Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2016, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2016, Blaðsíða 20
Helgarblað 7.–10. október 2016 Heimilisfang Kringlan 4-12 6. hæð 103 Reykjavík fréttaskot 512 70 70fr jál s t, ó Háð dag b l að DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7000 512 7050 aðalnúmer ritstjórn áskriftarsími auglýsingar sandkorn 20 Umræða Útgáfufélag: DV ehf. • Stjórnarformaður og útgefandi: Björn Ingi Hrafnsson • Ritstjórar: Kolbrún Bergþórsdóttir og Kristjón Kormákur Guðjónsson Viðskiptaritstjóri: Hörður Ægisson • Fréttastjórar: Baldur Guðmundsson og Einar Þór Sigurðsson Framkvæmdastjóri : Steinn Kári Ragnarsson • Umbrot: DV ehf. • Prentun: Landsprent • Dreifing: Árvakur Svört skýrsla Það styttist í að Ríkisendur­ skoðun birti niðurstöður viða­ mikillar úttektar á eignasölu Landsbankans á árunum 2010 til 2016 og ætti hún að líta dagsins ljós í opinberri skýrslu til Alþingis fljótlega eftir þingkosningar í lok þessa mánaðar. Stofnunin ákvað að ráðast í þá skoðun í kjölfar umdeildrar sölu bankans á 31% hlut í greiðslukortafyrirtækinu Borgun í árslok 2014 en hluturinn var ekki auglýstur til sölu. Drög að skýrslu Ríkisendur­ skoðunar liggja nú þegar fyrir og sagt er að niðurstaða hennar kunni að reynast Steinþóri Páls- syni, bankastjóra Landsbank­ ans, afar þungbær. Auk sölunn­ ar á hlut bankans í Borgun tók Ríkisendurskoðun meðal annars einnig til skoðunar sölu bank­ ans á eignaumsýslufélaginu Vestia árið 2010 og 40% hlut í Promens ári síðar en í báðum tilfellum voru eignirnar ekki auglýstar. Steinþór hefur verið undir þrýstingi frá Bankasýsl­ unni vegna Borgunarmálsins en í yfirlýsingu frá fimm banka­ ráðsmönnum bankans fyrr á árinu kom meðal annars fram að bankaráðið hefði fengið þau skilaboð að það „eina sem dygði“ væri að segja Steinþóri upp. Þ að er varasamt að taka of mik­ ið mark á skoðanakönnunum um fylgi flokka því ljóst er að fylgið er á stöðugri hreyfingu. Það virðist þó blessunarlega lítil fylgishreyfing til Íslensku þjóðfylk­ ingarinnar sem er með 2–3 prósenta fylgi samkvæmt skoðanakönnunum og ekki á uppleið. Ekkert bendir til þess að fylgisaukning verði á skömm­ um tíma svo mikil að flokkurinn nái mönnum á þing. Það eru góð tíðindi. Það eru líka góð tíðindi að talsmenn og forsvarsmenn flokkanna sem eiga sæti á Alþingi, auk Viðreisnar, hafna öllu samstarfi við Þjóðfylkinguna. Um það voru þeir afdráttarlausir í ný­ legri úttekt DV. Formaður Sjálfstæð­ isflokksins, Bjarni Benediktsson, var einna varfærnastur þeirra leiðtoga sem talað var við en talaði skýrt þegar hann sagði: „Mér finnst að á sum­ um sviðum séu þeir með algjörlega óásættanlega nálgun.“ Allir vita hvað hann á við. Hin megna og stjórnlausa andúð Íslensku þjóðfylkingarinnar á múslimum hefur ekki farið leynt. Fylgismönnum Íslensku þjóð­ fylkingarinnar er meinilla við að múslimar fái að iðka trú sína og vilja banna byggingu moska. Af þessu verður ekki annað ætlað en að trú­ frelsi sé ekki í hávegum haft meðal flokksmanna. Flokkurinn vill mjög herta innflytjendalöggjöf og hefur gríðarlegar áhyggjur af því að verið sé að opna landið fyrir flóttamönnum og þá sérstaklega múslimum. Á sama tíma styður flokkurinn kristin gildi og viðhorf – sem er stórmerkilegt. Spyrja má: Hvernig er hægt að styðja kristin gildi og viðhorf ef ekkert pláss er fyrir náungakærleik? Er það ekki einmitt í kristilegum kærleiksanda að veita fólki í neyð aðstoð og skjól? Hvað hefði Kristur sagt? Fram að þessu hefur Ís­ lenska þjóðfylkingin að mestu talað fyrir daufum eyrum. Það gæti breyst í ná­ inni framtíð. Það er að minnsta kosti skoðun Eiríks Berg­ manns Einarssonar stjórn­ málafræðiprófessors, sem seg­ ir að það kæmi sér ekki á óvart ef flokkurinn næði mönnum á þing. Hann tekur þó fram að ein af megin­ forsendum þess að flokkar eins og Þjóðfylkingin nái flugi sé að þeir hafi leiðtoga með persónutöfra og útgeislun. Íslenska þjóðfylkingin á engan slíkan leiðtoga og mun örugg­ lega ekki finna