Dagblaðið Vísir - DV - 07.10.2016, Blaðsíða 26
Helgarblað 7.–10. október 20164 Skemmtanalífið - Kynningarblað
Kósístemning og partístuð
Boston Reykjavík Bar, Laugavegi 28b, 101 Reykjavík
B
oston Reykjavík Bar, Lauga-
vegi 28b, er stundum róleg-
ur og notalegur og stund-
um iðar hann af lífi og fjöri.
Staðurinn er opnaður alla
daga kl. 16 og þá hefst „drekkutím-
inn“ – Happy Hour – sem stendur til
kl. 20. Bjórinn kostar þá 650 krónur
og vínglas 700. Talandi um notaleg-
heit þá býður Boston gestum sínum
upp á að sitja á útisvæði sem er upp-
hitað og með skjólgarði. Þessi upp-
hitaði og huggulegi pallur er
opinn allan ársins hring
og mikið notaður.
Hvað veitingar
snertir leggur
Boston áherslu á
einfaldleika, gæði
og ferskleika. Vín-
tegundir á barn-
um eru fremur
fáar en allar mjög
góðar. Matseðill-
inn er einfaldur en
ferskur og boðið er upp
á kjúkling, fisk og alls kon-
ar girnilegt meðlæti.
Nokkuð breiður aldurshópur
sækir Boston og er fólkið frá 25 ára
aldri og upp úr. Töluvert af erlend-
um ferðamönnum sækir staðinn.
Stemningin er yfirleitt róleg framan
af kvöldi en svo færist töluvert líf í
mannskapinn eftir að plötusnúðarn-
ir mæta á svæðið og keyra upp
stemningu, en það er um tíuleytið
á kvöldin, frá miðvikudagskvöldi út
laugardagskvöld. Staðurinn er opinn
til eitt á nóttunni á virkum kvöldum
og sunnudagskvöldum en til klukk-
an þrjú á föstudags- og laugardags-
kvöldum. Fyrir marga sem ganga
hratt um gleðinnar dyr er þetta gott
fyrirpartí um helgar. Boston er á
þremur hæðum, jarðhæð, neðri hæð
og efri hæð, að ógleymdum upp-
hitaða pallinum. Efri hæðin hent-
ar mjög vel fyrir hópa og hún er oft
leigð út fyrir samkvæmi, til dæmis
afmælisveislur. Þar eru líka sýndir
íþróttaviðburðir á sjónvarpsskjáum,
til dæmis landsleikir.
Sem fyrr segir skipar tónlistin
veglegan sess á Boston, aðallega
DJ-arar. Boston er opinber Off-
Venue staður á tónlistarhátíðinni
Airwaves. Á Facebook-síðunni
Boston Reykjavík er hægt að fylgjast
með öllum viðburðum framundan
á staðnum. n
myndir sigtryggur ari