Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2016, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2016, Blaðsíða 10
Helgarblað 7.–10. október 201610 Fréttir H ópur fjárfesta undir for­ ystu Einars Arnar Jóns­ sonar, sem oft er kenndur við Nótatún, hefur eignast 90% hlut í Emmessís. Sam­ kvæmt heimildum DV fóru þeir inn í hluthafahópinn í ágúst þegar þeir lögðu ísgerðinni til nýtt hlutafé upp á 50 milljónir króna en fyrirtækið var áður í eigu Sparisjóðabank­ ans (SPB) og verðbréfafyrirtækisins Arev. Rekstur Emmessíss hefur ver­ ið þungur síðustu ár en fyrirtækið veltir um 850 milljónum króna á ári. Sitja í stjórninni Fjárfestahópurinn samanstendur af Einari Erni, Þóri Erni Ólafssyni, fyrr­ verandi framkvæmdastjóra Sector viðskiptaráðgjafar, Gyðu Dan Jo­ hansen, fyrrverandi rekstrarfulltrúa 365 miðla, og Ragnari Birgissyni, framkvæmdastjóra Emmessíss og fyrrverandi formanns Samtaka ís­ lenskra sparisjóða. Einar, Þórir og Gyða settust öll í stjórn fyrirtækisins þann 19. ágúst síðastliðinn. Þann sama dag var samþykkt að hækka hlutafé félagsins um 4,5 milljón­ ir króna á genginu 11,11. Sölu­ verð hlutafjárins var því 50 millj­ ónir króna og var greitt með reiðufé samkvæmt tilkynningu Emmessíss til fyrirtækjaskrár Ríkisskattstjóra. Einkahlutafélagið Hnetutoppur, sem var stofnað í júlí síðastliðnum, greiddi 43 milljónir fyrir 77% hlut í Emmessís í hlutafjáraukningunni í ágúst. Ragnar Birgisson greiddi sjö milljónir króna fyrir 13% hlut en samkvæmt heimildum DV hélt SPB eftir um 10% í fyrirtækinu. Einka­ hlutafélagið SPB, sem varð til í kjölfar þess að slitabú Sparisjóðabankans lauk nauðasamningum fyrr á árinu, er að fullu í eigu Eignasafns Seðla­ banka Íslands (ESÍ). Stjórnarformaður SPB er Haukur C. Benediktsson, fram­ kvæmdastjóri ESÍ. Lánum breytt í hlutafé Arev og SPB áttu Emmess­ ís í gegnum samlags­ hlutafélagið Arev NI. Fé­ lagið fór inn í hluthafahóp ísgerðarinnar árið 2007 þegar Auðhumla svf., móðurfélag Mjólkur­ samsölunnar (MS), seldi fyrirtækið, sem MS hafði þá rek­ ið frá árinu 1960, til fjárfesta tengdum ávaxtasafaframleið­ andanum Sól ehf. SPB átti í árs­ lok 2015 60,1% í Arev NI á móti 39,9% verðbréfafyrirtækisins sem er nú horfið úr hluthafahópnum. Rekstur Emmessíss hefur verið þungur síðustu ár og fyrirtækið farið í gegnum fjárhagslega endurskipulagningu. Það var rekið með 109 milljóna tapi í fyrra og neikvæðri afkomu upp á 52 milljónir árið 2014. Bókfært eigið fé þess var neikvætt um 150 milljón­ ir í árslok 2015 en skuld­ irnar námu þá 483 millj­ ónum. Í fundargerð hluthafafund­ ar Emmessíss frá 13. júlí síðastliðn­ um er rakið hvern­ ig lánum frá þáver­ andi móðurfélaginu Arev NI hafði ver­ ið breytt í hlutafé. Í desember 2014 hafi hlutaféð verið hækkað um 118 milljónir króna að nafn­ verði og hækkunarhlutirnir verið greiddir til félagsins í peningum. Ári síðar hafi verið tekin ákvörðun um að hækka það upp í rétt rúmar 303 milljónir og var þá lánum frá móður félagi aftur breytt í hlutafé. Í janúar síðastliðnum hafi svo ver­ ið tekin ákvörðun um að lækka það um uppsafnað rekstrartap fyrirtæk­ isins eða niður í lágmarkshlutafé, 500.000 krónur. Ragnar Birgisson vildi ekki tjá sig um málið þegar DV leitaði eftir því. Í tilkynningu sem blaðinu barst frá fjárfestahópnum í gær, fimmtudag, segir að nýir eigendur ætli sér að efla rekstur fyrirtækisins með auk­ inni vöruþróun og frekari markaðs­ sókn. „Saga Emmessíss liggur aftur til ársins 1960. Um áratugur er liðinn frá því að AREV N1 keypti fyrirtækið af Mjólkursamsölunni og reksturinn hefur frá þeim tíma verið algjörlega aðskilinn og er Mjólkursamsölunni óviðkomandi með öllu,“ segir í til­ kynningunni. n n Fjárfestahópur eignast 90% í ísgerðinni n Einar í Nótatúni og Gyða Dan, fjárfestir og eiginkona forstjóra MS, á meðal eigenda Haraldur Guðmundsson haraldur@dv.is Nýr hluthafi Hnetutoppur ehf. á nú 77% hlut í Emmessís. Að baki félaginu standa Einar Örn Jónsson, Gyða Dan Johan­ sen og Þórir Örn Ólafsson. Framkvæmdastjórinn Ragnar Birgisson var áður stjórnarformaður Emmess­ íss en er nú hluti af nýjum eigendahópi fyrirtækisins. MyNd OMar OSkarSSON Leiðir fjár- festahópinn Einar Örn Jónsson, oftast kenndur við Nóatún. Stjórnarmaður Gyða Dan Johansen situr nú í stjórn Emmessíss. Fyrir­ tækið er til húsa í sömu byggingu og Mjólkursamsalan sem átti og rak fyrirtækið í áratugi. Ari Edwald, forstjóri MS, er eiginmaður Gyðu. Kaupa EMMESSíS MEð Nýju HlutaFé

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.