til að nýta til útborgun­ ar, sem er mismunur á kaupverði og hámarksfjárhæð láns. Segir Sam­ fylkingin réttilega að fyrir sambýlis­ fólk geti milljónirnar þrjár dugað fyrir útborgun á 20 milljóna króna íbúð miðað við 85 prósent lán, eða sem stór hluti útborgunar til kaupa á dýrari eign. Þeir sem fastir eru í hlekkjum óstöðugs og fokdýrs leigumarkaðar þekkja það að ná ekki að leggja mik­ ið til hliðar í hverjum mánuði fyrir útborgun, nema yfir töluvert langt tímabil. Þó að ljóst sé aðeins þeir sem hafa lægri tekjur og eiga litlar sem engar eignir geti fullnýtt þetta úrræði Samfylkingarinnar, vegna innbyggðra skerðinga í vaxtabóta­ kerfinu, þá telur framkvæmdastjóri flokksins að það muni hjálpi mörg­ um yfir erfiðasta útborgunarhjall­ ann sem mörgum reynist erfiður. Ekki sé þó raunhæft að líta svo á að úrræðið eitt og sér muni duga fyrir allri útborguninni. Skerðingarmörk­ in vill Samfylkingin einnig hækka í framhaldinu, en forskotsleiðina verði hægt að fara í þegar í stað. En hvað fæst fyrir 20 milljónir á íslenska fast­ eignamark­ aðnum? DV ákvað til gam­ ans skoða hvers konar fasteignir væru í boði fyrir 20 milljónir króna eða eilítið minna hér á landi. Bæði í Reykjavík og á landsbyggð­ inni. Betra fyrir lands- byggðina? Þar kemur ber­ sýnilega í ljós að í Reykja­ vík, þar sem fasteignaverð er langtum hærra en úti á landi, mun úrræði Sam­ fylkingarinn­ ar eitt og sér, jafn gagnlegt og það kann að reynast, hrökkva skammt. Í höfuð­ borginni duga 20 milljónir króna oft ekki fyrir meiru en agnarsmáum ósam­ þykktum íbúðum. Hins vegar er fjárhæð styrksins óháð verð­ mæti íbúða og ætti því að nýtast bet­ ur til kaupa á fasteign í bæjarfélögum landsbyggðarinnar þar sem íbúðar­ verð er mun lægra. Athugun DV leiddi í ljós að víða á landsbyggðinni duga 20 milljónir króna til kaupa á reisulegu einbýlishúsi. Lánastofnan­ ir eru hins vegar oft tregar til að lána hátt hlutfall kaupverðs á þeim svæð­ um þar sem íbúðarverð er svo lágt, þannig að hugsanlega jafnast stað­ an eilítið. 25 milljónir og upp úr Samfylkingin segir raunar í kynn­ ingu með aðgerðunum að tveggja herbergja íbúðir kosti frá 22 millj­ ónum króna á höfuðborgarsvæðinu. DV fann fá dæmi um húsnæði á því verði í Reykjavík sem henta myndi sambýlisfólki sem hugsanlega hef­ ur hug á að stofna fjölskyldu. Hvað þá fyrir fólk með börn. Þannig er hægt að fá ósamþykkta 58 fermetra kjallaraíbúð á Hverfisgötu fyrir 21,5 milljónir, en bankar lána ekki til kaupa á ósamþykktum íbúðum. Í Efstasundi, í 104 Reykjavík, má fá 41 fermetra, tveggja herbergja íbúð á 22 milljónir. Minni íbúðir á hærra verði á Framnesvegi í 101 Reykjavík og Kaplaskjólsvegi í Vesturbæ Reykja­ víkur. Það er ekki fyrr en verðið er Hvað þarftu að eiga mikið? Eins og fram kemur