hann á þeim fáu vik­ um sem eru til kosninga. En hún mun halda áfram að leita og kannski finna. Íslenska þjóðfylkingin mun sprikla og stunda sinn hatursáróður, hver sem úrslit kosninga verða. Þá er mikilvægt að talsmenn og forsvars­ menn annarra flokka gefi hvergi eftir heldur standi fastir á því prinsippi að eiga ekki samstarf við flokk sem kennir sig við útlendingaandúð og virðist fjarska stoltur af því. n Hvað hefði Kristur sagt? Þetta er helber lygi Valdimar Lúðvík Gíslason ákærður fyrir að rífa hús í Bolungarvík. – DV Ég er búinn að vera með krónískan magaverk í tvær vikur Atli Fannar Bjarkason verður með innslög í þættinum Vikan með Gísla Marteini í vetur. – DV Hvernig á ungt fólk að bjarga sér? Spyr Helgi Vilhjálmsson um stöðuna á húsnæðismarkaði. – Útvarp Saga. „ Íslenska þjóðfylk­ ingin mun sprikla og stunda sinn haturs­ áróður, hver sem úrslit kosninga verða. Leiðari Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@dv.is Stofnstyrkur vegna fyrstu íbúðar E rfiðasti hjallinn fyrir ungt fólk sem ætlar að kaupa sína fyrstu íbúð er að kljúfa útborgun­ ina. Þetta er ástæðan fyrir því að margt ungt fólk læsist inni á fokdýrum og ótryggum leigumark­ aði. Það neyðist til að greiða leigu, sem oft er miklu hærri en mánaðar­ leg afborgun af húsnæðis láni og nær aldrei að safna fyrir útborgun vegna fyrstu fasteignar. Þetta er einn erfið­ asti vandinn sem ungir Íslendingar glíma við. Minn flokkur, Samfylk­ ingin, hefur nú lagt fram einfalda og ódýra leið sem gef­ ur ungu fólki forskot á fasteignamarkaði. Forskot á fyrstu kaup Í dag eiga allir kost á vaxtabótum uppfylli þeir ákveðin skilyrði. Vaxtabæturnar geta að hámarki orðið 600 þús­ und fyrir hjón eða fólk í sambúð, 500 þúsund fyrir einstætt foreldri, og 400 þúsund fyrir einstakling. Tillaga Samfylkingarinnar felst í því að gefa fólki kost á því að fá vaxta­ bætur fyrstu fimm ár­ anna greiddar út fyrir­ fram. Þessi leið felur í sér að ungt par, eða hjón, fengju stofnstyrk sem nemur þremur milljónum. Einstætt foreldri fengi 2,5 milljónir og einstaklingur tvær milljónir. Snjöll og einföld leið Leiðin er einföld: Menn leggja fram þinglýstan kaupsamning, og vottorð frá sýslumanni um að þeir eigi ekki íbúð. Styrkurinn er í kjölfarið greidd­ ur upp í útborgun vegna fasteignar­ innar Þessi snjalla leið njörvar engan niður. Par getur valið hvort það vill fá vaxtabæturnar greiddar út fyrirfram í formi þriggja milljóna kr. stofnstyrks eða fara hefðbundna leið inn í vaxta­ bótakerfið. Sama gildir um einstak­ linga og einstæða foreldra. Þeir sem velja sér stofnstyrkinn fá ekki vaxta­ bætur á þeim tíma. Styrkurinn set­ ur heldur engar skorður um stærð fyrstu kaupa, svo fremi hún sé innan greiðslumats viðkomandi lánastofn­ unar. Frelsi til að velja Helsta gagnrýnin á leið okkar jafn­ aðarmanna er að hún sé líkleg til að heppnast of vel! – Hún kunni því að hafa áhrif á fasteignaverð. Það er hugsanlegt að einhver áhrif verði. Stofnstyrkurinn er hins vegar fyrir­ framgreiðsla á vaxtabótum, sem ella yrðu greiddar út með jöfnum hætti. Stefán Ólafsson, prófessor við HÍ, telur ekki ástæðu til að ætla að sam­ band sé á milli hækkunar vaxtabóta og hækkunar á húsnæðisverði. Jafn­ vel þó að leiðin heppnist það vel að hún hafi til skamms tíma áhrif á markaðinn er ljóst að hún felur í sér fljótvirka og einfalda aðferð til að vinna bug á einum helsta bráða­ vanda húsnæðismarkaðarins í dag. Fólk þarf að hafa frelsi til að velja. Það á að geta valið hvort það kaupir eigin húsnæði eða leigir. Þess vegna er það líka hluti af húsnæðistillög­ um jafnaðarmanna að 4.000 leigu­ íbúðir verði byggðar á næstu fjórum árum auk 1.000 námsmannaíbúða. Sú leið sem hér er kynnt mætir hins vegar þörf ungs fólks og nýliða á fast­ eignamarkaði sem sér meira öryggi í því að eignast þak yfir höfuð. Hún er hröð og einföld – og hún jafnar leik­ inn. n „Fólk þarf að hafa frelsi til að velja. Össur Skarphéðinsson Alþingismaður Aðsent

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.