þá þarf að eiga 3 milljónir króna í útborgun fyrir 20 milljóna króna láni. En líkt og framkvæmdastjóri Samfylkingarinnar segir þá er ekki gert ráð fyrir að úrræðið eitt og sér standi undir allri útborguninni. Fólk verður líka að safna, úrræðið léttir aðeins undir. Þá er mismunandi hversu háar vaxtabætur sambýlisfólk eða einstaklingar geta leyst út með tilliti til eigna og tekna. Aðeins í verstu tilfellunum mun fólk geta fullnýtt úrræðið. En hversu mikið þarftu að eiga fyrir útborgun á fasteign? Lánastofnanir lána að hámarki allt að 85% af kaupverði til fyrstu kaupenda, svo alltaf þarf að brúa hin 15 prósentin með einhverju móti. 25 milljóna króna eign Þú þarft að eiga: 3.750.000 kr. 30 milljóna króna eign Þú þarft að eiga: 4.500.000 kr. 35 milljóna króna eign Þú þarft að eiga: 5.250.000 kr. 40 milljóna króna eign Þú þarft að eiga: 6.000.000 kr. Þetta færð þú fyrir 20 milljónir n Kjallarahola í Reykjavík en einbýli úti á landi n Forskoti Samfylkingarinnar ætlað að hjálpa fólki að kaupa Sigurður Mikael Jónsson mikael@dv.is 531 Hvammstangi 201 fm. 5 herb. einbýlishús á Ár bakka Ásett verð: 20 millj. Fermetraverð: 99 þús. 600 Akureyri 75,3 fm. 3ja herb. hæð í Hafnar stræti Ásett verð: 19,9 millj. Fermetraverð: 264 þús. 620 Dalvík 100 fm. 3ja herb. raðhús á BrimnesbrautÁsett verð: 19,9 millj. Fermetraverð: 199 þús. 815 Þorlákshöfn 99 fm. 3ja herb. hæð á Oddab raut Ásett verð: 16,9 millj. Fermetraverð: 170 þús. 900 Vestmannaeyjar 89,9 fm einbýlishús í Miðstræ ti Ásett verð: 19,8 millj. Fermetraverð: 220 þús. 800 Selfoss 89,2 fm. 3ja herb. íbúð í Háengi Ásett verð: 17,1 millj. Fermetraverð: 191 þús. 230 Reykjanesbær 110 fm. 4ja herb. Hæð í Hafna rgötu Ásett verð: 20 millj. Fermetraverð: 181 þús. 101 Reykjavík 30,8 fm/stúdíóíbúð á Njálsgötu Ásett verð: 19,9 millj. Fermetraverð: 646 þús. 112 Reykjavík 44,2 fm. 2ja herb. íbúð í Hrísri ma Ásett verð: 20 millj. Fermetraverð: 452 þús. 300 Akranes 130 fm. 4ja herb. hæð á Skóla braut Ásett verð: 18,9 millj. Fermetraverð: 145 þús. 400 Ísafjörður 141 fm. 4ja herb. einbýlishús í Tan gargötu Ásett verð: 18,5 millj. Fermetraverð: 131 þús. 415 Bolungarvík 154 fm. 5 herb. einbýlishús í HafnargötuÁsett verð: 18,5 millj. Fermetraverð: 120 þús. 450 Patreksfjörður 228 fm. 5 herb. einbýlishús í Aða lstræti Ásett verð: 20 millj. Fermetraverð: 87 þús. 355 Ólafsvík 206 fm. 6 herb. einbýlishús á Óla fsbraut Ásett verð: 19,9 millj. Fermetraverð: 96 þús. 340 Stykkishólmur 112 fm. 4ja herb. hæð í SilfurgötuÁsett verð: 20 millj. Fermetraverð: 178 þús. „Miðað við fasteigna- markaðinn í Reykja- vík í dag er raunhæfara að fólk sé ekki að fá alla útborgunina út úr þessu, heldur fleyti þetta þeim yfir erfiðasta hjallann.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.